Fréttatíminn


Fréttatíminn - 17.02.2012, Qupperneq 60

Fréttatíminn - 17.02.2012, Qupperneq 60
 Plötudómar dr. gunna Elabórat  GP! Römmum rústað Guðmundur Pétursson (GP!) hefur lengi verið einn helsti gítarleikari landsins. Hann stígur nú fram í ann- að skipti með sólóplötu, en sú fyrri, hin þyngslalega Ologies kom út 2008. Enn er tónlistin ósungin og Guðmundur að spila tónlist algjörlega út frá eigin forsendum. Hann gerir það sem honum dettur í hug, lögin eru tilraunakennd, mjög fjölbreytt og fara ítrekað í óvæntar og spennandi áttir þar sem römmum er rústað. Erfitt er því að troða Guðmundi í flokk: Hér gæti sumt hlaupið á djassvellinum, margt er í ætt við góða kvikmyndatónlist, enn annað er stökkbreytt rokk með gítarriffum og fíniríi. Niðurstaðan er spenn- andi músík, vel ígrunduð, feikivel flutt og alveg þræl- skemmtileg. the Vintage Caravan  The Vintage Caravan Framtíðarmenn Hljómsveitin The Vintage Caravan er skipuð strákum sem enn eiga nokkur ár í tvítugt. Þeir hafa samt spilað saman lengi, orðið þéttari í bílskúrnum og sóttu þriðja sætið í Músíktilraunir 2009. Þeir eru allir í gamla góða hipparokkinu og taka meistara eins og Hendrix, Zeppelin og Cream sér til fyrirmyndar. Strákarnir eiga það til að gleyma sér í full löngum riff-endurtekningum og innlifunar-sólóum og þá líður manni dálítið eins og maður sé bundinn ofan í stól í bílskúrnum hjá þeim á endalausri æfingu. Þeir mættu skera djamm-fituna af og skerpa á laglínunum. Margt er samt flott, Wild Child og Going Home eru bestu lögin, töff og hress- andi. Það er fullljóst að þetta eru framtíðarmenn þótt þeir séu að spila for- tíðarmúsík. distance  Steve Sampling Tískusýningar- diskó Rafútgáfan Möller kennir sig við diskódísina Helgu Möller en hefur samt ekki fengist við diskó til þessa. Sá sem hysjar upp um sig diskóbuxurnar er Steve Sampling (Stefán Ólafsson), en hann hefur áður gert fjórar sólóplötur í hip hop raf-bræðslugír. Distance inniheldur fjögur lög. Titil- lagið er snyrtilega sungið á kynþokkafullan hátt af Braga Eiríki Jóhannssyni, en annars er músíkin ósungin með radd-sömplum. Þetta er ágætis stöff, fágað og áferðarfallegt og vel til þess fallið að spilast í tískubúð eða við tískusýningu. Það er alllangt í grípandi eyrna- tyggjó og meira lagt upp úr fljótandi en þó taktföstum fílingi. Steve kann þetta. Nálgist gripinn rafrænt á www.mollerrecords.com. ORMSSON · LÁGMÚLA 8 · 2. HÆÐ · REYKJAVÍK · SÍMAR 530 2819 / 530 2821 · www.hth.dk Opið virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga frá kl. 11-15 2. LAGERVARA OG ÓSAMSETT Láttu Draumaeldhúsið þitt verða að veruleika með HTH 1. SÉRPANTAÐ OG SAMSETT Veldu réttu innréttinguna fyrir heimilið þitt. HTH er hágæða dönsk framleiðsla og þú hefur 2 valkosti! HTH FRAMLEIÐIR INNRÉTTINGAR Í: · ELDHÚS · BAÐHERBERGI · ÞVOTTAHÚS OG SKÁPA Í ÖLL HERBERGI Persónuleg og góð þjónusta Viltu að við hönnum sérstaklega fyrir þig nýju eldhús- eða bað- innréttinguna – án greiðslu? Viltu fá faglegar ráðleggingar við endurnýjun innréttinga og svo pottþétt verðtilboð? Endilega komdu þá í heimsókn! 5 ára ábyrgð á vöru og virkni 12 mánaða vaxtalaus staðgreiðslulán Leiksýning fyrir börn frá 4 ára aLdri höfundur HELGA ARNALDS leikstjórn CHARLOTTE BØVING tónlist EIVØR PÁLSDÓTTIR Leikhúsið 10 fingur Miðapantanir á midi.is og í Norræna húsinu s: 551 7030 Nánari upplýsingar á tiufingur.is Sýningar í Norræna húsinu Síðustu sýningar 26. febrúar! BÖRNIN SKAPA Eftir sýninguna fá börnin að skapa úr pappírnum úr sýningunni undir handleiðslu myndlistarmanna. Lau. 18. feb. kl. 12.00 uppselt Lau. 18. feb. kl. 15.00 uppselt Sun. 19. feb. kl. 12:00 aukas. Sun. 19. feb. kl. 14.00 uppselt Lau. 25. feb. kl. 12.00 aukas. Lau. 25. feb. kl. 15.00 Sun. 26. feb. kl. 12.00 aukas. Sun. 26. feb. kl. 15.00 E.B. Fréttablaðið LA BOHÈME GIACOMO PUCCINI Hulda Björk Garðarsdóttir · Gissur Páll Gissurarson / Þóra Einarsdóttir · Garðar tHór CortEs áGúst ólafsson · Hrólfur sæmundsson · jóHann smári sævarsson HErdís anna jónasdóttir · BErGÞór Pálsson HljómsvEitarstjóri: daníEl Bjarnason · lEikstjóri: jamiE HayEs lEikmynd: Will BoWEn · BúninGar: filiPPía Elísdóttir · lÝsinG: Björn BErGstEinn Guðmundsson föstudaGinn 16. mars kl. 20 - frumsÝninG lauGardaGinn 17. mars kl. 20 - 2. sÝninG lauGardaGinn 31. mars kl. 20 - 3. sÝninG sunnudaGinn 1. aPríl kl. 20 - 4. sÝninG lauGardaGinn 14. aPríl kl. 20 - 5. sÝninG föstudaGinn 20. aPríl kl. 20 - lokasÝninG miðasala í HörPu oG á WWW.HarPa.is  Eyrarrósin VEitt í áttunda sinn á BEssastöðum Safnasafnið, Sjóræningjahús- ið og Við Djúpið Þrjú framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni eru tilnefnd úr metfjölda umsókna, alþýðulistasafn, sýning sjórána og tónlistarhátíð. Forsetafrúin er verndari Eyrarrósar- innar og afhendir verðlaunin. E yrarrósin, sérstök viðurkenn-ing fyrir framúrskarandi menningarverkefni á lands- byggðinni, verður veitt í áttunda sinn á Bessastöðum á morgun, laugardag- inn 18. febrúar. Þrjú verkefni hafa verið valin úr metfjölda umsókna og hljóta tilnefningu til Eyrarrósarinnar í ár: Safnasafnið á Svalbarðsströnd, Sjóræningjahúsið á Vatneyri við Patreksfjörð og tónlistarhátíðin Við Djúpið á Ísafirði. Handhafi Eyrarrósarinnar hlýtur 1,5 milljón krónur, verðlaunagrip eftir Steinunni Þórarinsdóttur mynd- höggvara og flugferðir frá Flugfélagi Íslands. Aðrir tilnefndir hljóta 250 þúsund krónur auk flugferða. Dorrit Moussaieff forsetafrú, verndari Eyr- arrósarinnar, afhendir verðlaunin. Eyrarrósin er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Byggða- stofnunar og Flugfélags Íslands. Markmið verðlaunanna er að efla fagmennsku og færni við skipulagn- ingu menningarlífs og listviðburða á landsbyggðinni og skapa sóknarfæri á sviði menningartengdrar ferðaþjón- ustu. Í umsögn valnefndar um verk- efnin sem tilnefnd eru segir meðal annars: Safnasafnið – Alþýðulistasafn Ís- lands stendur við þjóðveg eitt rétt utan við Akureyri, í gamla Þinghús- inu á Svalbarðsströnd. Safnið opnaði árið 1995 og vinnur metnaðarfullt brautryðjendastarf í söfnun og varð- veislu á íslenskri alþýðulist. Safnið tengir saman alþýðulist og nútíma- myndlist af alúð og kímni og vinnur ávallt í nánu samstarfi við samfélagið í kring. Sjóræningjahúsið á Vatneyri við Patreksfjörð hefur dregið að sér fjölda innlendra og erlendra ferða- manna frá opnun vorið 2008. Í Sjó- ræningjahúsinu er öflugt tónleika- hald, sýning tileinkuð sjóránum við Íslandsstrendur, veitingastaður og sýningaraðstaða fyrir listamenn auk fjölbreyttra menningarviðburða árið um kring. Við Djúpið á Ísafirði hefur skipað sér fastan sess í tónlistarlífi lands- ins og verður haldin í tíunda sinn á Dorrit Moussaieff forsetafrú afhendir Eyrarrósina sem veitt verður í áttunda sinn á Bessastöðum á morgun, laugardag. sumarsólstöðum. Hátíðin hefur eflt tónlistarlíf og nýsköpun á Vestfjörðum með metnaðar- fullri tónleikadagskrá og einnig er námskeiðahald mikilvægur þáttur í hátíðinni. Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is 52 dægurmál Helgin 17.-19. febrúar 2012
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.