Fréttatíminn


Fréttatíminn - 20.04.2012, Qupperneq 62

Fréttatíminn - 20.04.2012, Qupperneq 62
Helgin 20.-22. apríl 201254 tíska Gestapistla- höfundur vikunnar er Heiðrún Ingrid Hlíðberg einkaþjálfari og bikar­ meistari í fitness unglinga­ flokki 2009 5 dagar dress Topshop í London er ævintýralandið Elsa Hrund Bjartmarz er 18 ára MS-ingur sem fylgist grannt með tískunni. „Ég reyni að skapa minn eigin stíl samhliða því að klæðast því sem einkennist af nýjustu tísku- straum- Tár, sviti og brúnkukrem Fitnesskeppnir hafa notið sívaxandi vinsælda á seinni árum en nýlega hefur borið mjög á neikvæðri umfjöllun um íþróttina. Gagnrýnin snýr oft að „óhóf­ legri útlitsdýrkun“ og mögulegum skaða á sjálfs­ mynd ungra keppnisstúlkna. Þessi gagnrýni á rétt á sér að vissu leyti. Árangur er keppikefli íþróttamanna í flestum greinum og er útlit mælieining á árangur í fitness­ keppnum. Flestar keppnisíþróttir eru iðkaðar innan félagasamtaka þar sem keppendur njóta aðhalds og eftirlits fastráðinna þjálfara og sérfræðinga bæði á æfinga­ og keppnistímabilum. Í fitnesssportinu eru keppendur hinsvegar flestir einir á báti og þurfa að standa straum af kostnaði sjálfir. Algengt er að ráða sér einkaþjálfara fyrir undirbúningstímabilið en að móti loknu tekur oft ekkert við. Það vantar því oft stuðning þegar keppendur snúa til eðlilegs lífs á ný og þar tel ég að hundurinn liggi grafinn. Tómleiki og depurð geta gert vart við sig þegar svo metnaðar­ fullu markmiði hefur verið náð og óvissa tekur við. Leiðin virðist liggja niður á við, æfingum er jafnvel hætt og matarræði fer úr böndunum með slæmum afleiðingum fyrir sjálfsmyndina. Allir sem koma að sportinu þurfa að sameinast um að þróa leiðir til að koma í veg fyrir að keppendur upplifi þetta að keppni lokinni. Eins þarf að gæta þess að nýliðar séu vel undirbúnir andlega sem og líkamlega. Margir þjálfarar vinna nú þegar gott starf en meira þarf til. Ef rétt er haldið á spilunum getur þátttakan verið frábær reynsla þar sem keppandinn kemur út úr þessu með sjálfsaga, dugnað og festu sem veganesti fyrir lífið. Þriðjudagar Skór: Superdry Buxur: All Saints Peysa: Spúútnik Jakki: Urban Outfitters Trefill: Asos Mánudagur Skór: Dr. Martens Buxur: River Island Peysa: Topshop Skyrta: Guess Eyrnalokkar: Topshop Miðvikudagur Skór: Manía Buxur: Religion Skyrta: Topshop Jakki: Urban Outfitters Hálsmen: Topshop Fimmtudagur Skór: Jeffrey Campbell Skyrta: Topshop Hálsmen: Spúútnik Sokkarbuxur: Gamlar frá mömmu Föstudagur Skór: All Saints Sokkar: Topshop Kjóll: Topshop Eyrnalokkar: River Island um. Ég les mikið í tískublöðum og ýmsa tískubloggara og ég drekk í mig ríkjandi tísku. Ég elska stórt skart, og þá sér- staklega krossa, sem ég hengi á mig við hvert tækifæri. Í fataskápn- um mínum má helst finna föt úr vinsælustu verslunum stór- borgarinnar London. Mamma mín býr þar og fer ég reglulega til hennar í heimsókn þar sem ég missi mig gjarnan í fatakaupum. Stóra Topshop-versl- unin á Oxford Street er sérstaklega í upp- áhaldi en hún líkist frekar ævintýralandi en verslun.“ Söngkonan Madonna og hátískuhönnuðurinn Jean Paul Gaultier hafa ákveðið að sameina krafta sína á ný og endurvekja samstarf sem legið hefur verið í dvala í nærri 22 ár. Gaultier hann- aði marga af frægustu búningum söngkonunnar á sínum tíma og hefur nú samþykkt að hanna sviðsbúninga á söngkonuna fyrir tónleikaferðalagið sitt MNDA sem hefst 29. maí næstkomandi. Að sögn Madonnu verða búningarnir hver öðrum glæsilegri og verður mikið í þá lagt líkt og fyrir 22 árum. Madonna árið 1990 í hönnun frá Gaultier. Nýtt ilmvatn frá Minaj Litglaða söngkonan Nicki Minaj hefur ákveðið að slást í för þeirra stjarna sem hafa framleitt ilmvatn undir sínu nafni. Þessi fyrsti ilmur hennar, sem enn hefur ekki fengið neitt nafn annað en vera kennt við stjörnuna, er væntanlegur á Bandaríkjamarkað í haust á þessu ári. „Þetta verður lykt sem lýsir mínum persónulega stíl. Flaskan mun að sjálfsögðu vera litrík og fjörleg, líkt eins og ilmurinn sjálfur,“ sagði söngkonan í viðtali við tímaritið WWD í vikunni. Ilmvatninu bætir hún við í safn snyrtivöru sem hún hefur látið framleiða fyrir sig en áður hefur hún unnið að gerð bleiks varalits fyrir snyrtivörufyrirtækið MAC og að heilli naglalakkslínu fyrir OPI. Netverslun fyrir Evrópubúa Skóhönnuðurinn Christian Louboutin færði aðdáendum sínum í Evrópu þau gleði- tíðindi í vikunni að loksins myndi opna netverslun á vegum tískuhússins sem ætluð er alveg sérstaklega Evrópubúum. Síðan, sem mun opna seinna í vor, státar ekki af miklu úrvali til að byrja með; aðeins 20 ára afmælislínu tískuhússins. Louboutin segir þetta aðeins byrjunina – versluninni er ætlað að stækka gífurlega með tímanum. Endurvekja gamalt samstarf
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.