Fréttatíminn


Fréttatíminn - 20.04.2012, Blaðsíða 28

Fréttatíminn - 20.04.2012, Blaðsíða 28
Þú leggur línurnar létt&laggott Þ orbjörg Hafsteinsdóttir stendur á krossgötum í lífinu. Tómleikinn greip hana þegar hún hafði lokið við að skrifa þriðju bók sína Níu leiðir til lífsorku. Jafnvægið sem hún hafði fundið í lífinu og byggt upp í kringum sig þurfti endurnýjun. Sköpunargleðin var horfin. Og hvað gerði hún? Hún leit í kringum sig á heimili sínu í Kaupmannahöfn, bretti upp ermarnar og seldi allar eigur sínar – en hélt myndaalbúmum. „Já, ég losaði mig við allt,“ segir hún þar sem við sitjum í einu horni Amokka kaffihússins í Borgartúni. Sólin skín úti. Það er kalt. Þorbjörg er upptekin. Það er brjálað að gera í námskeiða- haldi og bókaútgáfunni, en ekki er að sjá á henni stress en við megum ekki láta tímann fara til spillis. „Ég var búin að gefa mikið í bókina. Þetta er ekki bók sem ég skrifaði á tveimur eða þremur mánuðum. Þetta tók sinn tíma. Af því að ég þurfti að staldra við og spyrja sjálfa mig ýmissa spurninga líka. Það lá því í kortunum, þegar ég var búin að skrifa þessa bók, einhver tómleiki sem ég vildi vera í um einhvern tíma. Ég var því í tómleikanum; var ekki að skapa, vorkenndi Seldi allt og stóð á götunni með fötin í ferðatösku sjálfri mér og var ekki finna fyrir einu eða neinu,“ segir Þorbjörg sem hefur í tuttugu ár rannsakað mataræði og nútímalífsstíl í leit sinni að því sem viðheldur best æsku og lífsþrótti. Átti inneign fyrir ójafnvægi „Stundum þarf maður að losna við jafn- vægið sem maður hefur skapað sér. Þegar maður hefur náð því svona góðu eins og ég er inneign fyrir því að geta sleppt því. Ég er skapandi þegar ég finn fyrir mót- læti eða sársauka, eða þarf að hafa fyrir hlutunum. Þannig að ég þurfti að skapa mér það umhverfi og prófa eitthvað nýtt. Ég ákvað að segja upp öllu því sem ég átti og gefa frá mér allt. Ég endaði með fötin mín í einni ferðatösku. Svo stóð ég bara á götunni,“ segir þessi orkumikla, 53 ára kona sem hefur ekki farið troðnar slóðir í lífinu. Og hvert lá leiðin? „Ég vissi það ekki,“ segir Þorbjörg. „Ég var inni hjá vinum og kunningjum og var að reyna að átta mig á því hvað ég vildi. Svo fann ég að ég átti að fara hingað. Fara heim til Íslands. Og hér er ég. Það er rosa fínt. Mér finnst æðislegt að vera hérna. Ég er að gefa út bækurnar mínar. Það er meðbyr með þeim. Ég fann sköpunargleð- ina aftur.“ Þorbjörg hefur búið hjá systur sinni frá því í október. „Hún er eins og ég. Hún er á ferðinni. Kannski ekki alveg eins mikið og þótt hún segi að ég megi aldrei tala um sig ætla ég að segja að hún er alvöru hjúkrunarfræðingur og vinnur fyrir UNI- CEF í Palestínu; á Gaza. Þannig að hún er að gera flotta hluta. Á meðan bý ég í íbúðinni hennar. Hún er reyndar að koma heim þannig að mig vantar íbúð,” segir Þorbjörg og óskar hér með eftir einni. Fann þráðinn í Alsír Þegar hún segir alvöru hjúkrunar- fræðingur vísar hún í það að sjálf er hún hjúkrunarmenntuð. „Ég vissi að ég vildi verða næringarþerapisti og vildi hafa sem bestan grunn sem gæti opnað fyrir mér dyr seinna meir. Ég valdi hjúkrunarfræði. Ég tók námið alvarlega. Var orðin svolítið eldri en allir hinir og var mjög krítísk á það sem var lagt á borð fyrir mig. Kom út með hæstu einkunn, mjög flott og allt það, en var svo hjúkrunarfræðingur í tvær Þorbjörg Hafsteins- dóttir næringarþerapisti fann hvernig tómleikinn helltist yfir hana þegar hún lauk við að skrifa þriðju lífsstílsbók sína. Hún ákvað að fórna jafnvæginu sem hún hefur unnið að í áratugi, seldi allar eigur sínar og flutti inn á vini sína í Kaupamannahöfn. Svo ákvað hún að flytja heim til Íslands í leit að sköpunargáfunni sem hún hafði týnt. Nú bíður hún þess að uppgötva hvert straumurinn flytur hana. Ljósmyndir/Hari Ég var í tómleik- anum; ekki að skapa, vorkenndi sjálfri mér og var ekki finna fyrir einu eða neinu. klukkustundir,“ segir Þorbjörg og hlær. „Svo fór ég í næringarþerapistanámið. Það tók enn þrjú ár en ég var farin að vinna sjálfstætt áður en náminu lauk. Ég hef gert það síðan.” Nokkurra ára búseta í Alsír hafði komið henni á sporið. Þáverandi maðurinn henn- ar vann við að kenna tíu dönskum börnum starfsmanna danskrar sementsverks- smiðju nálægt Sahara í Alsír snemma á níunda áratugnum. „Ég vildi ekki búa í þessum dönsku búðum. Ég hafði ferðast mikið um Marokkó og vildi vera þar sem var „alvöru“. Við bjuggum því 40 kílómetr- um frá, í þorpi sem var við hurð Sahara. Þar bjuggu aðeins heimamenn og við,“ segir hún og var heima með dæturnar tvær. „Ég eignaðist þær ung, eins og flestar íslenskar konur gera. Ásta Lea var eins og hálfs og ég var ólétt af Idu Björk í Alsír. Ég fór heim til Danmerkur og átti hana þar og fór aftur með hana út.“ Þegar Alsír-ævintýrinu lauk varð Þor- björg ein sú fyrsta sem opnaði verslun með lífrænar vörur í Kaupmannahöfn. „Allt frá ólífuolíu til sápustykkja. Þar hafði ég líka pláss fyrir lítið tehús, fyrir níu eða tíu manns. Þar bauð ég uppá kaffi og te og eldaði mat á kvöldin. Svo var ég með þessar tvær litlu stúlkur,” segir Þorbjörg þegar hún lítur til fortíðar. Hún viðurkenn- ir að þetta hafi verið annasamur og erfiður tími. Frumherji í Danaveldi „Ég var frumherji á þessu sviði. Allt þetta lífræna var nýtt fyrir Kaupmannahafn- arbúum. Það kostaði meira en þetta hefð- bundna. Þannig að ég var svolítið á undan minni samtíð og eiginlega gafst upp eftir tvö ár. En þá var ég búin að fá þá reynslu sem ég þurfti og fannst það því allt í lagi,“ segir hún. „Við ákváðum að flytja út á land með stelpurnar. Við vildum skapa betra andrúmsloft fyrir þær,“ segir Þorbjörg og þar bættist sú þriðja við hópinn. „Ég var komin svo vel inn í mataræðið og kenningarnar um góðan getnað og góða meðgöngu og allt það,“ segir hún og brosir. „Hann var því settur á stíft fæði til að skila sem bestum árangri.“ Og er sú Hollráðin tíu: 1. Hlífðu líkamanum við viðbættum sykri. 2. Borðaðu heilhveiti- vörur og heilgrjón – líkaminn hefur ekkert við unnar vörur að gera. 3. Ekki forðast alla fitu – rétta fitan gerir gagn og grennir. 4. Borðaðu gæðaprótín. 5. Borðaðu daglega beltávexti, hentur og fræ. 6. Bættu útlitið með lífrænu grænmeti, ávöxtum og berjum – minnst 600 grömm á dag. 7. Drekktu 1 og 1/2 lítra af vatni á dag og nóg af grænmetis- og ávaxtasafa, grænu te eða jurtate. Ef þú drekkur kaffi eða áfengi, hafðu þá gæðin í fyrirrúmi – lítið og gott. 8. Borðaðu reglulega – slepptu aldrei morgunmatnum, margar en litlar mál- tíðir er lykillinn. 9. Borðaðu rétt sam- settar máltíðir með hollri fitu, gæða- prótíni, góðu kolvetni og grænmeti – og auðvitað eins lífrænt og hægt er. 10. Þótt þú borðið hollt fæði er snjallt að taka að auki fjölvítamín og/eða steinefni og ráðfæra sig við fagfólk um magn. Framhald á næstu opnu 28 viðtal Helgin 20.-22. apríl 2012
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.