Fréttatíminn - 20.04.2012, Blaðsíða 60
52 bíó Helgin 20.-22. apríl 2012
Endurvinnsla 21 Jump strEEt
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
bíó
Aftur á byrjunarreit
Johnny Depp
s jónvarpsþættirnir fjölluðu um sveit ungs lögreglufólks sem sigldi undir fölsku flaggi og rannsökuðu glæpi í
menntaskólum og öðrum þeim stöðum þar
sem ungt fólk hélt helst til. Löggurnar sem
voru valdar í hópinn voru allar nógu barna-
legar í útliti til að geta þóst vera skólakrakk-
ar án þess að nokkrum dytti til hugar að þar
væri fullorðið fólk á ferðinni.
Höfuðstöðvar lögreglusveitarinnar voru í
yfirgefinni kirkju við Jump Street númer 21
og þaðan fengu þættirnir og síðar bíómyndin
titilinn. Þættirnir áttu upphaflega að heita
Jump Street Chapel en Fox-sjónvarpsstöðin
fór fram á að nafninu yrði breytt þar sem
talið var að áhorfendur gætu misskilið nafnið
og talið að um trúarlega þætti væri að ræða.
Johnny Depp lék lögreglumanninn Tom
Hanson í fjögur ár, frá 1987 til 1990, og
var óumdeild stjarna þáttanna sem gerðu
hann að átrúnaðargoði fjölda bandarískra
unglinga. Í fyrsta þættinum lendir Hanson í
vandræðum í vinnunni vegna þess að hann
lítur út fyrir að vera töluvert yngri en hann í
raun og veru er og í lok þáttarins er honum
boðin flutningur í starfi og að ganga til liðs
við hóp unglegs lögreglufólks sem berst
gegn dópi og annarri óáran meðal unglinga.
Helstu viðfangsefni hinna barnalegu
laganna varða voru fíkniefni og kynferðisleg
misnotkun hvers konar. Alla jafna var eitt
hitamál tekið fyrir í hverjum þætti svosem;
alkóhólismi, hatursglæpir, AIDS, fordómar
gegn samkynhneigðum, lauslæti og áður-
nefnd kynferðisleg misnotkun barna og
eiturlyf. Ekki var reynt að fela predikunar-
tóninn í þáttunum og í lok hvers þáttar komu
mórölsk skilaboð um afleiðingar þess sam-
félagsmeins sem var í brennidepli hverju
sinni.
Fjöldi gestaleikara, sem margir hverjir
áttu eftir að láta verulega að sér kveða seinna
meir, komu við sögu í 21 Jumb Street og má
þar nefna Josh Brolin, Bridget Fonda, Jada
Pinkett Smith, Brad Pitt, Vince Vaughn,
Blair Underwood, Rosie Perez, Mario Van
Peebles, Christina Applegate, Paulie Shore,
Jason Priestley og svo þekkta menn á borð
við Dom DeLuise, Kareem Abdul-Jabbar og
John Waters.
Gamanleikarinn Jonah Hill leikur annað
aðalhlutverkið í bíómyndinni sem sækir inn-
blástur sinn til þáttanna. Hann er einnig einn
handritshöfunda og setur sinn svip á söguna
þannig að grínið er alls ráðandi í myndinni
sem gerir hana óneitanlega nokkuð frá-
brugðna þáttunum þótt skyldleikinn sé aug-
ljós. Hill og Channing Tatum leika Morton
Schmidt og Greg Jenko sem verða félagar í
lögregluskólanum. Schmidt er nörd en Jenko
þrekinn töffari. Eftir að þeir klúðra handtöku
á dópsala eru þeir sendir í kapelluna á Jump
Street þar sem þeir fá það verkefni að stöðva
dreifingu á nýju fíkniefni í gamla framhalds-
skólanum sínum.
Þegar á hólminn er komið fer allt í tómt
rugl og allt útlit er fyrir að félagarnir séu
búnir að róta sér i vandræði sem þeir geta
ekki komist heilir frá. Johnny Depp, Peter
DeLuise, og Holly Robinson skjóta öll upp
kollinum í myndinni og endurtaka hlut-
verk sín sem löggurnar Tom Hanson, Doug
Penhall og Judy Hoffs úr gömlu sjónvarps-
þáttunum. Myndin hefur heldur betur slegið
í gegn, skilað hrúgum af dollurum í kassann
og fengið prýðilegar viðtökur gagnrýnenda.
Aðrir miðlar: Imdb. 7.7, Rotten Tomatoes: 85%,
Metacritic: 69%.
Frumsýndar
Drew Goddard og Joss Wheadon skrifa
saman handrit The Cabin in the Woods og
leika sér þar með kunnugleg stef; klisjur
og erkitýpur hryllingsmyndanna. Fimm
vinir, þrír strákar og tvær stelpur, fara út
úr bænum og ætla að skemmta sér fjarri
mannabyggðum í skógarkofa yfir eina
helgi.
Full tilhlökkunar villast þau um á ókunnug-
um slóðum í leit að kofanum og eru meira
að segja vöruð við því að finni þau kofann
sé alls ekki víst að þau muni nokkurn tíma
rata aftur til baka. Trú reglum hryllings-
mynda láta þau slíkt tal sem vind um eyru
þjóta, finna kofann og koma sér vel fyrir
óafvitandi að þau hafa gengið í gildru þar
sem kofinn er verkfæri varasamra ein-
staklinga sem brugga þeim banaráð.
Og það er sko ekkert slor sem fólkið sem
stjórnar kofanum dularfulla býður unga
fólkinu upp á þar sem þau eru varla byrjuð
að hugsa um að brjóta reglu númer eitt í
hryllingsmyndunum og stunda kynlíf áður
en uppvakningar, varúlfar og aðrir and-
skotar eru byrjaðir að herja á þau í þeim
tilgangi einum að kála þeim.
Aðrir miðlar: Imdb: 7.9, Rotten Tom-
atoes: 92%, Metacritic: 72%
Ungmenni í skrímslaskógi
Baltasar KormáKur paula patton í 2 Guns
Liðsstyrkur úr Mission Impossible 4
Lögguþættirnir 21 Jump Street nutu nokkurra vinsælda í bandarísku sjónvarpi á árabilinu 1987 til
1991 en þeirra hefur hingað til helst verið minnst fyrir að í þeim vakti Johnny Depp fyrst verulega
athygli en frá Jump Street lá leið hans á toppinn þar sem hann trónir enn. Hasargamanmyndin
21 Jump Street, með þeim Jonah Hill og Channing Tatum í aðalhlutverkum, byggir á sjónvarps-
þáttunum þótt áherslan sé að þessu sinni miklu meiri á grín og fíflagang en var á níunda áratug
síðustu aldar.
spiKE lEE EndurGErir oldBoy
Hefur fundið kvalara Josh Brolin
Leikstjórinn Spike Lee hefur
fundið leikara í hlutverk illmennisins
fyrir endurgerð sína á hinni mögnðu
og ofbeldisfullu Oldboy frá árinu 2003.
Þessi suður-kóreska hasarmynd sagði
frá lánlausum manni sem haldið var
í stofufangelsi af óþekktum kvalara í
fimmtán ár áður en hann fékk frelsið
sem hann notaði strax til þess að leita
hefnda.
Josh Brolin fer með aðalhlutverkið í
endurgerð Lees sem hefur nú ráðið
Sharlto Copley (District 9, The A-Team) í hlutverk illmennisins sem leggur sig fram
um að rústa lífi og tilveru Brolins. Þá hefur orðrómurinn um að Elizabeth Olsen
(Martha Marcy May Marlene) muni leika aðal kvenhlutverkið verið staðfestur. Olsen
leikur félagsráðgjafa sem aðstoðar Brolin við að rannsaka fortíð sína.
Jonah Hill og
Channing Tatum
er ekki nándar
nærri jafn svalir
og Johnny Depp
var þegar hann
starfaði sem
barnaleg lögga
í Jump Street en
þeir bæta það
upp með góðu
gríni.
Ýmsar ógnir leynast í
kofanum í skóginum.
We Bought a Zoo
Leik-
stjórinn
Cameron
Crowe
(Jerry
Maguire,
Almost
Famous, Vanilla Sky) býður hér upp á hug-
ljúft drama í léttum dúr um ekkjumanninn
Benjamin sem reynir að hefja nýtt líf eftir
fráfall eiginkonunnar. Matt Damon leikur
Benjamin sem kaupir stórt hús sem er með
heilan dýragarð í bakgarðinum. Kaupin
gleðja sjö ára gamla dóttur hans en slá
fjórtán ára soninn alveg út af laginu en
eftir smá yfirlegu ákveður hann að reyna
að halda öllum dýrunum, gera garðinn upp
og opna hann almenningi að nýju.
Aðrir miðlar: Imdb: 7.2, Rotten Tom-
atoes: 66%, Metacritic: 58%
Mirror Mirror
Hvert mannsbarn
þekkir ævintýri þeirra
Grimms-bræðra um
Mjallhvíti og dvergana
sjö. Hér er sagan um
prinsessuna fögru og
hina illgjörnu stjúpu
hennar, sem er nokkuð fyrir að dreifa
eitruðum ávöxtum, sögð á gamansaman
hátt. Sjálf Julia Roberts stígur hér fram
í hlutverki vondu drottningarinnar sem
sendir aðstoðarmann sinn út í skóg með
Mjallhvíti þar sem hann á að koma henni
fyrir kattarnef. Eins og allir vita guggnar
hann á því og Mallhvít kynnist í fram-
haldinu dvergum sem eiga eftir að reynast
henni vel í baráttunni fyrir krúnunni sem
er hennar með réttu.
Aðrir miðlar: Imdb: 5.8, Rotten Tom-
atoes: 48%, Metacritic: 46%
Johnny Depp
hefur lítið breyst
frá því hann sýndi
fagurt andlit sitt
í 21 Jump Street
enda virðist hann
hafa komist í
brunn eilífrar
æsku.
Alveg mátulegur
Heimilis
GRJÓNAGRAUTUR
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
l eikkonan Paula Patton hefur verið ráðin í kvik-mynd Baltasars Kormáks,
2 Guns, sem fer í tökur seinna á
árinu í Nýju Mexíkó og Louisi-
ana. Patton lék nýlega hasars-
mellinum Mission: Impossible
– Ghost Protocol.
Þeir Mark Wahlberg og Den-
zel Washington verða í aðalhlut-
verkum myndarinnar en Whal-
berg og Baltasar áttu farsælt
samstarf í Contraband og ákváðu
að halda því áfram með 2 Guns.
Talið er að Patton muni fara með
hlutverk ástkonu Washingtons,
en leiðir þeirra hafa áður legið
saman í Deja Vu í leikstjórn To-
nys Scott.
2 Guns fjallar um fíkniefna-
lögreglumann og sjóliðsforingja
sem fara huldu höfði þegar þeir
rannsaka hvor annan í tengslum
við þjófnað hjá mafíunni og kom-
ast að því að það er verið að leiða
þá í gildru.
Paula Patton var í miklum ham í Mis-
sion Impossible og gengur nú til liðs
við Baltasar Kormák.
Josh Brolin var harður í No Country
For Old Men en verður enn grimmari
í Oldboy.