Fréttatíminn - 17.02.2012, Blaðsíða 38
F yrir viku sló Fréttatíminn upp launahækkunum forsætisráðherra og þingmanna. Tilefnið virtist
vera ákvörðun kjararáðs snemma vetrar
um að fella úr gildi þá launalækkun sem
gilt hafði frá því þremur mánuðum eftir
bankahrunið haustið 2008.
Vert er að halda nokkrum staðreyndum
til haga í þessu sambandi. Með lagabreyt-
ingum í árslok 2008, sem meðal annars Jó-
hanna Sigurðardóttir stóð að, lækkaði kjar-
aráð laun ráðherra og þingmanna um allt að
15 prósent. Þetta þótti eðlilegt og sjálfsagt
eins og á stóð eftir bankahrunið, enda tóku
allir landsmenn á sig kjaraskerðingu. Í ljósi
þróunar á vinnumarkaði og fjárhagsvanda
ríkissjóðs vildi ríkisstjórnin taka á sig hluta
byrðanna af hruninu enda rétt og skylt að
hátt launaðir hópar hjá ríkinu tækju á sig launalækkun
líkt og sambærilegir hópar hjá einkafyrirtækjum höfðu
gert.
Tilmælum var beint til kjararáðs strax í nóvember
2008 um lækkun launanna. Niðurstaðan varð þó að Al-
þingi samþykkti lagabreytingu að tillögu ríkisstjórnar-
innar til að ná fram launalækkuninni og skyldi hún vara
til ársloka 2009. Þessi launalækkun ráðherra og þing-
manna var síðar framlengd að tilhlutan ríkisstjórnar
Jóhönnu Sigurðardóttur og var látin ná til fleiri hópa svo
sem forstöðumanna ríkisfyrirtækja og ríkisstofnana.
Lækkunin var loks afturkölluð 1. október 2011 með
nýrri ákvörðun kjararáðs.
Þegar allt tímabilið frá 1. janúar 2009
til 30. september 2011 er skoðað nemur
launalækkun forsætisráðherra samtals kr.
5.176.940 á 33 mánuðum. Nær allt tímabilið
nam mánaðarleg skerðing kr. 163.209 eins
og rétt var farið með í úttekt Fréttatímans.
Í tvö ár og og fjóra mánuði voru mánað-
arlaun forsætisráðherra kr. 935.000 eftir
lækkunina sem samþykkt var. Ef lækkun-
in hefði hins vegar aldrei tekið gildi hefðu
mánaðarlaunin verið kr. 1.098.209 allan
þann tíma eða frá 1. febrúar 2009 þegar
Jóhanna Sigurðardóttir varð forsætisráð-
herra. Með afnámi lækkunarinnar 1. októ-
ber síðastliðinn og þeim kjarabreytingum
sem orðið hafa í samræmi við aðra kjara-
samninga eru laun hennar í reynd liðlega
53 þúsund krónum hærri en þau laun sem hún hefði
fengið án lækkunarinnar. Hækkunin nemur því um 5
prósentum frá þeirri upphæð.
Ástæða er einnig til að minna á að lögbundin for-
réttindi alþingismanna og ráðherra til lífeyrisréttinda
hafa verið afnumin að undirlagi ríkisstjórnar Jóhönnu
Sigurðardóttur.
Með sanngirni verður því varla annað sagt en að nú-
verandi forsætisráðherra hafi lagt sitt af mörkum til
þess að deila áfalli hrunsins á herðar sem flestra. Það
er enda í anda jöfnuðar sem er sérstakt leiðarljós nú-
verandi ríkisstjórnar.
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjóri: Jón Kaldal kaldal@frettatiminn.is Framkvæmdastjóri: Teitur
Jónasson teitur@frettatiminn.is Fréttastjóri: Óskar Hrafn Þorvaldsson oskar@frettatiminn.is Ritstjórnarfulltrúi: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is. Auglýsinga-
stjóri: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
Eftir standa hinir varfærnari, sem tóku lán í íslenskum krónum
og sitja uppi með verðtryggingarbólginn höfuðstól.
Veitingahús
Karma Keflavík ehf
Krúska ehf
Suðurlandsbraut 12
Grófinni 8
6 ummæli
18 ummæli
11 ummæli
12 ummæli
19 ummæli
Saffran
SuZushii Stjörnutorgi
Kringlunni 4-12
1
2
3
4
5
Efstu 5 - Vika 7
Topplistinn
Sjávargrillið ehf
Skólavörðustíg 14
Kjaramál
Laun forsætisráðherra skert um
5,2 milljónir króna frá hruni
Jóhann Hauksson,
upplýsingafulltrúi ríkis-
stjórnarinnar
J
Jón Sigurðsson forstjóri Össurar
vandaði krónunni ekki kveðjurnar
á Viðskiptaþingi á miðvikudag, en
þar var hann aðalræðumaður. Sagði
Jón að með hina tvískiptu krónu sem
gjaldmiðil, verðtryggða og óverð-
tryggða, hefði þjóðin aldrei fast land
undir fótum. Enda sýnir margra ára-
tuga reynsla svo ekki verður
um villst að óstöðugleikinn
er það eina sem er stöðugt
við íslensku krónuna.
Benti Jón á að besta leiðin
til að auðgast á Íslandi sé sú
að vera á réttum stað þegar
fjármagnsflutningar verða í
þessu umhverfi.
Þegar Jón lét þau orð falla
hefur hann væntanlega ekki
gert ráð fyrir hversu hratt ný
og afgerandi sönnun yrði færð fyrir
þeim. Aðeins liðu nokkrar klukku-
stundir frá því hann lauk máli sínu
þar til Hæstiréttur kvað upp dóm um
lögmæti endurútreikninga gengisl-
ána. Dómurinn var skuldurum í hag.
Uppi stóðu sem sigurvegarar þeir
sem kusu að taka lán í erlendri mynt
– og losna þar með við verðtryggingu
og háa vexti krónulána – jafnvel þó
þeir hefðu ekki tekjur á móti í erlend-
um gjaldmiðlum og tóku því meðvit-
aða og upplýsta áhættu.
Allt bendir til þess að dómur
Hæstaréttar færi þessum skuldurum
tugmilljarða ávinning þar sem áhrif
tveggja stafa verðbólga undanfar-
inna ára á höfuðstól lána þeirra eru
þurrkuð út.
Eftir sitja hinir varfærnari, sem
tóku lán í íslenskum krónum og
sitja uppi með verðtryggingarbólg-
inn höfuðstól. Þeir voru ekki á rétta
staðnum, sem Jóni ræddi um í ræðu
sinni, og njóta því ekki þessarar tröll-
vöxnu tilfærslu. Þegar er hins vegar
hafin umræða hvort, og þá hvernig,
sé hægt að rétta hlut verðtryggðu
skuldaranna.
Þetta er í hnotskurn geggjaður
heimur íslensku krónunnar. Skal
engan undra að margir vilji losna úr
þeirri hörmungarvist. Þeirra á meðal
er Jón, sem í brýningu sinni til Við-
skiptaþings sagði óstöðugleikann í
boði krónunnar ekki ganga lengur og
óskaði eftir því að þeir sem vilja ekki
að Íslandi gangi í ESB og taki upp
Evru skuldi að benda á aðrar lausnir.
Því miður er ekki líklegt að sú ósk
Jóns rætist í nánustu framtíð sé eitt-
hvað að marka umræður á Alþingi
í gær. Þar spóluðu aðdáendur krón-
unnar í sömu förum og áður. Er engu
líkara en fall krónunnar, verðbólga
og neikvæð áhrifin á bókhald heim-
ila landsins, hafi alveg farið fram hjá
þeim.
Ómældum tíma og orku verður því
varið áfram um ófyrirséða tíð í glím-
una við efnahagsumhverfi þar sem
ómögulegt er að gera raunhæfar áætl-
anir fram í tímann. Jafnvel á bak við
gjaldeyrishöftin er krónan ekki stöð-
ug, eins og HS orka komst að þegar
félagið sat uppi með tæplega milljarðs
króna tap, þar sem félagið hafði ekki
reiknað með veikingu í skjóli hafta.
Það vekur undrun að einhverjum
finnist þetta ganga lengur.
Íslenska krónan
Geggjun í boði gjaldmiðils
Jón Kaldal
kaldal@frettatiminn.is
www.noatun.is
Fermingar-
veislur
Veisluþjónusta Nóatúns
býður upp á úrval af hlaðborðum
fyrir fermingarveisluna!
pantaðu veisluna þína á
2100
á mann
Verð frá
30 viðhorf Helgin 17.-19. febrúar 2012