Fréttatíminn


Fréttatíminn - 17.02.2012, Side 28

Fréttatíminn - 17.02.2012, Side 28
28 fréttir vikunnar Helgin 17.-19. febrúar 2012 Slæm vika Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisflokksins Góð vika Gretu Salóme Stefánsdóttur, lagahöfund og söngkonu 19 mörk hefur Argent- ínumaðurinn Lionel Messi skorað í útsláttar- keppni meistara- deildar Evrópu, flest allra leik- manna. Myllusteinn um hálsinn Vafningsmálið svokallaða virðist ætla að vefjast fyrir Bjarna Benediktssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins. Hann skrifaði undir, í umboði föður síns og föðurbróður, tíu milljarða lánasamning á milli Glitnis og Vafnings þremur dögum eftir dagsetningu lánasamnings- ins og eftir að milljarðarnir tíu höfðu verið greiddir út. Þessir peningar töpuðust allir. DV hefur fjallað mikið um þetta mál frá árinu 2009 en það er ekki fyrr en nú þegar búið er að kæra tvo menn, Lárus Welding og Guðmund Hjaltason, af sérstökum saksóknara sem almennileg pressa myndast á Bjarna. Til að bæta gráu ofan á svart seldi Bjarni hlut sinn í Glitni á svipuðum tíma snemma árs 2008. Sem vekur upp spurningar um Bjarna – spurningar sem eru óþægilegar og erfiðar fyrir formann stærsta stjórnmálaflokks á Íslandi. 2,6 vikan í tölum Hæstiréttur togar í belti og axlabönd Gengislánadómur hæstaréttar skók samfélagið á miðviku- daginn. Fólk sem skuldar lán í erlendum myntum fagnaði en því verðtryggða var síður skemmt. Guðmundur Andri Thorsson Samgleðst þeim sem sjá fram á betri tíð með dómi Hæstaréttar. Sveinn Andri Sveinsson Ég sem hélt að ég hefði verið heppinn að taka ekki lán í erlendri mynt - FML Eva Hauksdottir Ég trúi því varla að fólk sé að öfundast út í þá sem fá leiðréttingu á ólöglegum vöxtum. Enn erfiðara finnst mér að trúa því að fólk sé að vorkenna „kerfinu“ . Andrés Magnússon Síðasti naglinn í kistu ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur? Hverju ætti það svo sem HeituStu kolin á Reikna þarf út á nýjan leik stöðu ríflega 70 þúsund gengis- tryggðra lána einstaklinga eftir dóm Hæstaréttar á miðvikudag, sem dæmdi að ekki hafi mátt reikna vexti af lánunum aftur- virkt miðað við íslenska óverð- tryggða vexti Seðlabankans eins og lög gerðu ráð fyrir. Umræða um málið var á Alþingi í gær. Í ræðustól er Steingrímur J. Sigfússon efnahags- og viðskiptaráðherra en við hlið hans er Árni Páll Árnason, for- veri hans í embætti. Oddný G. Harðardóttir fjármálaráðherra er í bakgrunni. Ljósmynd Hari milljónir barna deyja árlega af völdum van- næringar samkvæmt skýrslu Barnaheilla sem birt var í vikunni. Vann í fyrstu tilraun Fiðluleikarinn Greta Salóme Stefánsdóttir brosir sjálfsagt út að eyrum í dag eftir að lag hennar Mundu eftir mér bar sigur úr býtum í Söngva- keppni sjónvarpsins um síðsutu helgi. Lagið söng hún sjálf með Jónsa úr Svörtum fötum og verður það framlag Íslands í Eurovision- keppninni í maí í Aserbaídsjan. Nokkur umræða hefur verið eftir keppnina þar sem lagið Stattu upp með Bláum ópal vann símakosninguna en sjö manna dómnefnd valdi lag Gretu. Þessi bráðefnilega tuttugu og fimm ára gamla stúlka lætur sér þó fátt um finnast. Hún vann í fyrstu tilraun og átti tvo lög á úrslitakvöldinu. Geri aðrir betur. Sjúkrabílar hálfgerðar druslur? Stjórnendur Rauða krossins íhuga að hætta rekstri sjúkrabíla náist ekki fram kröfur um nauðsynlega endurnýjun tækjabúnaðar. Sífellt minni kröfur eru gerðar til ástands bílanna. Ávarpaði ekki Viðskiptaþing Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra ávarpaði ekki Viðskiptaþing. For- sætisráðherrar síðustu tvo áratugi hafa ávarpað þingið og það hefur Jóhanna gert síðastliðin þrjú ár. Fráfarandi formaður Viðskiptaþings sagði fjarveru ráðherrans vonbrigði. Vilja hækka stöðumælagjald Hækka á gjald í stöðumæla í miðborginni og lengja þann tíma sem greiða þarf í mæl- ana, gangi samþykkt umhverfis- og sam- gönguráðs borgarinnar eftir. Hækkuninni er ætlað að auka flæði bíla um stæðin. Victoria‘s Secret opnar verslun í Fríhöfninni Fríhöfnin mun 29. febrúar opna fyrstu Victoria‘s Secret verslunina á Íslandi í brottfararverslun Fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli. Þrjátíu þúsund vilja Ólaf Ragnar áfram Um þrjátíu þúsund manns skráðu sig undirskriftalista þar sem skorað er á Ólaf Ragnar Grímsson að gefa áfram kost á sér í embætti forseta Íslands. Þegar söfnunin hófst var talað um að markmiðið væri fjörutíu þúsund undirskriftir. Nær milljarðs tap á HS Orku Tap var á rekstri HS Orku á síðasta ári nam 937 milljónum króna. Fyrirtækið hagnaðist um 865 milljónir króna árið 2010. Sveiflan nemur 1,8 milljarði króna. Tapið stafar einkum af gengissveiflum. Sofnar ekki í nefnd Formaður stjórnskipunar- og eftirlits- nefndar Alþingis segir ljóst að tillaga um afturköllun ákæru á hendur Geir H. Haarde muni ekki daga uppi í nefndinni. Hættulegustu gatnamót Reykjavíkur Hættulegustu gatnamót Reykjavíkur eru mót Miklubrautar og Grensásvegar. Þar urðu nítján umferðarslys á árunum 2008- 2011. Átján slys urðu á mótum Bústaða- vegar og Reykjanesbrautar. Allir velkomnir - ókeypis aðgangur. Fundarstjóri: Laura Sch. Thorsteinsson verkefnastjóri hjá Landlæknisembættinu. Krabbameinsfélagið Eru lögbundin réttindi krabbameinssjúklinga virt? Örráðstefna 23. febrúar kl. 16:30-18:00 16:30-16:35 Ráðstefnan sett. Ragnheiður Haraldsdóttir forstjóri Krabbameinsfélags Íslands. 16:35-16:40 Ráðgjöf. Gunnjóna Una Guðmundsdóttir félagsráðgjafi segir frá Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins. 16:40-16:55 Framkvæmd laga um réttindi sjúklinga. Guðríður Þorsteinsdóttir skrifstofustjóri Velferðarráðuneytinu. 16:55-17:25 Reynslusögur. Tveir einstaklingar deila reynslu sinni af samskiptum við heilbrigðiskerfið. 17:25-17:40 Getur heilbrigðisþjónustan staðið sig betur? Vilhelmína Haraldsdóttir framkvæmdastjóri lyflækningasviðs Landspítalans. 17:40-18:00 Spurningar og kaffi. Krabbameinsfélag Íslands, Skógarhlíð 8, 105 Rvk, 540 1900, www.krabb.is að breyta, stjórnin hefur frá öndverðu verið eins Zombíar í C-klassa mynd: Lifandi dautt lið, rænulausir þrælar reflexa sinna, sem mega hafa sig alla við til þess að týna útlimunum ekki, en neita að halda kyrru fyrir í gröf sinni. Kristján B Jónasson Mun einkaneysla ekki rjúka upp núna þegar 20- 40 milljarðar rúlla aftur inn í hagkerfið? Er ekki kominn tími á tjaldvagn og sækött? Snorri tryllir lýðinn Predikarinn bókstafstrúaði Snorri Óskarsson, kenndur við Betel, gerði allt brjálað bæði í mann- og netheimum með bloggi sínu um að samkyn- hneigð sé dauðasynd. Hann skoraði ekki mörg stig og var settur í leyfi. Gunnar Larus Hjalmarsson Er að spá í að skella spurningu á Snorra í Betal á DV-tjattinu: Ertu til í að hoppa upp í rassgatið á þér og koma ekki aftur? en ég nenni því bara ekki. Bergsteinn Sigurðsson „Við eigum ekki að elta hinn nýju öfl víða um heim sem krefjast sérreglna fyrir sig og annarra fyrir aðra,“ segir Árni Johnsen, sem lengi hefur látið eins og aðrar reglur gildi um hann en aðra. vafningur fær vængi og Bjarna fatast flugið DV hefur í nokkur misseri fjallað um vafningsvið- skipti Bjarna Benediktssonar og skyldfólks hans. RÚV gaf málinu allt í einu gaum og með hverri hreyfingu flækist Bjarni verr í vafningi. Kastljóssviðtal Helga Seljan við formann Sjálfstæðisflokksins litaði umræðuna á Facebook í vikunni. Þorfinnur Ómarsson nú jæja, gott að vita að Bjarni notaði gróðan af hinni heppilegu sölu hlutabréfa í Glitni, á svona heppilegum tíma, í að byggja sér hús. Þá getur maður farið áhyggjulaus að sofa... Sólrún Lilja Ragnarsdóttir Ok, eins og Bjarni getur nú verið sexý þegar hann er reiður. Þá er hann mjög ósexý í Kastljósinu núna. Ég vona að vælubíllinn bíði fyrir utan Efstaleitið. Þráinn Bertelsson Efnispiltur úr viðskiptalífi og pólitík með bæði siðferði og dómgreind í lagi. (Að eigin sögn). Eva Hauksdottir Eymingja Bjarni Ben. Er ekki hægt að finna pláss fyrir hann í Kvennaathvarfinu? Lára Hanna Einarsdóttir Hvaða PR-gúrú Bjarna Ben ætli hafi tekið hann í gegn og sagt honum að svara aldrei spurningum? Heiða B Heiðars Þetta er allt DV að kenna Gunnar Grímsson Er þessa stundina afskaplega feginn að vera hættur að horfa á sjónvarp. Vona bara að þið hin hafið ekki beðið of mikinn skaða af. Björn Ingi Hrafnsson Mér fannst Bjarni Benediktsson standa sig vel í Kastljósi kvöldsins 334 milljarðar er verðið sem Kellogǵ s borgaði Procter & Gamblé s fyrir framleiðslu á Pringles kartöfluflögum. 6 er fjöldi Grammy-verðlauna sem breska söngstirnið Adele fékk á sunnudaginn. 7,5 prósent er hlutfallið sem kaupmáttur laun hefur rýrnað frá árinu 2007 sam- kvæmt tölum frá Hilmari Ögmundssyni hagfræðingi BSRB.

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.