Fréttatíminn - 20.04.2012, Blaðsíða 67
Helgin 20.-22. apríl 2012 menning 59
M
O
Z
A
R
T
W
ol
fg
an
g
A
m
ad
eu
s
Listvinafélag Hallgrímskirkju 30. starfsár
MESSA Í C-MOLL
& REQUIEM
HALLGRÍMSKIRKJU
LAUGARDAGINN 21. OG SUNNUDAGINN 22. APRÍL KL. 17
Aðgangseyrir 4.500 kr. / 3.500 kr. Miðasala á midi.is
og í Hallgrímskirkju, s. 510 1000, opið kl. 9-17 alla daga.
ÞÓRA EINARSDÓTTIR - HERDÍS ANNA JÓNASDÓTTIR
AUÐUR GUÐJOHNSEN - ELMAR GILBERTSSON
MAGNÚS BALDVINSSON
MÓTETTUKÓR HALLGRÍMSKIRKJU 30 ÁRA
KAMMERSVEIT HALLGRÍMSKIRKJU
stjórnandi: HÖRÐUR ÁSKELSSON
PIPA
R
\
TBW
A
• SÍA
• 12
0
8
6
8
Sýningar á sunnudaginn kl. 13:30 og 15:00
Íslendingasögur rafmagnaðar á vefnum
Ó li Gneisti Sóleyjarson hefur gert íslensk fornrit, Íslend-ingasögur, fornaldarsögur
Norðurlanda, Heimskringlu og
fleira, aðgengileg á rafbókaformi á
vefnum www.rafbokavefur.is. Raf-
bókavefurinn er hluti af meistar-
verkefni hans í hagnýtri menn-
ingarmiðlun og til þess að reyna
að dreifa menningararfinum sem
víðast hefur Óli Gneisti sett hann
inn á sjóræningjavefinn Pirate Bay.
Þeir sem stunda þann vef gera það
helst til þess að hlaða ólöglega niður
kvikmyndum, tónlist og sjónvarps-
efni en dreifing íslenskra fornrita er
hins vegar fullkomlega lögleg enda
ritin löngu komin úr höfundarétti.
„Þegar ég var kominn með yfir
hundrað bækur inn á vefinn fór ég
að velta fyrir mér hvernig ég gæti
komið þessu sem víðast,“ segir Óli
og eftir að hann sá fréttir um ólæsi
íslenskra unglingspilta datt honum
sjóræningjavefurinn í hug. „Ég
spurði mig að því hvar þessir dreng-
ir héldu sig helst á netinu og tel víst
að þeir séu mikið inni á þessum
torrent-síðum. Ég setti bækurnar
því inn á Pirate Bay þar sem ég hvet
til þess að þessu verði dreift sem
víðast. Ég vonast til þess að strák-
arnir kíki á þetta þegar þetta er í
svona þægilegu formi en þeir eru
kannski spenntari fyrir rafbóka-
lestri á spjaldtölvum, snjallsímum
og sérstökum lesbrettum.“
Óli hefur vitaskuld enn stærri
hóp í huga en íslenska unglingspilta
og bendir á að strákarnir gætu til
dæmis sótt bækurnar fyrir foreldra
sína eða annað eldra fólk sem er
að stíga sín fyrstu skref í rafbóka-
væddu umhverfi. Þá henti þetta
form lesblindum einnig mjög vel þar
sem hver og einn getur átt við text-
ann og stækkað hann að vild. „Ég
sé þarna færi á að nota þessa dreif-
ingaraðferð sem er yfirleitt tengd
við ólöglega dreifingu. Ég ætla að
gera þessa tilraun og sjá hvort það
fari ekki vel um þetta efni í sjóræn-
ingjahöndum.“
Óli gneisti hefur sett fornsögur og annað íslenskt efni sem komið er úr höfundarétti
inn á Rafbókavefinn.
e ini peningurinn sem er blendingur íslenskrar krónu og enskrar myntar sem vitað
er um í heiminum verður til sýnis
á safnarasýningu Myntsafnara-
félags Íslands í Norræna húsinu
um helgina. Þessi sérstaki pening-
ur þykir öllum kannski ekki augna-
yndi en fágætur er hann og óvenju-
legur í alla staði.
Umræðan um að Íslendingar
taki upp gjaldmiðla annarra landa,
hvort sem það er kanadískur doll-
ar, norsk króna eða evra, nú eða að
gengi krónunnnar verði beintengt
við erlenda gjaldmiðla, hefur aldrei
snúist um útlitsþáttinn. En hvað ef
íslenska krónan væri bókstaflega
„brædd saman“, ef svo má segja, við
annan gjaldmiðil? Fyrir fágæta til-
viljun er að finna pening sem gæti
gefið vísbendingu um hvernig slík-
ur sambræðingur eða „kynblend-
ingur“ myndi líta út. Um er að ræða
svo kallaða missláttu (á ensku „er-
ror coin“), þ.e. þegar myntsláttan
slær pening með röngum hætti,
til dæmis þegar stimpillinn lendir
ekki rétt á auðum peningi. Í þessu
tilviki var íslenskur 100 krónu pen-
ingur og breskur 2 Pence pening-
ur slegnir saman. Þessi tegund af
missláttu er ákaflega sjaldgæf og
í heimi myntsöfnunar er um afar
eftirsóttan galla að ræða. Þetta er
eini íslenski peningurinn sem vitað
er um að sé til með þessum galla.
Óhætt er að segja að peningurinn
sé einstakur útlits. Þannig rennur
vangamynd Elísabetar Bretadrottn-
ingar saman við íslensku landvætt-
ina og strútsfjaðrirnar og kórónan
sem eru á bakhlið bresku myntar-
innar renna saman við hrognkelsið
á íslenska peningnum. sda-
Einstakt afkvæmi íslenskrar
og breskrar myntar
sýning myntsafnarar
Þessi einstaki gripur er einn margra sjaldgæfra safngripa á sýningu Myntsafnarafélags Íslands um helgina í
Norræna húsinu.
Menningararfur í
sjóræningjahöndum