Fréttatíminn - 23.03.2012, Síða 37
og ná að dorma í sófanum fyrir
framan sjónvarpið, í þessum heimi
en aðallega öðrum, meðan börnin
fylgjast með ævintýrum Dóru
landkönnuðar, Nappa sem ekki má
nappa, Kóala-bræðra, strumpanna
og klassískra fígúra eins og Mikka
músar og félaga. Ef rigning er eða
leiðinlegt veður má síðan bjarga
síðdegi með Konungi ljónanna,
Leikfangasögu eða fylgjast með
ævintýrum hins skrautlega fisks
Nemo og annarra sjávardýra í
öllum regnbogans litum.
Afinn viðurkennir að dotta yfir
þessum myndum líka og hefur
aldrei komist í gegnum heila mynd
þessarar gerðar. Það breytir engu.
Ég kannast við nöfnin þegar ég
heyri þau og er því, eftir atvikum,
bærilega viðræðuhæfur.
Ónefndar eru Skoppa og Skrítla.
Þær eru meðal bestu vinkvenna
tveggja afadrengja á þriðja ári.
Varla bregst að þeir eiga stund
með þeim í heimsókn til afa og
ömmu. Svo var einnig um liðna
helgi þegar mér var falið að gæta
annars þeirra í stutta stund á með-
an mamman og amman brugðu
sér af bæ. Valinn var þáttur þar
sem þær stöllur heimsækja Hús-
dýragarðinn og kynna börnunum
ýmis dýr. Ungi maðurinn horfði
áhugasamur á þáttinn en þrátt fyr-
ir fegurð og litadýrð náðu Skoppa
og Skrítla ekki að halda afanum
vakandi, enda kom fátt á óvart
í þættinum eftir gegndarlausa
spilun misserum saman. Það var
því lítið fjör í steinsofandi afanum
þegar þættinum lauk. Drengur-
inn ráfaði því fram en varð einn í
heiminum í stofunni. Grátur hans
vakti afa sem hljóp til og bjargaði
málum. Helst hefði góður grjóna-
grautur frá ömmu sefað þann
dálitla en hún var víðs fjarri. Mál-
inu var því reddað með ostsneið.
Drengurinn lét það gott heita, þótt
dæmið sýni í hnotskurn muninn á
ömmu og afa.
Elsta barnabarnið, níu ára
drengur, kom svo daginn eftir í
heimsókn með foreldrum sínum.
Hann fékk Andrésblað að gjöf,
enda duglegur að lesa þótt hann
kunni svo sannarlega að finna
myndefni við sitt hæfi í sjón-
varpi, tölvum og síma – svo ekki
sé minnst á tölvuleiki fótboltans.
Andrésblaðið las drengurinn sér
til ánægju, eins og kynslóðirnar á
undan honum. Mín kynslóð lærði
meira að segja svolítið í dönsku
á slíkum lestri og lengi framan
af hélt ég að Andrés, Andrésína
og Jóakim Aðalönd, móðurbróðir
Andrésar, væru dönsk að uppruna
en ekki úr smiðju Disney gamla í
Vesturheimi.
Allt í einu leit drengurinn upp
úr Andrésblaðinu. Þar hafði hann
rekist á spurningalista ætlaðan
lesendum blaðsins. „Mamma,“
sagði hann, „hver er eini Nóbels-
verðlaunahafinn í bókmenntum
sem Íslendingar hafa eignast?“
Móðirin leiddi drenginn að réttu
svari með einfaldri líkingu. „Hann
heitir alveg eins og amma, nema
það er karlmannsútgáfan af nafn-
inu.“ „Ah,“ sagði strákur strax,
„hann heitir Halldór.“ „Rétt,“ sagði
hreykin móðirin, „og hvað meira?“
sagði hún um leið og hún leiddi
piltinn á rétta braut eftirnafns
nóbelsskáldsins okkar, „það er
svona eins og fiskurinn,“ bætti hún
við og trúði því að laxfiskur leiddi
soninn að svarinu.
Strákurinn var ekki alveg viss
um skáldjöfurinn en ýmislegt
hafði greinilega síast inn í kollinn
af því sem hann hafði lesið og séð
í myndunum góðu – svo svarið var
í örlítilli spurn um leið og hann leit
á móður sína:
„Er það Halldór Nemo?“
Ergo vill stuðla að fjölgun á umhverfishæfari bílum á Íslandi og býður því græn
bílalán. Græn bílalán standa til boða við kaup á bílum í útblástursflokkum A, B
og C og eru þau án lántökugjalda út júnímánuð 2012.
Kannaðu kosti grænna bílalána á ergo.is
Engin lántökugjöld á
grænum bílalánum
Suðurlandsbraut 14 > sími 440 4400 > www.ergo.is > ergo@ergo.is
Helgin 23.-25. mars 2012 viðhorf 37
Fært til bókar
Ekki lengur á reiðhjóli
Einar „Boom“ Marteinsson hefur verið til umfjöllunar
sem foringi Hells Angels, segir í austfirska héraðsblaðinu
Austurglugginn og upplýsir að Einar hafi þó fyrst vakið
athygli fyrir afrek í reiðhjólakeppni og íþróttum þegar
hann var barn á Eskifirði. „Það var sumarið 1985 sem
BFÖ (Bindindisfélag ökumanna) og DV ferðuðust um
landið með ökuleikni. Keppt var á bílum, vélhjólum og
reiðhjólum og var Eskifjörður á meðal viðkomustaða. Þar
vakti athygli framganga Einars Inga Marteinssonar
sem stóð sig best í eldri flokki, 13 ára og eldri, á reið-
hjólum, fékk þar 97 refsistig. Bæði var keppt í þrauta-
braut og umferðarspurningum og stóð Einar Ingi sig
best í báðum riðlunum. Í myndatexta með frétt DV frá
1. júlí 1985 segir að Einar Ingi hafi sýnt „mikið öryggi“
í þrautabrautinni,“ segir Austurglugginn. „Aðra frétt
um íþróttafrek Einars Inga má finna í DV í september
1986," segir blaðið enn fremur, „hann var þá stiga-
hæstur Austrafólks í flokki 14 ára og eldri á Sumarhá-
tíð UÍA með 16 stig. Einar er í dag þekktur sem Einar
„Boom“ Marteinsson og er formaður Hells Angels á
Íslandi. Hann situr í gæsluvarðhaldi, grunaður um
aðild að hrottalegri líkamsárás á konu í Hafnarfirði
skömmu fyrir jól.“