Fréttatíminn


Fréttatíminn - 17.02.2012, Blaðsíða 18

Fréttatíminn - 17.02.2012, Blaðsíða 18
sushisamba • Þingholtsstræti 5 • 101 Reykjavík sími 568 6600 • sushisamba.isCorona 590 kr. Upplifðu Carnival á Carnival dögum Sushisamba 20. til 24. febrúar. Frábær matur, tilboð á Corona og sjóðheit stemning. Þriggja rétta Carnival-matseðill ásamt fordrykk 3.990 kr. C arnivalKomdu á bólgin, með mígreni og fór til þús- und lækna. Enginn áttaði sig á ein- kennum mínum. Einu sinni skrifaði læknir upp á þunglyndistöflur! En pabbi sendi mig til sjúkraþjálfarans síns og sagði að það sakaði ekki að reyna,“ segir hún í þann mund sem veitingarnar koma á borðið. Bjargað af sjúkraþjálfara „Verkurinn lá yfir öllu höfðinu og andlitinu. Ég átti erfitt með að halda augunum opnum. Sjúkraþjálf- arinn tók mig í gegn. Ég fór heim og vaknaði eftir hálfan sólarhring endurnærð. Hann náði að rétta hálsliðina af og leysa um þá. Þegar liðirnir festast svona saman verður allt svo bólgið og taugarnar næmar. Ég skynjaði því kulda, hita og snertingu sem sársauka. Það mátti ekkert gerast svo ég fyndi til.“ Hugrún gat ekki verið á fótum heilan dag. „Ég þurfti alltaf að leggja mig. Þess vegna finnst mér svo gaman að geta unnið í tíu tíma, komið heim en vera samt ekki örmagna og geta farið á kaffihús eftir vinnu. Það var ekki í boði áður. Ég tók lyf svo ég kæmist í tíma. Svo fékk ég hausverkjaköst. Það kom fyrir að ég hafði lesið vel undir próf, fékk svo kast og gat ekki tekið prófið,“ segir hún og nefndir að í háskólanámi sé lítill sveigjanleiki fyrir fólk sem glímir við veikindi. „Sjúkrapróf vorannar eru kannski á þremur dögum að hausti. Þá tekur maður ekki fimm próf heldur verður að velja og hafna,“ segir hún. Veikindin seinkuðu út- skrift Hugrúnar um hálft ár. „En ég skrifaði ritgerðina með starfinu á Mogganum; sem var einmitt á þeim tíma þegar lífið var að verða betra. Og nú finnst mér lífið yndislegt,“ segir Hugrún og bítur í beygluna og heldur áfram þegar við á. „Ég hugsa ekki um að þetta hafi verið veikindi heldur eitthvað sem gerðist. Ég held að ég sé bjartsýnni og ánægðri en áður. Ég læt litla hluti ekki á mig fá. Ég held þetta tímabil hafi verið til góðs.“ Á fjöllum með 20 kg á bakinu Hugrún vill lítið gera úr þessari reynslu sinni og viðurkennir að hún hafi ekki sagt öðrum en foreldrum sínum á þessum tíma frá raunum sínum. „Ég sagðist alltaf vera ótrú- lega upptekin. Ég sagði fólki ekki frá því að ég væri sofandi heima.“ Hugrún varð ekki laus allra mála eftir þennan eina tíma hjá sjúkra- þjálfaranum. Hún fer einu sinni til tvisvar í viku til sjúkraþjálfara. „Ég held mér við. Stundum er ég ótrúlega góð, en stundum fæ ég köst. Ef sjúkraþjálfarinn er veikur verð ég einnig veik,“ segir hún og brosir. „Það er því eins gott að hann haldi áfram að starfa.“ Það fer Hugrúnu Halldórsdóttur vart vel að vera rúmföst. Hún ber hraustleikann með sér. „Útivera. Ef úti væri ekki til myndi ég örugg- lega ekkert hreyfa mig,“ segir hún og hlær, enda alin upp af foreldrum sem elska fjöll og firnindi. Hún fór um tíma örsjaldan með þeim en svo kviknaði áhuginn. Hún gekk bæði Fimmvörðuháls og Laugaveginn í fyrrasumar og fór tíu til tuttugu sinnum upp Esjuna. „Mér fannst allt í einu svo yndislegt að ganga með góðu fólki. Á göngu gleymi ég þreytu og því að vera með 20 kíló á bakinu.“ Hún finnur ekki allar týpur í fjall- göngum en þær hittir hún í starfi sínu sem sjónvarpsfréttamaður. „Það kom mér ánægjulega á óvart hversu opið fólk er, tilbúið að koma fram í sjónvarpi og kemur vel fyrir. Fjölbreytnin í starfinu eru helstu kostur þess og maður hittir svo margt fólk. Mér var strax tekið opnum örmum á Stöð 2,“ segir Hug- rún, sem kom þangað frá Morgun- blaðinu fyrir rétt rúmu ári, þar sem hún hóf störf sem ritari við sameig- inlegar sjónvarpsfréttir mbl.is og Skjásins, en vann sem blaðamaður við menningu og innlendar fréttir þegar samvinnunni lauk. Lætur lífið teyma sig áfram Þótt hún slæi ekki hendinni á móti aukinni ábyrgð á fréttastofu Stöðv- ar 2 bærist leyndur draumur innra með henni: „Þetta er Hugrún Hall- dórsdóttir, sem talar frá Madríd.“ Hún hlær og segist gjarna vilja leysa hinn kyngimagnaða Kristin R. Ólafsson af, sem er vel enda var hún Spánverji í fyrra lífi... „Ég hef svo mikla tengingu til Spánar, svo það hlýtur að vera. Ég elska spænska tónlist, spænskar fréttir og er alltaf inni á vefjum El Pais og El Mundo,“ segir hún. En þrátt fyrir skynsemi – eða kannski vegna hennar – hefur hún ekki skipulagt lífshlaupið í þaula. „Ég horfi sjaldan til framtíðar, læt hlut- ina gerast og plana lítið. Mjög lítið,“ segir hún og hlakkar til að lifa líf- inu. Hún vefur bláa treflinum um hálsinn og teygir sig eftir kápunni og kveður. Hún er rokin út í mánu- dagsrigninguna. Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir gag@frettatiminn.is Hugrún Halldórsdóttir hefur lífgað upp á fréttir Stöðvar 2 síðasta árið. Mynd/Hari 12-36 mánaða binditími Engin útborgun Ábyrgðar- og kaskótrygging Bifreiðagjöld 20.000 km á ári Sumar- og vetrardekk Þjónustuskoðanir og smáviðhald Leigð´ann Eigð´ann Nýlegir bílar Allir í toppástandi Fara í gegnum gæðaskoðun AVIS Þriggja daga reynsluakstur www.avisbilar.is S. 591 4000 ... og krækja sér í bíl á frábæru verði! til þess að fara inn á avisbilar.is 11 ástæður Nýr opnunartími í Vínbúðunum Skeifunni, Dalvegi og Skútuvogi. Opnum kl. 10 alla virka daga Þú sérð opnunartíma annarra Vínbúða á vinbudin.is E N N E M M / S ÍA / N M 49 95 2 18 viðtal Helgin 17.-19. febrúar 2012
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.