Fréttatíminn


Fréttatíminn - 23.03.2012, Page 33

Fréttatíminn - 23.03.2012, Page 33
Fært til bókar islandsbanki.is | Sími 440 4000 Við bjóðum góða þjónustu Við bjóðum góðar framtíðarhorfur Með honum geta foreldrar, ömmur, afar, frændur eða frænkur tryggt fermingarbarninu veglegan sjóð sem losnar við 18 ára aldur, um það bil þegar næstu stóru áfangar í lífinu blasa við. Hann ber hæstu vexti almennra verðtryggðra innlánsreikninga bankans og er því framúrskarandi valkostur fyrir langtímasparnað. Hægt er að stofna og leggja inn á Framtíðarreikning í útibúum Íslandsbanka. Framtíðarreikningur Íslandsbanka er góð fermingargjöf Tvöfaldur skammtur Minningargreinar Morgunblaðsins eru einn helsti einkennisþáttur blaðsins og víst má telja að þær haldi að minnsta kosti eldri lesendum þess við efnið. Greinarnar eru á sinn hátt persónufræði þar sem rakin er ætt hins látna, uppruni og afkomendur, auk ævistarfa. Þegar Morgunblaðið og DV skiptu með sér dag- blaðamarkaði á sínum tíma vildi Jónas Kristjánsson ritstjóri koma persónu- fræðum að í sínu blaði. Úr varð að blaðið hóf árið 1987 að birta ættfræðitengdar afmælisgreinar þeirra sem áttu stóraf- mæli, lista yfir stórafmælisbörn dagsins og ættfræði merkra Íslendinga. Til verks- ins var valinn einn helsti ættfræðingur landsins, Sigurgeir Þorgrímsson. Fljót- lega gerðist Kjartan Gunnar Kjartans- son, blaðamaður blaðsins, aðstoðarmað- ur hans. Eftir andlát Sigurgeirs árið 1992 tók Kjartan Gunnar við ættfræðisíðunni og hélt henni úti allt þar til rekstur DV fór í þrot haustið 2003. Kjartan Gunnar hóf ættfræðiskrif nokkru síðar í endurreistu DV og var svo þar til nýverið er hann hóf ættfræði- og afmælisskrif í Morgun- blaðinu. Þar með eru persónufræðin næsta fullkomin orðin hjá Morgunblaðinu, tvöfaldur skammtur ef svo má segja, þar sem í senn er getið ættartengsla afmælis- barna og æviágrips þeirra sem gengnir eru, auk fylgjandi minningarorða. Íslend- ingasafn Kjartans Gunnars, sem orðið hefur til undanfarinn aldarfjórðung, er því orðið hið merkasta. DV birtir afmælis- og ættfræði áfram þrátt fyrir brotthvarf Kjartans Gunnars. Dalai Lama norðursins Dálæti vefritsins Smugunnar á Ólafi Ragnari Grímssyni virðist vera tak- markað. Fyrr í vikunni var þar forsíðu- tilvísun á bloggskrif Láru Hönnu Einars- dóttur sem vakti athygli á auglýsingu þar sem forsetanum var líkt við sjálfan Dalai Lama. Lengra verður varla gengið í samlíkingu við dauðlega menn en Dalai Lama er andlegur leiðtogi Tíbeta. Þar sagði: „Ég verð að játa að mér var illilega brugðið þegar ég sá þessa auglýsingu í morgun,“ skrifar Lára Hanna Einars- dóttir um auglýsingu bandarísks há- skóla fyrir málþing þar sem Ólafur Ragn- ar Grímsson eða Dalai Lama norðursins, er í aðalhlutverki. „Allt sem þarna stend- ur stingur í augu. Ólafur Ragnar kallaður Dalai Lama norðursins? Ekkert kapp- hlaup um auðlindir norðurheimskauts- svæðanna? Ólafur Ragnar að segja sannleikann og leiðrétta goðsagnir?“ „Verður einhver íslenskur fréttamaður eða fræðimaður sendur á staðinn til að leiðrétta rangfærslur og misskilning?“ segir Lára Hanna jafnframt.“

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.