Fréttatíminn


Fréttatíminn - 20.04.2012, Side 48

Fréttatíminn - 20.04.2012, Side 48
„Ég er raunverulegur“ Sigur Rós Meryl Streep George Clooney Christina Aguilera Leonardo DiCaprio Fyrstu orð Kela Þorsteinssonar sem er mikið einhverfur og talar ekki. Hann lærði að tjá sig í fyrsta skipti 10 ára gamall með hjálp stafaborðs. Specialisterne, sérhæft fyrirtæki sem nýtir gáfur fólks með einhverfu, hafa sett á fót fyrirtæki á Íslandi. Samvinna er komin á milli Hjallastefnunnar og ABC, bandarísks skóla í atferlisþjálfun. Íslenskur RPM kennari. Styrkveiting fékkst til þess að senda Ástu Birnu Ólafsdóttur í nám í Austin, Texas til að læra að kenna börnum að tjá sig með stafaborði. Einhverfir fá rödd og tækifæri Myndin Sólskinsdrengurinn eftir Friðrik Þór Friðriksson hefur breytt landslagi einhverfu á Íslandi og verið vitundarvakning um röskunina um allan heim. Meðal þess sem gerst hefur er að allt það besta sem uppgötvaðist við gerð myndarinnar er komið til Íslands: Bókin með ævintýralega hattinum eftir Kate Winslet, einhverfa strákinn Kela og mömmu hans Margréti bíður þín í Hagkaup. Hvað myndir þú segja ef þú værir að tjá þig í fyrsta skipti í dag? Ef þú hefðir verið mikið einhverfur, ótalandi og fengir gullinn töfrahatt sem gæfi þér mál. Það er spurningin sem Kate Winslet spurði alla þá frægu einstaklinga sem tóku þátt í gerð þessarar bókar. Með bókinni er athygli vakin á því að það er öllum mikilvægt að hafa rödd og að geta tjáð sig, en áætlað er að um helmingur fólks með einhverfu geti ekki talað. Til að veita þeim rödd og stuðning hefur fjöldi heimsfrægra einstaklinga tekið mynd af sjálfum sér með „gullna hattinn“ og tjáð sig um eitthvað sem skiptir þau máli. Í bókinni segja þær Margrét og Kate einnig sögu sína og tölvupóstarnir sem innsigluðu vináttubönd þeirra eru birtir. Gefðu með hjartanu! Þú gefur einhverfum rödd og sýnileika með því að kaupa bókina. Þetta er falleg bók sem er gott að eiga og hlýlegt að gefa. Allur ágóði af sölu bókarinnar rennur til The Golden Hat Foundation sem vinnur í þágu einstaklinga með einhverfu. Fæst í Hagkaup, einnig á netinu á goldenhatfoundation.org og amazon.com. Taktu þátt í ævintýrinu og vertu hluti af hópnum Þú getur látið gott af þér leiða og orðið hluti af hópnum í bókinni með því að fara á heima- síðuna okkar www.goldenhatfoundation.org og á The Golden Wall. Þar getur þú tekið mynd af þér með gullna hattinn og deilt með umheim- inum hver þín fyrsta setning yrði. Þá ertu kominn í hóp með Kate Winslet, Kobe Bryant, Michael Caine, Kim Cattrall, Zac Efron, James Franco, Ricky Gervais, Tom Hanks, Elton John, Jude Law, Julianne Moore, Rosie O'Donnell, Tim Robbins, Ben Stiller, Justin Timberlake, Naomi Watts, Oprah Winfrey o.fl. Myndina þína með gullna hattinn geturðu svo notað sem prófílmynd á Facebook og hvatt aðra til að láta gott af sér leiða. Þinn stuðningur skiptir máli. social.goldenhatfoundation.org e Golden Hat er komin út „Ég er hjartanlega þakklát öllum sem komu að gerð myndarinnar með beinum og óbeinum hætti og þá sérstaklega aðalstuðnings- og styrktaraðila hennar, Actavis. Án Actavis hefði myndin aldrei orðið að veruleika.“ Margrét D. Ericsdóttir H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA – 1 2- 08 79

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.