Fréttatíminn - 17.02.2012, Síða 46
38 heilsa Helgin 17.-19. febrúar 2012
Forvarnir mikið óunnið verk
Á
sama tíma eru Íslendingar
á góðri leið með að verða
ein þyngsta þjóð í heimi
sem borðar hvorki meira
né minna en 52 kíló af
hreinum sykri á mann ári sem er með
því hæsta sem þekkist á byggðu bóli.
Ein af birtingarmyndum þessa er að við
borðum um 6000 tonn af sælgæti á ári
hverju. Ef sælgætinu er jafnað á mann-
skapinn þessar 320 þúsund hræður,
líka á gamalmenni og ungbörn sem
ekki komast út í búð að versla þá sam-
svarar það 118 grömmum á mann eða
sem nemur rúmlega tveimur stykkjum
af Snickers-súkkulaði á hverja einustu
manneskju hvern einasta dag ársins!
2,7 milljónir lyfjaávísana á 320
þúsund hræður á ári
Á síðasta ári voru skrifaðir út 2,7 millj-
ónir lyfjaávísanna á einstaklinga sam-
kvæmt upplýsingum frá Lyfjastofnun.
Sala lausasölulyfja er utan við þessa tölu.
Þetta þýðir á mannamáli að ef þessu er
jafnað út á þjóðina þá fær hver einasti Ís-
lendingur ávísað rúmlega 12 lyfseðlum á
ári, eða einu sinni í hverjum mánuði allt
árið um kring. Læknanám virðist ennþá
fyrst og fremst ganga út á að skrifa út
lyf og takast á við afleiðingar sjúkdóma
frekar en að reyna að koma í veg fyrir
þá. Hvatinn til að skrifa út lyf er mikill
því tilvist starfsins byggist á því að
stærstum hluta.
Ofneysla á sykri er mikið þjóðarböl
þar sem æ fleiri rannsóknir sýna fram á
tengsl milli offitu, sykurneyslu og lífs-
stílssjúkdóma. Þetta hefur aftur þær
afleiðingar að lyfjanotkun verður alltof
mikil. Það er því ekki ráðist að rótum
vandans heldur er um sannkallaðan
vítahring að ræða þar sem kostnaður
samfélagsins eykst og eykst. Og hver
á að borga? Er nokkuð ofsagt að segja
að einhvers staðar höfum við farið út af
sporinu?
Er yfirleitt einhverju fjármagni
veitt í forvarnir?
Þegar haft er samband við Landlæknis-
embættið sem hefur tekið yfir starfsemi
Lýðheilsustofnunar þá veit fólk þar á bæ
ekki hversu miklu er varið af fjármunum
ríkisins í forvarnir og fræðslu um mikil-
vægi góðs mataræðis og hreyfingar! Það
er ekki vitað er svarið! Málaflokkurinn
virðist því ekki vera til sem slíkur sem
gefur okkur góða innsýn í áherslur stjórn-
valda á þessu sviði. Á sama tíma erum
við að fara að byggja sjúkrahús uppá 100
milljarða af því að einhver stjórnmála-
maður taldi það rétt eftir að hann lagðist
inn og fannst aðstaðan ekki uppá nógu
marga fiska.
Það er ekki hægt að fljóta áfram
sofandi að feigðarósi. Ráðast þarf í sam-
bærilegt átak og ráðist var í hér á landi
til að draga úr reykingum. Þetta snýst
um fræðslu og aðgerðir af hálfu stjórn-
valda.
Bandaríkjamenn taka forystuna
kannski ekki að ástæðulausu
Bandarísk stjórnvöld hafa vaknað til lífs-
ins og fer þar Michelle Obama fremst í
flokki. Í New York telja ráðamenn að ráð-
ast þurfi að rótum vandans. Í þessu skyni
hefur verið hrundið af stað herferð gegn
neyslu sykraða drykkja í New York.
Birtar eru auglýsingar sem hafa það
markmið að hreyfa alvarlega við fólki
– þær eru sjokkerandi og er ætlað að
sýna fram á afleiðingar þess að drekka
of mikið af sætum eða sykruðum gos-
drykkjum. Hér gefur að líta eina slíka
auglýsingu. Drengurinn á auglýsing-
unni missti annan fótinn vegna þess að
hann fékk áunna sykursýki. Auglýsingin
hefur vakið hörð viðbrögð en það er ein-
mitt markmiðið. Fá umræðu um hlutina
til að vekja almenning til umhugsunar
um hvað við erum að gera börnunum og
okkur sjálfum. Margir munu ekki láta
þetta á sig fá en þannig er það líka
- sumum er ekki viðbjargandi. Ný kyn-
slóð mun hins vegar vaxa úr grasi og hún
á betra skilið en vera alin upp á sykruðum
morgunmat, gosdrykkjum og sælgæti.
Ráðumst að rótum vandans og
breytum nálguninni
Það er því ekki einkamál fólks að taka
ákvörðun um að raða í sig fæðu sem
inniheldur mikinn sykur því reikningur-
inn endar oftar en ekki hjá almennum
skattborgurum. Hvernig væri ef íslensk
stjórnvöld myndu setja af stað herferð af
svipuðu tagi og gert var gegn reyk-
ingum á sínum tíma og bar einstaklega
góðan árangur.
Það er dapurt ef stjórnmálamenn
treysta sér til að verja 100 milljörðum
króna til að byggja nýtt sjúkrahús en láta
lítið ef nokkuð renna til fræðslu og for-
varna á þessu sviði. Ein besta leiðin til
að koma í veg fyrir að þjóðfélagið muni
sligast undan velferðarkostnaði sem
fylgir lífsstílssjúkdómum er að beita
fræðslu og forvörnum.
Hver Íslendingur innbyrðir 52
kíló af sykri á ári að meðaltali
Þjóðin gengur fyrir sykrum og lyfjum. Hver landsmaður fékk að jafnaði ávísað lyfseðli á mánaðarfresti.
Kristján Vigfússon
kennari í Háskólanum
í Reykjavík
Þórdís Sigurðardóttir
félagsfræðingur og
heilsuráðgjafi hjá IIN
... æ fleiri
rann-
sóknir
sýna fram
á tengsl
milli
offitu,
sykur-
neyslu
og lífs-
stílssjúk-
dóma.