Fréttatíminn - 23.03.2012, Side 32
Friðarhöfðingi á
friðarstóli
Forseti vor, Ólafur
Ragnar Grímsson,
ætlar að ávarpa samkomu
í bandarískum háskóla. Þar
er hann kynntur til leiks sem
Dalai Lama norðursins. Fólk
á Facebook rak upp stór augu
enda mörgum Íslendingnum
baráttugleði og pólitískt
vopnaskak forsetans vel kunn.
Þráinn Bertelsson
Hann hefur náð áður óþekktum
hæðum. Dalai Lama norðursins!
Allsherjargoði útrásarvíking-
anna! Hans forsetalega hátign!
Jónas Kristjánsson
Til að styggja ekki bófa í Kína
neitaði Dalai Lama norðursins
fyrir hálfu þriðja ári að tala við
hinn ekta Dalai Lama
Ómar R. Valdimarsson
Ef Dalai Lama norðursins
endurholgast (í samræmi við
kenningar búddisma), í hvaða
formi haldið þið að það verði?
Ingimar Ingimarsson
hahahhahahahhahahahah
Sveinn Andri Sveinsson
er Dalai Lama Borgartúnsins
Helgi Seljan
Dalai Lama hefur ákveðið
að héðan í frá muni hann
einungis gegna kallmerkinu
Ólafur Ragnar Suðursins.
Heiða B Heiðars
Dalai Lama Norðursins.........
lífið er ein stór lygasaga og for-
seti lýðveldisins hangir saman
á lyginni.
Ævar Örn Jósepsson
Ég hélt að forsetinn væri
verndari þjóðkirkjunnar, en
svo reynist hann bara leiðtogi
norrænna búddista. Hver hefði
trúað því?
Hugi Þórðarson
Íslenska sauðkindin er Llama
norðursins.
Það er ekki vænisýki þegar
þeir eru á eftir þér
Jakob F. Ásgeirsson, útgefandi
Uglu og ritstjóri Þjóðmála,
vandaði Fréttablaðinu og
ritdómara þess ekki kveðjurnar
í aðsendri grein á fimmtudag
þar sem hann taldi víst að
bók sem hann gaf út um ævi
Rollingsins Keith Richards hefði
fengið ómaklegan dóm í blaðinu
vegna væringa hans við Jón
Ásgeir Jóhannesson.
Þórunn Hrefna
Dæs, hvað ég sakna sam-
verustunda okkar Jóns Ásgeirs
frá því í jólavertíðinni. Þá keypti
hann iðulega handa mér kaffi
og croissant og piparkökur og
jólaglögg, sem ég slokaði niður
sæl á meðan hann sagði mér
hvað ég ætti að
skrifa. Þetta var
bæði auðveld vinna
og skemmtileg
og JÁJ hefur aldeilis frábæran
bókmenntasmekk.
Helgi Seljan
Keith Richards er kominn í
hóp óvina Baugs! Samkvæmt
kenningu dagsins er dagskipun
Jóns Ásgeirs sú að fjölmiðlar
taki Keith niður með öllum
ráðum, til þess að ná sér niðri á
Þjóðmálum.
Sigurjón Egilsson
Þessi er með geggjaða kenn-
ingu. Gaf út bók sem fékk
slæma dóma í Fréttablaðinu.
Sannfærður að það sé vegna
þess að Jóni Ásgeiri sé í nöp við
sig. Toppur dagsins.
Örn Úlfar Sævarsson
Keith verður eflaust leiður
að heyra af þessari úlfúð –
mannasættarinn sem hann er.
Gunnar Smári Egilsson
Það er allavega gott að vita
að Keith Richards hefur ekki
látið narrast og heldur sig fjarri
Baugsliðinu.
Stefán Pálsson
Jakob F. Ásgeirsson skrifar
í Fréttablaðið í dag. Skyldu-
lesning fyrir áhugamenn um
vænisýki og almenna geggjun.
32 fréttir vikunnar Helgin 23.-25. mars 2012
150
krónur er upphæðin sem
undirskriftarsafnarar
Ástþórs Magnússonar fá
fyrir hvert nafn sem safnast
á meðmælalista forseta-
frambjóðandans samkvæmt
bloggaranum Gísla Ásgeirs-
syni.
Góð vika
fyrir Birki Hólm forstjóra Icelandair
Slæm vika
fyrir Vigdísi Hauksdóttur
þingkonu Framsóknarflokksins.
3
milljónir af nýjustu gerð i-Pad
spjaldtölva hafa selst frá því
að hún var sett á markað í
tíu löndum undir lok síðustu
viku.
Innlendir smákrimmar
voru það heillin
Þegar fréttir bárust af misheppnaðri tilraun til skartgriparáns var
Vigdís Hauksdóttir þingkona eldsnögg að bregða sér í hlutverk
Sherlock Holmes og álykta að þarna hefðu verið á ferðinni útlendir
glæpamenn sem hefðu sloppið framhjá hauk-
fránum augum tollara landsins, vegna
Schengen samningsins. Sem betur
fer er Stefán Eiríksson lögreglu-
stjóri með öflugri spæjara á
sínum snærum en Vigdísi. Þegar
til kastanna kom reyndust söku-
dólgarnir vera rammíslenskir
og á táningsaldri. Þessi tilraun
Vigdísar til að fiska í gruggugu
vatni andúðar á útlendingum
og alþjóðlegu samstarfi endaði
sem sagt með því að hún lenti
með hausinn á undan í
drullupollinum, sem getur
aldrei verið gott.
2,5
vikan í tölum
HeituStu kolin á
prósent íslensku þjóðarinnar glíma við
spilavanda samkvæmt rannsókn sem gerð var
á síðasta ári um spilahegðun og hversu algeng
spilafíkn er.
Stundvísasta flugfélag Evrópu
Fyrir fólk í ferðageiranum er fátt mikilvægara en ánægðir
viðskiptavinir. Og eitt af því sem gleður ferðalanga allra mest
er að komast á áfangastað á réttum tíma. Birkir Hólm og lið
hans hjá Icelandair fagnaði í vikunni fréttum af því að ekkert
flugfélag í Evrópu gat státað að jafngóðri stundvísi í febrúar.
Þetta kemur fram í
nýjustu könnun Evr-
ópusambands
flugfélaga sem
heldur bókhald
um stundvísi
félaga sinna.
Stundvísi
Icelandair var
90,6 prósent
samkvæmt
könnuninni, sem
er vel af sér vikið.
Dánarbúi Jóns á hafsbotni
Hluti dánarbús Jóns Sigurðssonar forseta og
legsteinn Kristjáns Jónssonar Fjallaskálds
liggur óhreyft á hafsbotni við Löngufjörur
á Snæfellsnesi. Munirnir eru úr flaki danska
gufuskipsins Phønix sem strandaði 1881.
Togarasjómaður lést
Sjómaður lést í slysi um borð í togar-
anum Sigurbjörgu ÓF á Ísafjarðardjúpi á
miðvikudag. Óskað var eftir aðstoð Land-
helgisgæslunnar og flaug þyrla að skipinu
með lækni. Hann seig um borð en maðurinn
var þá látinn.
Styrkir til fornleifarannsókna
Fornleifasjóður hefur úthlutað 32 milljónum
til 24 rannsakenda en alls bárust 49 um-
sóknir í sjóðinn. Rannsókn í kirkjugarðinum
á Hofsstöðum í Mývatnssveit fékk hæsta
styrkinn í ár, 3,5 milljónir.
Mörg umboðssvikabrot
Fjármálaeftirlitið hefur vísað 36 umboðs-
svikabrotum til ákæruvaldsins frá hruni.
Flest mál sem stofnunin hefur sent til
sérstaks saksóknara tengjast lánum þar
sem fjármálastofnanir lánuðu til að kaupa
hlutabréf í sjálfum sér.
679
milljónir er upphæðin sem
hluthafar HB Granda frá í
arðgreiðslu fyrir árið 2011
samkvæmt ársreikningi
félagsins.
234
mörk hefur argentínski
snillingurinn Lionel Messi
skorað fyrir Barcelona. Hann
hefur nú skorað flest mörk
allra í sögu félagsins og
bætti met Cesar Rodriguez
frá árinu 1955 um tvö mörk á
þriðjudag.
Tómas Waage veggfóðr-
ararmeistari tók sig til og
breytti gamalli sláttuvél
í snjóplóg. Hann lengdi
tækið um 40 sentimetra
og þyngdi með sandkistu
yfir afturöxli. Þegar hefur
snjóað sést til hans ryðja
gangstéttir í Hátúni, þar
sem hann býr. Allt í sjálf-
boðaliðavinnu, aðeins
ánægjunnar vegna. Svona
eiga menn að vera.
Ljósmynd/Hari
Aðalstræti 2 / 101 Reykjavík / Sími: 517 4300 / www.geysirbistro.is
Borðapantanir í síma 517-4300
Humarsalat & Hvítvín 2.250 kr.
Humarsalat með hægelduðum smátómötum, mangó,
sultuðum rauðlauk og ristuðum cashew-hnetum
ásamt hvítvínsglasi.
Bláskel & Hvítvín 2.950 kr.
Hvítvínssoðin bláskel úr Breiðafirði ásamt
hvítvínsglasi.
G
e
y
s
ir
Bi
stro & Bar
FERSKT
&
FREiSTa
ndi
Fagmennska
í Fy
ri
rr
ú
m
i
SpennAndi
sjávarrétta
tilBoð