Fréttatíminn - 17.02.2012, Qupperneq 58
Þ egar litli stubbur, svona um fjögurra ára gamall, sem sat á bekk fyrir aftan mig, nánast í eyra mínu á 3.
sýningu Góa og baunagrassins á Litla sviði
Borgarleikhússins síðast liðinn sunnudag,
hóf upp bjarta og háa rödd sína og endurtók
úr upphafsávarpi Góa: „Leikhústöfrasýn
ing, mamma!“ – leist mér strax vel á. En,
sá stutti færðist í aukana, á milli annarrar
hverrar replikku klukkustundar langrar
sýningar gall við þessi bjarta háa rödd með
spurningu: „Akkuru, akkuru, akkuru,
mamma?“ Og móðirin útskýrði þolinmóð
fyrir syni sínum svona það helsta sem fyrir
augu bar.
Gói og baunagrasið byggir á ævintýri
H.C. Andersen: Gói fer til markaðar að selja
belju heimilisins sem er komið á heljarþröm
en hittir hrapp á leiðinni sem kaupir af
honum kusu fyrir 3 baunir. Heim kominn,
eftir skammir og vonbrigði móðurinnar,
hendir Gói baununum í túnfótinn, sprettur
upp baunagras og nær alla leið upp til skýja.
Upp grasið prílar Gói og hafnar á heimili
risa, stelur öllu verðmætu sem risinn á;
peningum, gullhænu og töfrahörpu. Og
allt endar vel, eða fyrir Góa og mömmu
hans – ekki fyrir risann. Vitaskuld algjör
skítamórall en smellpassar einhvern veginn
inn í hið íslenska viðhorf, allt í lagi að spila
rassinn úr buxunum því það má þá alltaf
fara og stela frá einhverjum ljótum risum
og redda málunum. En sennilega er það nú
svo að ævintýri H.C. Andersen lifa góðu lífi
einmitt af því að þau nærast ekki á móral
iseringum eða pólitískri rétthugsun.
Gói, leikur Jóa en Þröstur Leó allt hitt;
mömmuna, risann og allar fígúrur sem á
vegi Góa verða. Þeir brillera þessir flinku
leikarar báðir tveir. Gói er helsta stjarnan
meðal ungu kynslóðarinnar, ég hef eftir
áreiðanlegum heimildum að hann sé á
toppnum þar ef frá er talinn Sveppi. Og
ótvíræða hæfileika Þrastar þekkja allir sem
fylgst hafa með íslensku leikhúsi; hann
bregður upp skýrum persónueinkennum á
svipstundu með hjálp leikgerva. Sýningin
er lögð upp þannig að Þröstur skiptir um
búninga ýmist á sviðinu eða baksviðs en
það verður aldrei sjúskað því uppleggið
og jafnvægið milli þess að vera frjálslegt
í frásögn og svo vel stíliseruðum atriðum
var fínt – atriðin eru meðal annars brotin
upp með því að Gói ávarpar salinn áreynslu
laust, þeir bresta í söng og stíga við dans –
ef eitthvað er mættu þeir skerpa á kóreó
grafíunni, þetta eru þakklát uppbrot, þá er
hækkað í sendimækum og stubbur áður
nefndur og móðir hans ekki eins afger
andi í sýningunni. Hugsanlega mætti hafa
sendimækana opna einnig í leiknum, ekki
vegna lélegrar framsagnar heldur vegna ...
litla gæjans. Ekki var annað að sjá en yngri
áhorfendur skemmtu sér hið besta og skot
ið er inn hnyttnum skírskotunum í heim
þeirra fullorðnu svo engum þarf að leiðast.
Þeir Þröstur og Gói eru skráðir fyrir leik
stjórn, Gói leikgerð og þó aðeins séu tveir
leikarar er þetta síður en svo fátækleg eða
nískuleg sýning; hún einkennist af hug
kvæmni og snjöllum leikhúslausnum. Mega
allir sem að koma að málum vera ánægðir
með sig og ekki er hægt annað en gefa
þessari sýningu bestu meðmæli. Svo vill í
það minnsta förunautur minn, sem er tíu
ára og sérfróð á sviði barnaleiksýninga,
gera og gefur sýningunni fjórar stjörnur.
Ég hlýði því þó það megi kannski heita vel
í lagt.
Jakob Bjarnar Grétarsson
Niðurstaða: Snjöll og fjörug útfærsla á
sígildu ævintýri og ætti enginn að þurfa að
láta sér leiðast.
Gói og baunagrasið
Leikgerð byggð á ævintýri H.C.Andersen eftir Guðjón Davíð Karlsson
Leikstjórn: Guðjón Davíð Karlsson og Þröstur Leó Gunnarsson
Borgarleikhúsið
Þetta al-
gjör skíta-
mórall
en smell-
passar
einhvern
veginn
inn í hið
íslenska
viðhorf,
allt í lagi
að spila
rassinn úr
buxunum
því það
má þá
alltaf fara
og stela
frá ein-
hverjum
ljótum
risum og
redda
málunum.
Leikdómur Gói oG baunaGrasið borGarLeikhúsinu
Akkuru, akkuru, akkuru?
Gói og Þröstur
leika sér að þessu;
Gói sem ein helsta
stjarna meðal
yngri kynslóðar-
innar og enginn
þarf að efast um
hæfileika Þrastar.
TónLisT 55 ára afmæLisTónLeikar
Kammermúsíkveisla í Hörpu
Kammerhópurinn Camerarctica
og sópransöngkonan Marta Guð
rún Halldórsdóttir koma fram á
vegum Kammermúsíkklúbbsins í
Norðurljósasal Hörpu á sunnudag
inn. Þetta eru fimmtu og síðustu
tónleikar klúbbsins þetta starfsárið
og um leið hvorki meira né minna
en 55 ára afmælistónleikar hans. Á
efnisskránni er meðal annars bar
okk og Bartók.
Fyrstu tónleikar Kammermúsík
klúbbsins fóru fram 7. febrúar 1957.
Síðan þá hefur klúbburinn starfað
sleitulaust að því að kynna Íslend
ingum það besta og fallegasta sem
kammertónlistin hefur upp á að
bjóða og verið ómissandi vettvang
ur fyrir fremstu hljóðfæraleikara
landsins auk fjölmargra erlendra
gesta sem heimsótt hafa klúbbinn
í áranna rás. Tónleikar klúbbsins
fóru fram í samkomusal Melaskól
ans fyrstu árin en á árabilinu 1965
til 86 kom klúbburinn víða við og
hélt meðal annars tónleika í Kenn
araskólanum við Stakkahlíð, Há
teigskirkju, Norræna húsinu og á
Kjarvalsstöðum. Frá árinu 1986
hefur klúbburinn átt fast tónleika
aðsetur í Bústaðakirkju, en hugsar
sér nú til hreyfings og heldur sem
sé á sunnudaginn kemur fyrstu
tónleika sína í Norðurljósum, en
sá salur Hörpur var hannaður sér
staklega með kammertónlist í huga.
Tónleikarnir hefjast klukkan 19.30.
67%
... kvenna á höfuðborgar-
svæðinu lesa Fréttatímann*
*konur 25 – 80 ára
á höfuðborgarsvæðinu.
Capacent okt.-des. 2011
Galdrakarlinn í Oz –HHHHH KHH. Ftími
Fanný og Alexander (Stóra sviðið)
Fös 17/2 kl. 20:00 9.k Sun 4/3 kl. 20:00 aukas Sun 18/3 kl. 20:00 aukas
Fim 23/2 kl. 20:00 aukas Fim 8/3 kl. 20:00 Fös 23/3 kl. 20:00
Fös 24/2 kl. 20:00 10.k Fös 9/3 kl. 20:00 Sun 25/3 kl. 20:00 aukas
Lau 25/2 kl. 20:00 aukas Sun 11/3 kl. 20:00 aukas Lau 31/3 kl. 20:00 lokas
Fim 1/3 kl. 20:00 11.k Fim 15/3 kl. 20:00 aukas
Fös 2/3 kl. 20:00 12.k Lau 17/3 kl. 20:00
Hin stórbrotna fjölskyldusaga loks á svið. Sýningum lýkur í mars
Galdrakarlinn í Oz (Stóra sviðið)
Lau 18/2 kl. 14:00 Sun 26/2 kl. 14:00 Sun 18/3 kl. 14:00
Sun 19/2 kl. 14:00 Sun 4/3 kl. 14:00 Sun 25/3 kl. 14:00
Lau 25/2 kl. 14:00 Sun 11/3 kl. 14:00
Einn vinsælasti fjölskyldusöngleikur allra tíma
NEI, RÁÐHERRA! (Stóra sviðið og Menningarhúsinu Hofi)
Lau 18/2 kl. 20:00 Lau 10/3 kl. 19:00 Fös 16/3 kl. 19:00
Lau 3/3 kl. 21:00 Lau 10/3 kl. 22:00 aukas Fös 16/3 kl. 22:00
Gríman: Áhorfendasýning ársins 2011. Í Borgarleikhúsinu í febrúar og Hofi í mars
Eldhaf (Nýja sviðið)
Fös 17/2 kl. 20:00 9.k Sun 26/2 kl. 20:00 aukas Fim 8/3 kl. 20:00
Sun 19/2 kl. 20:00 10.k Mið 29/2 kl. 20:00 13.k Fös 9/3 kl. 20:00
Fim 23/2 kl. 20:00 11.k Fim 1/3 kl. 20:00 14.k Sun 11/3 kl. 20:00
Fös 24/2 kl. 20:00 12.k Fös 2/3 kl. 20:00 15.k Fim 15/3 kl. 20:00
Lau 25/2 kl. 20:00 aukas Sun 4/3 kl. 20:00 16.k Sun 18/3 kl. 20:00
Ath! Snarpur sýningartími. Sýningum lýkur í mars
Axlar - Björn (Litla sviðið)
Lau 18/2 kl. 20:00 9.k Sun 26/2 kl. 20:00 Fim 15/3 kl. 20:00
Sun 19/2 kl. 20:00 Sun 4/3 kl. 20:00 Fim 22/3 kl. 20:00
Lau 25/2 kl. 20:00 Fim 8/3 kl. 20:00
Nýtt verk úr smiðju Vesturports. Síðustu sýningar
Saga Þjóðar (Litla sviðið)
Fös 17/2 kl. 20:00 Fös 2/3 kl. 20:00 Lau 10/3 kl. 20:00
Fim 23/2 kl. 20:00 Lau 3/3 kl. 20:00
Fös 24/2 kl. 20:00 Fös 9/3 kl. 20:00
Íslandssagan á hundavaði í tónsjónleik með Hundi í óskilum. Á Stóra sviðinu 11/2
Gói og baunagrasið (Litla sviðið)
Lau 18/2 kl. 13:00 3.k Lau 25/2 kl. 14:30 aukas Sun 11/3 kl. 14:30
Sun 19/2 kl. 13:00 4.k Sun 26/2 kl. 13:00 Sun 18/3 kl. 13:00
Sun 19/2 kl. 14:30 aukas Sun 4/3 kl. 13:00 Sun 25/3 kl. 13:00
Lau 25/2 kl. 13:00 5.k Sun 11/3 kl. 13:00
Leikhústöfrar með Góa og Þresti fyrir börn á öllum aldri
Mínus 16 (Stóra sviðið)
Sun 19/2 kl. 20:00 3.k Sun 26/2 kl. 20:00 4.k Lau 10/3 kl. 20:00
Mið 22/2 kl. 20:00 Lau 3/3 kl. 20:00
Íslenski Dansflokkurinn - Verk eftir rokkstjörnu dansheimsins Ohad Naharin
KirsuberjagarðurinnKirsuberjagarðurinn
Heimsljós (Stóra sviðið)
Lau 18.2. Kl. 19:30 14. sýn.
Sun 19.2. Kl. 19:30 15. sýn.
Lau 25.2. Kl. 19:30 16. sýn.
Sun 26.2. Kl. 19:30 17. sýn.
Fim 8.3. Kl. 19:30 19. sýn.
Mið 14.3. Kl. 15:00 AUKAS.
Sun 19.2. Kl. 13:30
Sun 19.2. Kl. 15:00
Sun 26.2. Kl. 17:00
Sun 4.3. Kl. 13:30
Sun 4.3. Kl. 15:00
Litla skrímslið og stóra skrímslið í leikhúsinu (Kúlan)
Ö
Ö Ö
Ö
Ö
Ö
Ö U
U
Fös 2.3. Kl. 19:30 Fors.
Lau 3.3. Kl. 19:30 Frums.
Fös 9.3. Kl. 19:30 2. sýn.
Lau 10.3. Kl. 19:30 3. sýn.
Sun 11.3. Kl. 19:30 4. sýn.
Fös 16.3. Kl. 19:30 5. sýn.
Lau 17.3. Kl. 19:30 6. sýn.
Sun 18.3. Kl. 19:30 7. sýn.
Fös 23.3. Kl. 19:30 8. sýn.
Lau 24.3. Kl. 19:30 9. sýn.
Sun 25.3. Kl. 19:30 10. sýn.
Mið 28.3. Kl. 19:30 11. sýn.
Fim 29.3. Kl. 19:30
Fös 30.3. Kl. 19:30 12. sýn.
Lau 31.3. Kl. 19:30 AUKAS.
Sun 1.4. Kl. 19:30 13. sýn.
Fim 12.4. Kl. 19:30 14. sýn.
Fös 13.4. Kl. 19:30 AUKAS.
Lau 14.4. Kl. 19:30 AUKAS.
Sun 15.4. Kl. 19:30 15. sýn.
Fös 20.4. Kl. 19:30 AUKAS.
Lau 21.4. Kl. 19:30 16. sýn.
Sun 22.4. Kl. 19:30 17. sýn.
Les Misérables – Vesalingarnir (Stóra sviðið)
Dagleiðin langa (Kassinn)
Fös 17.2. Kl. 20:00 AUKAS. Fös 17.2. Kl. 23:00 AUKAS.
Ö
Ö
Ö
U U U
U U
U
U U
U U
U U
U
U
U
U
U
Fös 24.2. Kl. 19:30 Frums.
Mið 29.2. Kl. 19:30 2. sýn.
Fim 1.3. Kl. 19:30 3. sýn.
Fös 2.3. Kl. 19:30 4. sýn.
Lau 3.3. Kl. 19:30 5. sýn.
Mið 7.3. Kl. 19:30 6. sýn.
Fös 9.3. Kl. 19:30 7. sýn.
Lau 10.3. Kl. 19:30 8. sýn.
Sun 11.3. Kl. 19:30 9. sýn.
Fös 16.3. Kl. 19:30 10. sýn.
Lau 17.3. Kl. 19:30 11. sýn.
Sun 18.3. Kl. 19:30 12. sýn.
U U
U
U
U
U U U
Ö
Ö
Ö
Ö
Ég er vindurinn (Þjóðleikhúskjallarinn)
Sun 19.2. Kl. 19:30 6. sýn. Mán 20.2. Kl. 19:30 7. sýn.
Uppistand – Mið-Ísland (Stóra sviðið)
Fim 15.3. Kl. 19:30 Síð.sýn.
.
Sun 19.2. Kl. 17:00
Sun 26.2. Kl. 13:30
Sun 26.2. Kl. 15:00
AUKAS.
U
Sjöundá (Kúlan)
Fös 17.2. Kl. 19:30 Frums.
Lau 18.2. Kl. 19:30 2. sýn.
Lau 25.2. Kl. 19:30 3. sýn.
Sun 4.3. Kl. 19:30 4. sýn.
Fim 8.3. Kl. 19:30 5. sýn.
Mið 14.3. Kl. 19:30 6. sýn.
Fös 27.4. Kl. 19:30 18. sýn.
U
U
U
U
Fös 24.2. Kl. 19:30 8. sýn.
50 menning Helgin 17.-19. febrúar 2012