Fréttatíminn - 20.04.2012, Side 2
Brottför: 16. júní
Örfá sæti laus
Innifalið í verði:
Sjá á www.sunnuferðir.is
384.000 kr.
Nánari upplýsingar og bókanir í síma
555 4700 og á www.sunnuferdir.is
Saga, sól og söngvar Davíðs
15 dagar á Ítalíu undir fararstjórn Garðars Cortes óperusöngvara
á söngvaleiðir skáldsins Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi.
Viðburðarrík ferð til Ítalíu þar sem fetað verður í
fótspor skáldsins frá Fagraskógi alla leið frá
Flórens suður til Kaprí. Ferðin er skipulögð af
Guðna í Sunnu sem hefur um áraraðir starfað að
ferðaþjónustu. Ógleymanleg menningarferð!
Sérfræðikostnaður 3,2 milljarðar
6%
Aukning eignA
kAupþings á
árinu 2011
Ársskýrsla Kaupþings
fyrir árið 2011
MótMælin Saga geirS JónS fær Stoð í fundargerðuM alþingiS
Óttuðust að kveikt yrði í Alþingi
Gunnhildur
Arna
Gunnarsdóttir
gag@
frettatiminn.is
Þingmenn forsætisefndar Alþingis í tíð
ríkisstjórnar Geirs H. Haarde óttuðust að
kveikt yrði í Alþingi eftir viðtal við Grétar
Mar Jónsson, þá þingmann Frjálslyndra,
í DV. Í því sagði hann frá undirgöngum
frá Alþingishúsinu yfir í Kristjáns- og
Blöndahlshús. Nefndin fundaði á þriðja
mótmæladegi búsáhaldabyltingarinnar
og gagnrýndu nefndarmenn framgöngu
þingmannsins og einnig Álfheiðar Inga-
dóttur, frá Vinstri grænum. Þetta er stað-
fest í fundargerð sem Fréttatíminn fékk
aðgang að.
Sturla Böðvarsson, sem þá var forseti
Alþingis, sagði viðtalið við Grétar vera
alvarlegt mál þar „sem þessar upplýsing-
ar gætu orðið til þess að óspektarmenn
beindu spjótum sínum að þessum timbur-
húsum sem gætu auðveldlega orðið eldi
að bráð.“
Kjartan Ólafsson, sem sat á þingi fyrir
Sjálfstæðisflokk, sagðist hafa orðið vitni
að því að Álfheiður Ingadóttir „hefði verið
í sambandi við fólk utan hússins og virst
vera að veita þeim upplýsingar um viðbún-
að lögreglu. [Ásta Ragnheiður Jóhannes-
dóttir, núverandi forseti Alþingis,] sagði
að margir hefðu nefnt svipað í sín eyru.“
Sturla sagði þá á fundinum að hann
hefði átt fund með Álfheiði og Steingrími
J. Sigfússyni um málið og „hefði hún neit-
að ásökunum.“
Geir Jón Þórisson vitnaði í fundargerð-
ina í viðtali í fríblaðinu Reykjavík. Um-
mæli hans í þætti Sigurjóns M. Egilssonar
á Bylgjunni, Sprengisandi, vöktu hörð við-
brögð. Hann sagði þingmenn hafa stýrt
mótmælunum og gert eldfimt ástand enn
verra. Í kjölfarið sagði Ögmundur Jónas-
son innanríkisráðherra óforsvaranlegt
að setja fram órökstuddar fullyrðingar af
þessu tagi.
Kvöldið fyrir fundinn hafði eldi verið
varpað að þinghúsinu og þrjátíu rúður
brotnar.
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir segir
marga hafa sagt í sín eyru að álfheiður
ingadóttur hafi gefið mótmælendum upp-
lýsingar. Hér stýrir hún Alþingi.
engin sáttarhönd útrétt
á seltjarnarnesi
seltjarnarnesbær ætlar ekki að greiða
fyrrum deildarstjóra launadeildar bæjarins
skaða- og miskabætur vegna meintrar
ólöglegrar brottvikningar úr starfi. Þau
svör fékk lögmaður starfsmannafélags
seltjarnarnesbæjar í síðustu viku. Bærinn
hafnar því að hafa ekki staðið rétt að upp-
sögninni.
„Ofboðslega mikil vonbrigði,“ segir
ingunn þorláksdóttir, formaður starfs-
mannafélagsins. „Bæði voru svörin von-
brigði og líka að aldrei hafi verið reynt að
rétta fram sáttarhönd.“
Deildarstjóranum var sagt upp eftir 25 ár
starf. Hún fékk aðeins að kveðja nánustu
samstarfskonur sínar áður en henni var
gert að yfirgefa starfsstöð sína. Yfirmenn
bæjarins sáu ekki ástæðu til þess að
kveðja hana. engar athugasemdir höfðu
verið gerðar við störf hennar. - gag
kaupþing, sem er þrotabú banka sama nafns, hefur sent frá
sér tölulegar upplýsingar vegna ársins 2011. þar kemur fram að
eignir jukust um fimmtíu milljarða á árinu eða um sex prósent
og stóðu í 875 milljörðum í árslok. Handbært fé jókst um 102
milljarða og var 333 milljarðar í lok ársins. Heildarrekstrarkostn-
aður kaupþings á árinu 2011 var 6,3 milljarðar króna. rúmlega
helmingur kostnaðarins, eða um 51 prósent, er vegna erlendrar
aðkeyptrar sérfræðiráðgjafar sem nam rúmum 3,2 milljörðum
króna. sá kostnaður er að mestu tilkominn vegna ýmiskonar
fjárhagsráðgjafar, lögfræðiráðgjafar vegna endurskipulagningar
Kaupþings, kostnaðar við uppgjör á afleiðusafni Kaupþings og
kostnaðar í tengslum við aðgerðir og rannsóknarvinnu vegna
endurheimtuaðgerða erlendis, eins og segir í tilkynningu.
f jölskyldan sem missti húsið sitt að Hverfisgötu 41a í Hafnarfirði vegna veggjatítlna segir að henni
hafi verið lofað af þáverandi bæjaryfir-
völdum að bærinn myndi koma að því að
leysa vanda þeirra, svo fjölskyldan stæði
ekki uppi slipp og snauð. Í húsinu bjó
fráskilin kona af frönskum ættum með
þremur sonum sínum. Hún missti allt,
segir sonur hennar, þegar bærinn stóð
ekki við sitt. Útveggir hússins, sem enn
standa eru nú í eigu Lífeyrissjóðs ríkis-
starfsmanna.
„Við misstum ekki bara húsið heldur
fluttum við hvert í sína áttina. Fjölskyld-
an flosnaði upp,“ segir Daníel Magnús-
son, yngsti sonur konunnar, sem þá var
sautján ára gamall.
Magnús Kristjánsson, fyrrum eigin-
maður hennar og faðir piltanna, segir að
hann leitað fyrir hana til bæjarins vegna
veggjatítlnanna. Konan hans fyrrum
hafi stefnt á að gera upp húsið og hafi
haft tilboð upp á þrjár milljónir í verkið.
Starfsmaður bæjarins hafi hins vegar
lýst yfir áhuga á að bærinn fengi ræmu
af lóð konunnar svo hann hefði aðgang
að gömlum innsiglingarvita á bakvið
lóðina.
„Lúðvík Geirsson tók rosalega vel í
þessa hugmynd. Ráðist er í deiliskipu-
lagsferli, sem tekur vikur og mánuði.
Hún heldur áfram að borga af húsinu.
Hún gerði það í meira en ár, þótt húsið
væri ónýtt,“ segir hann en allt timbur-
verkið var brennt á báli Hauka á þrett-
ándanum 2009.
„Ég fer í heilt ár einu sinni til tvisvar í
mánuði til að vita hvernig málið gengur.
Svo voru þeir alltaf að draga það hvort
þeir ætluðu að hafa makaskipti við
hana, láta hana hafa íbúð sem bærinn
átti, kaupa hluta af lóðinni eða kaupa
VeggJatítlur raunir einStæðrar Móður þriggJa Sona í Hafnarfirði
Fjölskylda missti allt
og finnst hún svikin
Fyrrum eiginmaður konu sem missti hús sitt vegna veggjatítlna segir að henni hafi verið fórnað.
Hafnarfjarðarbær hafi dregið fjölskylduna á asnaeyrum í tvö ár. Konan missti húsið á uppboði.
Daníel og faðir
hans, Magnús,
fyrir framan
æskuheimili
Daníels. eftir
að veggjatítla
fannst í húsinu
2008 flosnaði
fjölskyldan upp.
Hann ásamt
móður sinni og
bræðrum fluttu
hvert í sína
áttina.
Mynd/Hari
þetta allt. Þetta voru allt möguleikar og
rosalega jákvætt hugarfar hjá bænum.
Hún beið alltaf en fékk engin svör. Svo er
Lúðvík Geirsson flæmdur í burtu.“
Magnús segir að í aðdraganda þing-
kosninga hafi hann rambað inn á kosn-
ingaskrifstofu Samfylkingarinnar. Þar
hafi hann hitt Guðmund Rúnar Árnason,
núverandi bæjarstjóra. „Ég sagði honum
söguna. Hann kom af fjöllum. Samt var
búið að ræða málið hjá bænum í marga
mánuði.“ Guðmundur hafi boðið honum að
koma til sín og þeir fyndu lausn.
„Næsta árið var ég einu sinni í viku á
bæjarskrifstofunum á fundum með bæjar-
stjóranum og stjórninni. Það var alltaf
verið að finna þessar leiðir. Eigandinn
varð þreyttur á þessu langlundargeði
bæjarstjórans og hættir að borga af hús-
inu,“ segir hann. „Á endanum fór húsið á
uppboð.“
Magnús segist hafa reynt að ná sam-
bandi við bæjarstjórann. „Hann var búinn
að snúa baki við okkur. Hann sendi mér
póst nokkrum klukkutímum fyrir uppboð-
ið; Nei, bærinn hefði ekki áhuga á að gera
neitt í þessu. Með það missti hún húsið,“
segir hann. „Ef bærinn hefði sagt nei í
upphafi hefðum við gert aðrar ráðstafanir.
En bærinn dró okkur á asnaeyrunum í tvö
ár,“ segir Magnús og er bæði vonsvikinn
og reiður.
„Við vorum heiðarleg og leituðum eftir
aðstoð, þeir voru allir ein elska, en það
eina sem þeir voru að hugsa um var að rífa
húsið áður en það spyrðist út að það væri
veggjatítla í götunni.“
Hvorki náðist í Lúðvík eða Guðmund
Rúnar við vinnslu þessarar fréttar.
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
Of dýrt að
kaupa veggja-
títluhúsið
Bjarki Jóhannesson,
sviðstjóri skipulag- og
byggingarsviðs Hafnar-
fjarðar, segir að ekki hafi
verið annað hægt en að
hreinsa Hverfisgötu 41a
og brenna timbrið. Leitað
hafi verið til Bjargráða-
sjóðs um bætur. erindinu
var synjað þar sem
talið er til vanrækslu
þegar veggjatítlur þrífist
í húsum.
Hann segir sögu
Magnúsar ekki að öllu
leyti rétta. „en, það var
verið að deiliskipuleggja
hverfið. Atriði á Austur-
götunni töfðu það mál,“
segir Bjarki og kannast
ekki við sífellda fundi
með Magnúsi. „Ég held að
hann hafi komið einu sinni
eða tvisvar til okkar.“ Í
samtali við starfsmann
bæjarins kannaðist sá við
komur Magnúsar á bæjar-
skrifstofuna.
Bjarki segir að það hafi
verið skoðað að kaupa
húsið. „Já, það var
skoðað. Við hættum við
vegna þess að við hefðum
fengið miklu minna út úr
því en við hefðum þurft
að leggja út.“ - gag
Ritstjóraskipti á Fréttatímanum
Jónas Haraldsson hefur tekið við sem
ritstjóri Fréttatímans af Jóni kaldal. Jón
seldi hlut sinn í Fréttatímanum til annarra
hluthafa og lét í kjölfarið af störfum. Jónas er með áratugareynslu sem fréttastjóri og
ritstjóri á DB, DV og Viðskiptablaðinu. sigríður Dögg Auðunsdóttir verðlaunablaða-
maður hefur verið ráðin á ritstjórn blaðsins. Jóni kaldal eru þökkuð góð störf í þágu
blaðsins og honum óskað velfarnaðar í framtíðinni.
H E L G A R B L A Ð
Ó K E Y P I S
H E L G A R B L A Ð
Ó K E Y P
I S
H E L G A R B L A Ð
H E L G A R B L A Ð
H E L G A R B L A Ð
Ó K E Y P
I S
Ó K E Y P
I S
Ó K E Y P
I S
Ó K E Y P
I S
Ó K E Y P
I S
Ó K E Y P
I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P
I S
Ó K E Y P
I S
Ó K E Y P
I S
ÓKEYPIS
ÓKEYPI
S
2 fréttir Helgin 20.-22. apríl 2012