Fréttatíminn - 17.02.2012, Side 62
Sigurjón SighvatSSon Framleiðir mynd eFtir metSölubók
„Nei, ég verð ekki á laugardaginn,“ segir
Bjarnheiður Hannesdóttir aðspurð hvort
hún muni mæta á Edduverðlaunin sem
afhent verða í Gamla bíó á morgun, laug-
ardag. Mörgum er enn í fersku minni
innkoma Bjarnheiðar á síðustu hátíð en
þá kom hún tók við verðlaunum í flokki
heimildarmynda í hlébarðagalla sem hún
hannaði sjálf. „Það verður einhver annar
að taka sig til og stela senunni að þessu
sinni.“
Þegar Bjarnheiður er spurð hvort hún
myndi mæta í einhverju flippuðu ef hún
væri að fara á Edduna í ár er svarið ein-
falt: „Nei. Maður gerir bara svona einu
sinni. Maður þarf ekki að toppa þetta.“
Brynhildur Ólafsdóttir, framkvæmda-
stjóri hátíðarinnar, segir í samtali við
Fréttatímann að erfitt sé að koma öllum
fyrir í salnum í Gamla bíói. „Það er sleg-
ist um sætin,“ segir Brynhildur. Aðspurð
af hverju Bjarnheiði, sem sannarlega var
stjarna hátíðarinnar í fyrra, hafi ekki ver-
ið boðið, segist Brynhildur ekki vera með
miðamálin á sinni könnu en bætir við að
plássleysi hafi eflaust áhrif.
Brynhildur lofar mikilli skemmtun
þótt Bjarnheiður sé fjarri góðu gamni.
„Það verður nóg af „hlébarðagöllum“ á
sviðinu.“ -óhþ/-þþ
verðlaun eddan um helgina
Enginn hlébarðagalli á Eddunni
Hugmyndirnar
sem ég er með
um amerísku
útgáfuna eru allt
öðru vísi en það
sem við ætlum að
gera með sænsku
myndina.
Bjarnheiður
og hlé-
barðagallinn
heiðra ekki
Gamla bíó
með nær-
veru sinni á
laugardag-
inn.
Ljósmynd/
Hari
Það verður
einhver
annar að
taka sig til
og stela
senunni að
þessu sinni.
Sigurjón segir myndina um
Gamlingjann vera stórmynd
á sænskan mælikvarða.
„Þetta er með því stærra
sem Svíar gera enda epísk
mynd sem mun kosta í
kringum fimmtán millj-
ónir dollara í framleiðslu.“
Mynd/Nordic PhotosGetty Images
Lét gamlingjann
sem skreið út um
gluggann ekki sleppa
Sænska metsölubókin Gamlinginn sem skreið út um gluggann og hvarf eftir Jonas Jonasson
hefur slegið hressilega í gegn, ekki síst á Íslandi þar sem hún hefur selst í yfir 20.000 eintökum
og er enn á sölulistum. Sigurjón Sighvatsson náði ekki að tryggja sér kvikmyndaréttinn á henni
í upphafi en er genginn til liðs við sænska framleiðendur myndarinnar. Hann verður yfirfram-
leiðandi og er þegar kominn með hugmyndir að endurgerð fyrir Bandaríkjamarkað.
É g er búinn að vera með puttana í þessu í dágóðan tíma þótt það hafi ekki verið fullfrágengið fyrr
en í september. Ég fékk strax áhuga á
bókinni en hafði að vísu ekki reynt að
kaupa réttinn vegna þess að hann var
bara seldur strax,“ segir Sigurjón sem
stautaði sig í gegnum bókina á frummál-
inu. Eftir að hann sökkti sér ofan í sög-
una á íslensku ákvað hann að verkefnið
væri of spennandi til þess að sleppa af
því hendinni. „Þegar ég var hérna á Ís-
landi í fyrrasumar voru allir að tala um
þennan Gamlingja eftir Jónas Jónasson
og ég tengdi ekki strax. Ég hélt fyrst að
þetta væri bara einhver íslensk bók.“
Sigrjón keypti íslensku þýðinguna
í Leifsstöð þegar hann var á leið til
Bandaríkjanna og las hana í einum
rykk í flugvélinni. „Ég átti auðveldara
að tengja við hana á íslensku, fannst
hún bara frábær og hugsaði með mér
að þetta væri bara það gott verkefni að
ég vildi endilega fá að vita hver staðan á
því væri. Ég vissi að rétturinn var seldur
en hafði ekkert heyrt meir þannig ég
að hafði bara samband við framleiðend-
urna og kynnti þeim mínar hugmyndir
varðandi verkefnið. Hvað ég vildi gera
og hugmyndir mínar féllu vel að þeirra.
Þetta eru ungir framleiðendur og ekki
mjög reyndir en mér finnst þetta vera
efnilegt fólk.“
Ráðgert er að tökur hefjist í lok ársins
og að myndin verði frumsýnd í desemb-
er 2013. Sigurjón segir þá komna með
sænskt handrit sem þeir séu nokkuð
ánægðir með og nú sé verið að vinna
aðeins í því.
Sænski leikstjórinn Felix Herngren
hefur tekið að sér að leikstýra mynd-
inni. Hann nýtur mikilla vinsælda og
virðingar í heimalandinu ekki síst fyrir
sjónvarpsþættina Solsidan sem hann
skrifar, framleiðir og leikstýrir auk
þess að leika í þeim. Sigurjón segir
valið á leikstjóra hafa haft mikið um
það að segja að hann hafi ákveðið að
ganga inn í verkefnið. „Mér finnst mjög
mikið til hans koma. Hann er rosalega
flinkur. Það er kominn saman hópur,
sem mér líst mjög vel á, af mjög reyndu
fólki í kringum þetta,“ segir Sigurjón
sem gegnir hlutverki yfirframleiðanda
og tekur nú virkan þátt í allri ákvarð-
anatöku og lokagerð handrits. Þá sér
Sigurjón um öll samskipti við aðila
utan Svíþjóðar og fékk þýska framleið-
endur, sem hann hefur áður unnið með,
að verkefninu þannig að fjármögnum
myndarinnar er í raun lokið. „Bókin
hefur selst rosalega vel í Þýskalandi
þannig að hingað til hefur þetta allt
gengið eins og í sögu en þyngsta þrautin
er eftir, að gera myndina.“
Ef vel gengur er Sigurjón þegar kom-
inn með hugmynd að endurgerð fyrir
enskumælandi markað.
„Það er ekkert auðvelt að endurgera
myndir. Ég er með ákveðnar hugmynd-
ir en fyrst verðum við að sjá hvernig
sænska myndin kemur út. Bókin hefur
gengið vel alls staðar þar sem hún er
gefin út en á engu að síður á hún eftir
að koma út í Bandaríkjunum og Bret-
landi. Hugmyndirnar sem ég er með um
amerísku útgáfuna eru allt öðru vísi en
það sem við ætlum að gera með sænsku
myndina. Þannig að sú ameríska yrði
mjög ólík mynd. Auðvitað sama saga en
öll efnistök yrðu mjög ólík.“
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Söngkonan Whitney Houston var mörgum harmdauði en hún féll frá í síðustu
viku. Houston á fjölmarga aðdáendur á Íslandi sem margir hverjir ráku upp
ramakvein á Facebook þegar andlátsfregnin barst til landsins. Marta María
Jónasdóttir, á Smartlandi
mbl.is, er á meðal þeirra
sem syrgja Houston og á
ófáar æskuminningar tengdar
lögum Houston sem var upp
á sitt besta þegar Marta náði
þeim aldri að hún fór að gefa
strákum gaum. Hún ætlar sér
að efna til erfidrykkju Houston
til heiðurs á laugardagskvöld
og skála fyrir dívunni heitinni
við undirleik þeirrar látnu með
vinkonum sínum Ellý Ármanns og Kolbrúnu Pálínu, ritsýrum Lífsins, fréttakon-
unum Helgu Arnars og Erlu Hlynsdóttur, tímaritadrottningunum Elínu Arnars,
Björku Eiðsdóttur og Halldóru Önnu Hagalín. Tobba Marínós verður hins vegar
fjarri góðu gamni þar sem hún á að afhenda Edduverðlaun þetta sama kvöld.
Óléttuklúbbur
kjarnakvenna
Fréttakonan María Sigrún
Hilmarsdóttir, stallsystir hennar
í erlendum fréttum RÚV, Rún
Ingvarsdóttir, Þóra Arnórsdóttir,
aðstoðarritstjóri Kastljóss, og
Lára Björg Björnsdóttir, rit- og
pistlahöfundur, eiga það allar
sameiginlegt ásamt Brynhildi
Einarsdóttur, sagnfræðingi
og konu Illuga Gunnarssonar,
alþingismanns, að vera með barni.
Á meðgöngunni hafa þær bundist
vináttuböndum og þjappað sér
saman í glæsilega óléttuklúbb og
bralla ýmislegt saman og skiptast
á reynslusögum og ráðum.
Útvarpslausi
þátturinn vinsæll
Lítil ánægja var á sínum tíma með þá ákvörðun
RÚV að slá þáttinn Orð skulu standa á Rás 1 af í
sparnaðarskyni fyrir nokkrum misserum. Enn sýta
menn þá ákvörðun. Stjórnandi þáttarins Karl Th.
Birgisson dó þó ekki ráðalaus og fór með sitt fólk
í Borgarleikhúsið þar sem þátturinn var á sviði en
ekki í útsendingu vikulega. Orð skulu standa eru
nú kominn í Þjóðleikhússkjallarann þar sem hann
verður á dagskrá á fimmtudagskvöldum. Karl er
enn á sínum stað en nú eru honum til halds og
trausts Sólveig Arnarsdóttir, leikkona, og Guð-
mundur Steingrímsson, alþingismaður, sem sjá um
hvert að leiða sinn gest í gegnum spurningar Karls
hverju sinni. Þátturinn hefur farið vel af stað og
fengið lof áhorfenda. Þykja nokkur nýmæli fólgin í
því að alþingismaður stigi á leiksvið vikulega.
Fjölmiðlakonur syrgja Whitney
54 dægurmál Helgin 17.-19. febrúar 2012