Fréttatíminn


Fréttatíminn - 17.02.2012, Side 56

Fréttatíminn - 17.02.2012, Side 56
Helgin 17.-19. febrúar 201248 tíska H ælasíðir kjólar er vinsæl flík á rauða dreglinum um þessar mundir; níðþröngir kjólarnir sem eru einfaldir í sniðinu og hylja þeir næstum allan líkamann. Öllum helstu aukahlutunum er sleppt og er hönnunin eins stílhrein og hægt er að hafa hana. Whitney flytur til Bretlands Raunveruleikastjarnan og fatahönnuður- inn Whitney Port er að flytja til Bretlands á næstu vikum þar sem hún mun verða dómari í sjónvarpsþættinum Britain & Ireland’s Next Top Model. Á síðustu mánuðum hefur Whitney unnið sig hratt upp í tískuheiminum og er nú orðin virtur fatahönnuður sem stjórnar sínu eigin tísku- húsi. Hún segir þetta mikinn stökkpall og gott tækifæri en þau eru ekki á hverju strái. Hún er spennt að fá að vinna með þeim stórum nöfnum innan tískubransans sem koma að gerð þáttarins. Rapparinn og nú fatahönnuðurinn Kanye West langar til að hanna fatalínu fyrir konur á vegum breska tískuhússinhs Topshop. Hann hefur fundað oft með helsta hönnuði fyrir- tækisins, Sir Philip Green, upp á síðkastið og virðist sem niðurstöðu sé að vænta. Að- stoðarmaður Green segir að Kanye muni ekki hanna fatnað í líkingu við þann sem hann sýndi á tískupöllunum í haust heldur mun hann taka nýja stefnu með öðrum áherslum – gera kvenlegri og fágaðri fatnað. Árið 2009 varð draumur fyrirsætunnar Kylie Bisutti að veruleika þegar hún vann fyrirsætukeppni sem kom henni á tískupall undirfatafyrirtækisins Victoria’s Secret. Alls voru tíu þúsund stelpur sem tóku þátt í keppninni en Kylie stóð uppi sem sigur- vegari. Hún hefur verið andlit fyrirtækisins ásamt fleiri þekktum fyrirsætum í þrjú ár en ákvað að segja upp draumastarfinu nú í vikunni. Kom það mörgum í opna skjöldu. „Þetta starf stangast á við trú mína. Ég er strangtrúaður kaþólikki og trúi því að líkaminn minn sé aðeins ætlaður eiginmanninum mínum,“ sagði hin 21 árs fyrirsætan í viðtali við tískutímaritið Vogue. Hún gifti sig árið 2009. „Ég vill vera betri fyrirmynd fyrir ungar stelpur og því hef ég ákveðið að leggja starfið á hilluna.“ Sérhannar kjóla fyrir Óskarinn Fyrrum kryddpían Victoria Beckham leggur nú dag við nótt til að uppfylla beiðnir frá frægum leikkonum um sem vilja að hún hanni fyrir sig kjóla í tæka tíð fyrir Óskars- verðlaunahátíðina. Charlize Theron, Gwyneth Paltrow og Carmeron Diaz hafa allar beðið um sérhannaðan kjól frá kryddpíunni og reynir hún eftir fremsta megni að uppfylla kröfur þeirra. „Þetta er eitt af mínum stærstu verkefnum sem hönnuður,“ segir kryddpían í viðtali við tímaritið Vogue. „Tískuhúsið er enn lítið og fáir starfs- menn koma að starfseminni. Það er því meiri álag á okkur en stóru tískuhúsunum sem hafa ómælt fjármagn og nóg að starfsmönnum til að sérhanna kjóla á stjörnurnar. Yfirleitt láta stjörnurnar nokkur tískuhús hanna á sig kjóla sérstaklega fyrir svona stóra viðburði og ákveða svo ekki fyrr en á hátíðardaginn hverju þær vilja klæðast. Því er bara að vonast til að vinnan okkar hér verða ekki til einskis og þær klæðist hönnun frá okkur án mikilla athugasemda.“ Einfaldir og stílhreinir kjólar vinsælir Leikkonan Amber Heard Hótelerfinginn Paris Hilton Leikkonan Olivia Munn Leikkonan Jessiva Biel Allra augu beindust að söngkonunni Rihönnu á Grammy verðlaunahátíð- inni sem haldin var síðast- liðna helgi. Söngkonan mætti gullfalleg sem aldrei fyrr, í svörtum, vel flegnum kjól með hárri klauf og beru baki. Það sem vakti helst athygli var að sjálf hannaði hún kjólinn með aðstoð hönnuða tískurisans Armani. Sönkonan hefur unnið að mörgum verkefnum í samstarfi við fyrirtækið og segja tískuspekúlantar að þessi kjóll mun koma henni á kortið sem fatahönnuður. Við kjólinn klæddist hún Bis Un Bout skóm frá hönnuðnum Christian Louboutin og gylltri handtösku sem án efa hefur kostað sitt. Hannaði Grammy- kjólinn sjálf Stefnir á að hanna fyrir Topshop Kylie hættir vegna trúar sinnar

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.