Fréttatíminn


Fréttatíminn - 23.03.2012, Síða 20

Fréttatíminn - 23.03.2012, Síða 20
ára gamalt verð! * J ón segir að í raun sé Hótel Volkswagen óræður staður sem sé ekki neitt en samt til. Eðli máls- ins samkvæmt er því ekki gott að finna GPS-hnit staðarins en ætla má að hann leynist í höfði borgarstjórans og leikskáldsins. „Þetta hugtak lýsir húmor mínum sem er ekki neitt en samt eitthvað,“ segir Jón hugsi. „Þetta er staður þar sem ég máta og prufa persónurnar mínar. Bæði skáldaðar og fólk sem ég hef hitt og byggi á í persónusköpun. Georg Bjarnfreðarson býr til dæmis á Hótel Volkswagen.“ Jón segist lengi hafa kallað þennan undar- lega stað Hótel Volkswagen. „Ég veit ekkert hvers vegna en ætli það sé ekki bara vegna áhuga míns á öllu sem er þýskt eins og til dæmis nasismanum. Og svo vegna áhrifa frá Monty Python, Fawlty Towers og þessu sem maður ólst upp við.“ Leikskáld í andskapandi umhverfi Jóni tókst ekki að ljúka verkinu áður en hann varð borgarstjóri og segist dálítið hafa ýtt því á undan sér enda ekki í kjöraðstæðum skáldsins á skrifstofu sinni í Ráðhúsinu. „Þetta pólitíska umhverfi hérna er beinlínis andskapandi og stjórnmálamenn eru orðnir svo praktískir. Það er lítið svigrúm fyrir stjórnmálamenn sem horfa fram á veginn og eru með hugsjónir. Þeir heyra fortíðinni til og fjölmiðlar gefa þannig fólki ekki mikið pláss.“ Það kom þó að því að ákveðið var að klára verkefnið og koma Hótel Volkswagen á svið og þá kom Benedikt Erlingsson, leikari, leik- stjóri og Fóstbróðir Jóns, að málum. „Þetta var enn svolítið tætingslegt hjá mér og ýmsir þræðir sem lágu í allar áttir. Benedikt var mér ómetanleg hjálp við að sortera henglana og hnýta þetta saman,“ segir Jón og bætir við að þeir þekkist vel, hann treysti Benedikt fullkomlega og þeir skilji hvorn annan býsna vel. „Það er svo gott að geta sagt eitthvað og sá sem maður er að tala við skilur mann.“ Þeir sem þekkja feril Jóns sem grínista hafa ekki farið varhluta af áhuga hans á nasistum og einn slíkur fer mikinn í Hótel Volkswagen. „Það er svo þægilegt að af- greiða bara nasistana sem geðveika menn og skrímsli. En svo er það ekkert raunveru- leikinn. Þetta voru bara ósköp venjulegir menn sem einhverra hluta vegna fara að gera voða óvenjulega hluti,“ segir Jón og vísar til heimildarþátta um daglegt líf nasista og fjöl- Jón Gnarr segist hafa getað hugsað sér að fást aðeins lengur við leikritun en úr varð. „Ég fæ samt ofboðslega fljótt leið á hlutum og svo þjáist ég af einhverri óstjórnlegri leti og nenni helst ég ekki að gera hluti ef mér finnst þeir ekki skemmtilegir. Ég hefði örugglega getað verið þarna einhvern tíma en svo hefði ég þurft að fara að gera eitthvað annað. Prófa eitthvað eins og Besta flokkinn, prófa að vera borgarstjóri. Síðan er alveg fullt af öðru sem mig langar alveg rosalega til að prófa. Mig langar að prufa að búa á eyðieyju í tvö ár. Gera eitthvað svoleiðis.“ Ljósmynd/Hari Með fullbókað hótel í höfðinu Jón Gnarr var í byrjun ársins 2010 valinn leikskáld Borgarleikhússins úr stórum hópi umsækjenda og gert var ráð fyrir að hann myndi starfa við leikhúsið það árið og sinna þar ritstörfum. En síðan kom babb í bátinn og leikskáldið var allt í einu orðið borgarstjóri Reykjavíkur. Jón lauk þó við verkið sem hann var byrjaður á og á laugardagskvöld verður verkið Hótel Volkswagen frumsýnt og þá fá persónur úr höfði Jóns Gnarr að valsa um sviðið. [...] Svört fáránleikakómík er æðsta gáfa mannsand- ans. Hún er mjög vand- meðfarin og fáir sem hafa hana á valdi sínu, nema nokkrir pönkarar á ýmsum tímaskeiðum hér og þar um heiminn. Fáránleikinn fær mann til að hlæja að öllu því allra sorglegasta innst inni í iðrum sjálfsins og bjargar þar með fólki frá bráðum bana (reyndar deyja furðu mörg af þessum alheims- viskuskáldum langt fyrir aldur fram). Og fáránleikinn drýpur hreinlega af sviðinu á Hótel Volkswagen, unaðs- lega svartur og steiktur. Það eina sem ég hef út á þetta leikrit að setja er brjál- æðisglampinn í augunum á séfferhundunum sem brjóst- umkennanlegi nasistinn valsar um með í ekkert alltof traustvekjandi ólum, ég vona að sviðsmaðurinn sé með deyfipílur til að skjóta í þá ef þeir skyldu sturlast. En svo framarlega sem áhorfendur verða ekki étnir þá er þetta hin besta kvöldskemmtun. Hún fær alla að langa til að gista nokkrar nætur á sveita- hóteli með gömlum nasista og afdönkuðum hippa, svo ég tali nú ekki um alla hina í sjálfsvígshugleiðingunum og Sigga litla með athyglis- brestinn og allt það. Fólk er nefnilega hin besta skemmt- un. Auður Jónsdóttir, rithöfundur - úr leikskrá Fáránleikakómík pönksins skyldna þeirra utan útrýmingabúðanna. „Þá voru þeir að spila á harmonikur, voru með spilakvöld og fóru í hollinn-skollinn og svona. Á einhvern hátt er þetta svo óhugnanlegt og hræðilegt en samt eitthvað svo mannlegt og fyndið – á einhvern skringilegan hátt og þetta hefur alltaf heillað mig.“ Skrímslið Bjarnfreðarson „Ég held ég hafi gert þetta svolítið með Georg Bjarnfreðarson. Þá bjó ég til svona persónu sem öllu eðlilegu fólki líkaði illa við og hafði ímugust á en síðan dró ég fram ein- hverja mannlega sársaukahlið í honum og þá var hann einhvern veginn afsakaður. Þá mátti hann. Hann var ekki skrímsli. Hann var manneskja.“ Með nasismann í huga segist Jón mikið hafa velt fyrir sér illskunni og öllu sem henni tengist. „Hvernig þetta síðan máist bara ein- hvern veginn út og seytli aftur út í samfélagið og verður hversdagslegur hluti af lífi okkar.“ Jón skrifaði Hótel Volkswagen í sturluðu andrúmi hrunsins og í verkinu tekur hann meðal annars á spurningum um sekt og ábyrgð. „Ég held að það hafi verið mjög ómeðvitað,“ segir Jón og rifjar upp að þýskt blað var fyrsti erlendi fjölmiðillinn sem tók við hann viðtal eftir að hann stofnaði Besta flokkinn. „Ég bað um að viðtalið yrði tekið í höfuðstöðvum Kaupþings og án þess að ég hafi kannski ekki verið búinn að hugsa með- vitað um það áður þá sagði ég að það mætti svolítið bera það sem hafði gerst hér saman við nasismann í Þýskalandi. Eitthvað hafði farið af stað, einhver hreyfing. Einhver hegð- un sem að síðan allt í einu bara hrundi yfir alla þjóðina. Auðvitað ekki af sama þunga og í Þýskalandi nasismans en samt svipað á ákveðinn hátt. Hverjir báru ábyrgð á þessu? Og berum við öll einhverja smá ábyrgð á þessu? Það er þetta með sekt og sakleysi og ábyrgð og ábyrgðarleysi sem hefur alltaf vafist mikið fyrir mér. Mér finnst ábyrgð vera hlutur sem er allt of lítið rætt um. Eric Fromm sagði nasismann vera flótta frá frelsi í ábyrgðarleysi.“ Flótti frá ábyrgð „Ég fór meðvitað að vinna með þetta og hinn seka sem vill bara drífa sig í burtu og geta gleymt öllu saman. Að geta einhvern veginn gert eitthvað eða tekið þátt í einhverju án þess að bera ábyrgð á því og stinga svo bara af frá því öllu saman. Byrja bara nýtt líf í góðu veðri og eitthvað þannig. Þetta er bara allt svo brenglað í menningu okkar. Við erum 20 viðtal Helgin 23.-25. mars 2012

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.