Fréttatíminn - 17.02.2012, Blaðsíða 52
Fyrsti hluti síðari Stjörnustríðsþrí-
leiks George Lucas, The Phantom
Menace, birtist aðdáendum eldri
geimóperunnar árið 1999, eftir
sextán ára bið eftir framhaldi af
ævintýrum sem gerðust fyrir langa
löngu í vetrarbraut langt, langt í
burtu.
Vonbrigðin voru gríðarleg.
Töfrum, f jöri og klisjukenndri
(en dásamlegri) dramatík gömlu
myndanna virtist hafa verið sturt-
að beint ofan í botnlaust gímald
saarlac á Tatooine, og eftir stend-
ur þvæld moðsuða leiðinlega póli-
tískra plotta, óþolandi krakki að
leika Anakin Skywalker, tölvugerði
viðbjóðurinn Jar Jar Binks og svo
var Mátturinn, þetta undarlega afl
sem bindur allt líf í vetrarbrautinni
saman, orðinn að einhvers konar
blóðsjúkdómi. Einhverju sem hægt
er að mæla í hverjum og einum með
því að telja blóðkorn eða eitthvað
álíka gáfulegt.
Sjarmanum hafði semsagt verið
skipt út fyrir seigdrepandi loðmullu
og steingeldar tölvubrellur; Yoda er
eðlilegri sem brúða með lúkuna á
Frank Oz upp í rassgatinu á sér en
sú sálarlausa flatneskja sem hús-
karlar Lucas hjá ILM tölvugerðu
fyrir nýju myndirnar.
Ljósu punktarnir eru fáir. Natalie
Portman er undurfögur og heillandi
Amidala, Ewan McGregor fann
sig vel sem Obi-Wan en fékk ekki
úr nógu miklu að moða frekar en
Darth Maul sem er frábært og töff
illmenni en skammarlega vannýtt-
ur í myndinni. Kletturinn í þessum
þvælingi öllum saman er svo Liam
Neeson sem Jedi-meistarinn Qui-
Gon Jinn.
Geislasverðabardagarnir voru
líka flottir sem og kappreiðar í anda
Ben-Húr þar sem Anakin litli fær
að sýna hvað í honum býr í atriði
sem er eins og hannað fyrir tölvu-
leik. Þetta nýtur sín svosem ágæt-
lega í þrívídd en The Phantom Me-
nace lagast samt ekkert við það að
þriðju víddinni er bætt við. Jar Jar
er þarna ennþá, sagan er jafn þvæld
og asnaleg og einhvern veginn hefði
maður haldið að Lucas og fólk hans
hjá ILM hefði getað gert þrívíddina
betur þótt kraftaverk hefði þurft til
þess að fela þá staðreynd að Lucas
er vonlaus sögumaður.
Samt nauðsynlegt að sjá Star
Wars í bíó, þetta er einhvern veg-
inn þriðja víddin á þeim heimi öllum
sem á bara eftir að batna á næstu
árum þegar eldri myndirnar koma
í þrívídd hver af annarri.
Þórarinn Þórarinsson
44 bíó Helgin 17.-19. febrúar 2012
Þ rívíðri endurútgáfu The Lion King var mjög vel tekið enda hafði myndin ekki misst neitt af þeim töfrum sem hún
hafði við frumsýningu árið 1994. Aðsóknin
á endurútgáfuna var með allra besta móti
og Disney er því eðlilega komið á bragðið
og fylgir The Lion King nú eftir með The
Beauty and the Beast. Myndin var frumsýnd
fyrir rúmum tuttugu árum árið 1991 og sló í
gegn bæði hjá áhorfendum og gagnrýnend-
um. Fríða og Dýrið hefur frá frumsýningu
til þessa dags skilað 423 milljónum dollara,
rúmum 52 milljörðum íslenskra króna, í
miðasölu út um allan heim.
Fríða og Dýrið var fyrsta teiknimyndin
í sögunni sem hlaut tilnefningu til Óskars-
verðlaunanna sem besta myndin auk þess
sem hún var tilnefnd í fimm öðrum flokkum;
fyrir bestu tónlistina, besta hljóð, auk þess
sem þrjú lög úr myndinni fengu tilnefningu.
Myndin hlaut síðan tvenn verðlaun; fyrir
bestu tónlist og besta lagið, The Beauty and
the Beast. Myndin hlaut Golden Globe-verð-
launin sem besta myndin í flokki söngleikja-
eða gamanmynda og hirti tvo aðra hnetti
fyrir tónlist.
Sagan um Fríðu og Dýrið er sígild ævin-
týri sem kom fyrst út í Frakklandi árið 1740
undir titlinum La Belle et la Bête. Þekktasta
útgáfan er stytting á sögunni sem kom fyrst
á prenti 1756 og ári síðar í enskri þýðingu.
Disney-myndin byggir á þessu gamla ævin-
týri auk þess sem sótt er í samnefnda kvik-
mynd frá árinu 1946.
Eftir að teiknimyndin sló í gegn fyrir
tveimur áratugum hefur hún gengið enda-
laust í myndbandstækjum og DVD-spil-
urum ótal heimila um allan heim þannig að
sagan flestum kunn. Myndin segir frá hinni
ungu og fögru Belle sem annast roskinn
og ringlaðan föður sinn og reynir að halda
aftur af taumlausu áreiti hins hrokafulla og
leiðinlega Gaston sem ætlar ekki að hætta
fyrr en hann nær að festa sér stúlkuna með
hjónabandi. Einhverja óveðursnóttina villist
Belle úti í skógi og leitar skjóls í kastala.
Þar ræður ríkjum heldur skapstyggt og
ófétislegt skrímsli sem gerir öðrum íbúum
kastalans, lifandi og talandi húsgögnum og
búsáhöldum, lífið leitt með skapofsa sínum.
Belle kemst að því að skrímslið er í raun
prins í álögum og það sama gildir um hús-
gögnin og eldhússáhöldin sem eru í raun
þjónustufólk Dýrsins. Galdranorn sem prins-
inn hafði sýnt hroka og dólgslega framkomu
hneppti allt heila galleríið í álög til þess að
kenna prinsinum mannasiði. Álögunum verð-
ur því ekki aflétt fyrr en Dýrið lærir að elska
og fá manneskju til þess að elska sig. Útlitið
er því síður en svo bjart þegar Belle villist
inn í þunglyndislegan heim Dýrsins. Hús-
búnaðurinn sér sér þó leik á borði og reynir
að tendra ástarneista milli Fríðu og Dýrsins.
Dýrið eygir einnig útkomuleið í Belle og
heldur henni fanginni í kastalanum í þeirri
von um að hún muni heillast af sér. Frekar
hæpið. En eftir því sem kynni þeirra verða
nánari vakna tilfinningar í hjörtum beggja.
Aðrir miðlar: Imdb: 8.0, Rotten Tomatoes: 92%.
Fríða og Dýrið EnDursýnD í ÞrívíDD
Þótt teiknimyndarisinn Disney sé misvel þokkaður og muni seint fá Bleikan stein frá Femínista-
félagi Íslands fyrir ötula baráttu gegn staðalímyndum þá verður ekki af fyrirtækinu tekið að
það hefur heillað og skemmt börnum og foreldrum í 75 ár með áferðarfögrum teiknimyndum.
Þær eru því ófáar perlurnar sem leynast í safni Disney en fyrirtækið er byrjað að dusta rykið af
þeim fallegustu og endursýna á breiðtjaldi í þrívídd. Þannig fékk ný kynslóð að kynnast Konungi
ljónanna nýlega og nú er röðin komin að Fríðu og Dýrinu.
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
bíó
Ástir dýrs og stúlku
FrumsýnDar
Einhverja
óveðurs-
nóttina
villist
Belle úti
í skógi
og leitar
skjóls í
kastala.
BíóDómur star Wars EpisoDE i: thE phantom mEnacE 3D
Extremely Loud
and Incredibly Close
Ágætis mannskapur er hér samankominn,
Jeffrey Wright, John Goodman, Max von
Sydow, Sandra Bullock og Tom Hanks, í mynd
um hinn unga og uppátektasama Óskar. Þegar
faðir hans lætur lífið í árásunum á
Tvíburaturnana í New York er Óskar
þess fullviss að á bak við missi hans
leynist sérstök ástæða sem hann
verði að finna út úr hver er. Dular-
fullur lykill sem faðir hans hafði átt
leiðir Óskar síðan áfram í leit sinni að
skránni sem lykillinn gengur að enda
sannfærður um að þar sé svörin sem
hann leitar að finna.
Í ástum og stríði...
Tveir ungir og upprennandi töffarar,
Chris Pine og Tom Hardy, leiða saman
hesta sína í This Means War þar sem
þeir takast harkalega á um ástir Reese
Witherspoon. Hún leikur unga konu
sem bregður á það varhugaverða ráð að
reyna að finna hinn eina sanna á Netinu.
Hún er fljótt komin með tvo álitlega í
sigtið sem báðir hafa mikinn áhuga á því
að kynnast henni betur. Svo illa vill til að
vonbiðlarnir eru nánir vinir og þrautþjálf-
aðir leyniþjónustumenn sem eru mun
sterkari á svellinu í átökum við alþjóðlegt
glæpahyski en ástarbasl. Þegar þeir
félagar átta sig á því að þeir eru á eftir
einu og sömu konunni fer allt í rugl og þessir vopnabræður berjast með öllum til-
tækum ráðum við að hafa hinn undir í baráttunni um stúlkuna. Chris Pine gerði það
gott fyrir örfáum árum í hlutverki skipstjórans goðsagnakennda Kirk á geimskipinu
Enterprise í nýju Star Trek myndinni og Hardy hefur verið á fleygiferð undanfarið;
var frábær senuþjófur í Inception, grjótharður í Warrior og fáir efast um annað en að
hann verði magnaður sem aðalillmennið Bane í The Dark Knight Rises í sumar.
Seigdrepandi loðmulla
A Few Best Men
Félagarnir David, Graham, Tom og
Luke taka lífið ekkert of alvarlega
og sjá enga ástæðu til þess. Þegar
David tilkynnir félögunum að hann
hafi fundið þá einu réttu og ætli að
ganga í hjónaband renna því eðlilega
tvær grímur á hina félagana. Þeir
láta sig þó hafa það að dröslast alla
leið til Ástralíu í brúðkaupið og þá
fyrst byrjar vitleysan fyrir alvöru.
Sú gamla stjarna, sem skein hvað
skærast í Grease og Xanadu fyrir
margt löngu, Olivia Newton-John,
er á meðal leikara í myndinni.
Fríða lendir í klóm Dýrsins en eftir brösótta byrjun kvikna tilfinningar á milli þeirra.
Tveir ungir á uppleið, Hardy og Pine.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
0
9
-1
4
8
5