Fréttatíminn - 23.03.2012, Blaðsíða 6
Þvottavélar
Vandaðar vélar á góðu verði.
Fást með innbyggðum þurrkara.
139.990 139.990
96.99089.990
Candy Aqua 100F
• 1000 snúninga og 3,5 kg þvottavél
• Hitastillir 30-90°
• Hurðaropnun 180°
• Ullarkerfi, skolstopp og hraðkerfi
• Stærð: (HxBxD) : 69,5 x 51 x 44 sm
• Þvotthæfni A
• Orkunýtni A
• Vinduhæfni C
Candy EVO1473DWS
• 1400 snúninga og 7 kg þvottavél
• Hitastillir 30-90°
• Hurðaropnun 180°
• Ullarkerfi, skolstopp og hraðkerfi
• Þvotthæfni A
• Orkunýtni A
• Vinduhæfni A
Candy EVOW4653DS
• Sambyggð þvottavél og barkalaus þurrkari 1400sn
• Ryðfrí tromla sem tekur 6kg þvott/5kg þurrk
• Stafrænn hitastillir og LCD skjár
• Stafræn niðurtalning á þvottatíma
• Handþvottakerfi, 14 mín. hraðkerfi
• Þvotthæfni A
• Orkunýtni B
• Vinduhæfni A
Candy EVO12103DWS
• 1200 snúninga og 10 kg þvottavél
• Hitastillir 30-90°
• Hurðaropnun 180°
• Ullarkerfi, skolstopp og hraðkerfi
• Þvotthæfni A
• Orkunýtni A+++
• Vinduhæfni B
Lítil og nett
Innbyggður
þurrkari Tekur 10kg
af þvotti
Skotárásarmenn
dæmdir
Kristján Halldór Jensson, höfuðpaurinn
í skotárásarmálinu í Bryggjuhverfi í
nóvember á síðasta ári, var dæmdur í
fjögurra ára fangelsi í Héraðsdómi Reykja-
víkur í gær. Tómas Pálsson
Eyþórsson var dæmdur í
átján mánaða fangelsi fyrir
aðild sína að málinu og Axel
Már Smith var dæmdur til
að greiða tæpar 70 þúsund
krónur í sekt. Tómas var
sá eini af sakborningunum
sem var mættur við dómsuppkvaðningu,
að því er Vísir greindi frá. Mennirnir voru
dæmdir fyrir hættubrot en ekki tilraun til
manndráps.- jh
Fá merki um eignabólu
Már Guðmundsson seðlabankastjóri
segir að enn séu fá ummerki sjáanleg
um bólu eignaverðs á húsnæðismarkaði
og að þær hækkanir sem þar hafa verið
að undanförnu séu í takti við hækkanir
ráðstöfunartekna.
Seðlabankastjóri
segir að gjald-
eyrishöftin skapi
vissulega grundvöll
fyrir bólumyndun
og að bankinn þurfi
að vera vel vakandi
fyrir þeirri hættu, að því er fram kom á
fundi þar sem stýrivaxtahækkun peninga-
stefnunefndar var kynnt. Viðsnúningurinn
á íbúðamarkaði hefur verið hraður frá því
að hann náði botni árið 2010 og íbúðaverð
hefur hækkað um ríflega 8 prósent undan-
farna 12 mánuði. Þessi hraði viðsnúningur
og útlit fyrir frekari hækkanir íbúðaverðs
á næstu misserum hefur vakið upp
spurningar um hvort að eignabóla muni
myndast á íbúðamarkaði en Alþjóðagjald-
eyrissjóðurinn hefur, að sögn Greiningar
Íslandsbanka, meðal annars bent á þá
mögulegu hættu. - jh
Ríkið endurgreiði olíu-
félögunum 1,5 milljarða
Héraðsdómur felldi í gær úr gildi ákvörðun
áfrýjunarnefndar samkeppnismála um
sektargreiðslur vegna olíusamráðsins
svokallaða árin 1993 til 2001. Íslenska
ríkinu var því gert að greiða olíufélögunum
einn og hálfan milljarð króna. Eftir úrskurð
áfrýjunarnefndar samkeppnismála í árs-
byrjun 2005 greiddu
félögin sektina, með
fyrirvara um lögmæti
hennar. Tekist hefur
verið á um málið fyrir
dómstólum allar götur
síðan. Greiða ber Keri,
áður Olíufélaginu Esso,
495 milljónir, Skeljungi
450 milljónir og Olís 560
milljónir. - jh
Átta ráðuneyti í stað
tíu
Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu
ráðherranefndar um stjórnkerfisumbætur
varðandi breytingar á heitum og fjölda
ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands. Tillagan
er nú til umfjöllunar í þingflokkum ríkis-
stjórnarflokkanna, að
því er fram kemur í
tilkynningu for-
sætisráðuneytisins. Í
þingsályktunartillögu
verður lagt til að í stað
iðnaðarráðuneytis,
sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðuneytis,
umhverfisráðuneytis,
efnahags- og við-
skiptaráðuneytis og fjármálaráðuneytis
komi atvinnuvega- og nýsköpunarráðu-
neyti, fjármála- og efnahagsráðuneyti og
umhverfis- og auðlindaráðuneyti. Með
þessari breytingu fækkar ráðuneytum út
tíu í átta. Í upphafi kjörtímabilsins voru
þau tólf. Breytingarnar eiga að taka gildi 1.
september. -jh
L andlæknis-embættið hefur ekki
safnað, eða fengið
upplýsingar, um
það hvaða sílikon-
púðar hafa verið
seldir í gegnum
árin, eða nú í kjöl-
fa r fölsunar á
frönsku PIP-síli -
konpúðunum. Geir
Gunnlaugsson
landlæknir vísar
á lækningatækja-
eftirlitið, sem nú er
hjá Lyfjastofnun og
hefur eftirlit með
slíku. Embættið
hefur óskað eftir
upplýsingunum frá
lýtalæknum.
Landlæknisemb-
ættið hefur ekki
ráðist í að afla upp-
lýsinganna með
öðr um leiðum.
Bæði hjá Icepharma
og Fastus, sem flytja
sílikon-fyllingar inn, fengust þær
upplýsingar að ef landlæknir leit-
aði eftir upplýsingum fengi hann
þær. Hjá Intermedica vildu menn
ekki gefa neitt slíkt upp. Embættið
hefur heldur ekki talið gerlegt að
óska eftir upplýsingum frá konun-
um sjálfum.
Samkvæmt heimildum Frétta-
tímans eru bandarísku fyllingarnar
frá Mentor sem Intermedica flytur
inn langalgengustu púðarnir sem
nú eru notaðir hér á landi. Banda-
rísku fyllingarnar Allergan, sem
Fastus flytur inn, eru einnig nokk-
uð vinsælar. Þeim fylgja frönsku
brjóstafyllingarnar Eurosilicone,
sem dótturfélag Icepharma flytur
inn. Nær allar, ef ekki allar, aðrar
eru dottnar af markaði.
Fréttatíminn leitaði upplýsinga
hjá Icepharma um hvort gengið
hafi verið úr skugga um að frönsku
púðarnir frá Eurosilicone væru
samkvæmt stöðlum, þar sem slíkt
fór fram hjá frönskum eftirlitsað-
ilum í máli PIP-fölsunarfyrirtæks-
ins. Svörin voru að Icepharma hafi
fengið staðfest hjá franska fram-
leiðandanum að engin tengsl væru
á milli fyrirtækjanna.
Ríflega fjögur hundruð íslensk-
ar konur hafa fengið fölsuðu PIP-
sílikonpúðana frá árinu 2001. Geir
segir ekki vitað hversu margar
fengu PIP fyrir þann tíma, nú þeg-
ar ómskoða á allar allt til ársins
1992. Embættið bíður úrskurðar
Persónuverndar um hvort lýta-
læknum beri að upplýsa það um
brjóstastækkunaraðgerðir.
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
SíLikon-brjóStafyLLingar
Landlæknir
bíður og bíður
Landlæknir bíður enn eftir úrskurði um hvort lýtalæknum beri
að upplýsa hann um brjóstastækkunaraðgerðir. Hann hefur
ekki reynt krókaleiðir að upplýsingunum. Þrjár sílikon-fyllingar
eru á markaðnum nú; bandarísku fyllingarnar Mentor og All-
ergan en einnig frönsku Eurosilicone-fyllingarnar.
Vantar nákvæmt
skráningakerfi
Lyfjastofnun getur ekki upplýst
um hvaða sílikon-fyllingar séu
í umferð, þar sem starfsmaður
lækningatækjaeftirlitsins einn
hefur yfirsýn og er aðeins í
20 prósenta starfi; á miðviku-
dögum.
Mímir Arnórsson, upplýsinga-
fulltrúi Lyfjastofnunar, segir að
verið sé að setja upp kerfi til að
halda utan um slíkar upplýs-
ingar. Lækningatækjaeftirlitið
sé víðfeðmur flokkur: Brjósta-
púðar, smokkar og háþróuð
ómskoðunartæki falli í hann.
Eftirlitið hafi ekki verið eins
nákvæmt og með innflutningi
lyfja; þar sem hægt sé að rekja
sögu hverrar pakkningar.
Hér má sjá franskan lýtalækni skipta út PIP-sílikonfyllingu
fyrir nýja í janúar. Mynd/gettyimages
6 fréttir Helgin 23.-25. mars 2012