Fréttatíminn - 23.03.2012, Side 31
með appelsínulíkjör
með sólþurrkuðum tómötum
með hvítlauk
með svörtum pipar
hreinn
með kryddblöndu
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
0
8
-2
3
8
6
Rjómaostur er einstaklega mjúkur og auðsmyrjanlegur
ferskostur. Hann er uppistaðan í ostakökum og
krydduðu tegundirnar eru einkar ljúffengar með
brauði og kexi. Rjómaostur hentar einnig sérlega vel
til að bragðbæta súpur og sósur.
ms.is
landi og öllum þessum vefmiðlum.
Ég hugsa að það sé svolítið erfitt að
ala upp barn núna og vita ekkert í
hvorn fótinn eigi að stíga.“
„Vitneskja um barnið hefur tvö-
faldast frá því ég átti mitt fyrsta,“
segir Ýr. „Nú koma pabbarnir einir
með barnið til læknis, það þekktist
nú ekki fyrir 24 árum. Fyrst þegar
ég kom fram á biðstofu að sækja
barn og sá bara ungan karlmann
með lítið barn spurði ég undrandi:
„Hvar er mamman?“ Pabbar í dag
vita allt.“
„Jú, það er alveg rétt, en Ágúst
hefur frá fyrsta degi tekið þátt í
öllu með börnin,“ segir Soffía, „en
ég man eftir því fyrir 24 árum að
hafa áhyggjur af því að það yrði allt
annað.“
Læra margt af að alast upp í
stórum systkinahópi
Mömmurnar telja að börnin þeirra
myndu ekki una sér í litlum hópi.
„Þau þekkja ekkert annað en
vera umkringd öðrum börnum.
Þar læra þau að taka tillit hvert til
annars og félagslega held ég að
okkar krakkar komi mjög vel út,
því þau eru svo vön því að tækla
alls kyns vandamál við það að deila
með öðrum og annað slíkt.“
Þær vilja taka það fram að þær
séu mjög ungar, 45 ára, en Ýr full-
yrðir að hún ætli ekki að eignast
fleiri börn.
„Það er bara vegna þess að ég er
hætt að sjá þau í fókus þegar þau
liggja við hliðina á mér í hjónarúm-
inu því ég er orðin svo fjarsýn,“ seg-
ir hún hlæjandi. „Þá er kominn tími
til að hætta, það er bara þannig.“
„Ég ætlaði alltaf að enda á jafnri
tölu,“ segir Soffía, „þannig að mín
átta eru bara fullkomin tala.“ ‘Ýr
segist hins vegar hafa stefnt á
prímtölu: „Ég klikkaði því ég ætlaði
að hafa mína barnatölu prímtölu
því mamma mín er stærðfræðing-
ur. Prímtölur eru 2, 3, 5, 7 og 11.
Þannig að þegar ég var komin upp
í sjö, var ég mjög ánægð, en svo
kom barn númer átta og þar með
var draumurinn um prímtölubarnið
úti, því ég ætla ekki að eignast þrjú
í viðbót!“
„Ég var svo heppin að fá tvö
þarna í restina,“ segir Soffía. „Það
var sko bara tveir fyrir einn hjá
mér. En ég elska að hafa þau öll
heima. Kjartan Logi flutti að heim-
an í haust mér til mikillar sorgar
og það munar um hvert barn. Mér
fannst hrikalega erfitt þegar hann
flutti, móðurhjartað næstum brast.
Ég áttaði mig þá á að auðvitað eiga
þau öll eftir að fara að heiman. Sá
elsti útskrifaðist úr hagfræði fyrir
tveimur vikum og hann er að sækja
um að fara í mastersnám í Banda-
ríkjunum, þannig að þá verð ég líka
að sjá af honum. Stóru strákarnir
Egill, Kjartan, Stefán og Gunnar
eru svo hjálplegir, skutla systkinum
sínum á æfingar og hjálpa á allan
hátt svo þetta verða mikil viðbrigði
fyrir okkur.“
Þær vinna á vöktum, nætur-
vaktir þýða að þær mæta hálf fjögur
síðdegis og vinna til hálf níu næsta
morgun:
„Þá förum við annað hvort heim
eða í næstu vinnu,“ segir Soffía.
„Ég fer á stofu í Domus og Ýr á
Greiningarstöðina. Svo tökum við
líka kvöldvaktir hjá Barnalækna-
þjónustunni.“
Hvað gerið þið til að hvíla ykkur?
„Ég horfi á fótbolta í sjónvarp-
inu,“ segir Ýr og bætir við: „og ég
veit allt um enska boltann...“
„Heyrðu, bíddu nú aðeins,“ segir
Soffía. „Ég hafði ekki hugmynd
um þetta og hef þekkt þig í 25 ár!
Mér finnst best að setjast niður
með rauðvínsglas og horfa aðeins
á sjónvarpið. Svo var verið að setja
upp gufubað í húsið hjá okkur og
nú sitjum við öll í gufu öll kvöld og
þá verða allir eins og mjúkir ostar.
Hvert barn leggst í sitt rúm og
steinsofnar á augnabliki!“
Hörkukonur og dýravinir
Báðar eru þær miklir dýravinir og
segja skemmtilegar sögur af dýr-
unum sínum. Soffía byrjar:
„Áður en við fluttum til Banda-
ríkjanna áttum við læðu sem
eignaðist kettlinga fjórum vikum
áður. Læðan fór í fóstur. Á heim-
leiðinni, þrettán árum síðar, segir
einn sonanna: Hvernig er það svo
með köttinn okkar, fáum við hann
ekki aftur? Þetta hefði auðvitað
verið afar eðlileg spurning nema
að þessi strákur var ekki einu
sinni fæddur þegar við fluttum
út! Svo talaði hann um köttinn
OKKAR eins og hann hefði verið
þar fremstur í flokki.“
„Ég er búin að fá mér öll
heimsins gæludýr,“ segir Ýr. „Ég
var með dísarpáfagauk og kött
áður en við fluttum út. Í Ameríku
fengum við okkur fiska og stökk-
mýs og stökkmýsnar voru settar
í gæslu í gæludýrabúðinni meðan
við fórum til Íslands í frí. Svo
mættum við til að sækja okkar
mýs og þá segir eigandinn mjög
vandræðalegur að það hafi orðið
smá óhapp með mýsnar. Óhapp?
Hvað gerðist? Jú, við gáfum snák-
unum þær óvart í hádegismat. Þá
fékk ég mér hund, síðan annan
hund og flutti þá báða til Íslands.
Þeir eru báðir dánir, en núna
eigum við enskan fjárhund sem
heitir Muggur. Það var þannig að
ef ég var ekki ófrísk, þá fór mig
að langa í gæludýr. Er þetta ein-
hver bilun? Ég verð hamingjusam-
ari eftir því sem ég er með fleiri
í kringum mig og ber ábyrgð á
fleirum.“
Ýr lítur á klukkuna og segist
verða að fara. Ég spyr hvort það sé
að byrja leikur í enska boltanum:
„Nei, nei, ég þarf að mæta í
matarboð klukkan fimm.“
En Soffía, ekki liggur þér á?
„Jú, ég á von á sextíu gestum á
morgun og nú er ég að fara heim
að baka. Það á að fagna hagfræði-
prófi sonarins. Við erum í ágætis
jafnvægi og við til dæmis leggjum
okkur aldrei þótt við séum að
fara á næturvaktir. Við þurfum
líka að vera í góðu jafnvægi í
þessu starfi,“ segir Soffía og lítur
stríðnislega á Ýr.
„Já, já, ég veit alveg hvað hún er
að meina,“ segir Ýr brosandi. „Ég
hef nefnilega einu sinni notfært
mér að eiga átta börn. Þá var
ein amma sem átti barnabarn á
deildinni og dró í efa allt sem ég
sagði og nánast sagði beint út að
ég kynni ekkert. Ég sagði kurteis-
lega að ég hefði nú starfað við
þetta í fimmtán ár og væri komin
með góða þekkingu á þessum
sjúkdómi. Þá hallaði amman
sér yfir borðið til mín og nánast
hvæsti: Jahá, en ég er nú búin að
ala upp fimm börn! Þá hallaði ég
mér að henni og sagði: „Og ég
átta!“
viðtal 31 Helgin 23.-25. mars 2012