Fréttatíminn - 05.10.2012, Blaðsíða 6
Verðdæmi á mann:
1. nóv - 4 nætur
Dublin
87.900 kr.*
*m.v. 2 fullorðna í tvíbýli á Hotel Camden Court með morgunmat.
D anskur maður sem hafði feðrað 43 börn og smitað níu þeirra af erfða-sjúkdómi með stökkbreyttu geni
er talinn líffræðilegur faðir eins barns á Ís-
landi. Sjúkdómurinn sem um ræðir kallast
Recklinghausen-heilkennið og er taugasjúk-
dómur. Danski sæðisbankinn Nordisk Cyro-
bank situr undir ámæli fyrir vikið. Íslenska
fyrirtækið Art Medica skiptir við tvo erlenda
sæðisbanka, annar þeirra er danski bankinn.
Engar opinberar reglur eru um sæðisgjafir á
Íslandi og engar lagalegar takmarkanir fyrir
því hversu oft einn maður getur gefið sæði
hér á landi.
Þórður Óskarsson, sérfræðingur hjá
Art Medica, segir að fyrirtækið reyni eftir
fremsta megni að fylgjast með sæðisgjöfum
og fjölda þeirra. Hann staðfestir í viðtali
við Fréttatímann að skipta við Nordisk
Cyrobank, sem hann segir einn af stærstu
bönkunum. Þórður segir jafnframt að sér
þyki umrætt mál mjög leiðinlegt og fjöldi
barnanna frá þessum tiltekna gjafa heldur
hár. Hann segir að slíkt sé ekki algengt
og að vinnubrögð Nordisk Cyrobank
séu með þeim bestu í heiminum.
„Ef það ætti að skima fyrir öllum
mögulegum sjúkdómum myndi
sæðiskammturinn kosta hátt
í fimm hundruð þúsund í stað
fimmtíu og það er ekki hægt að
bjóða upp á það,“ segir Þórður en
bendir á að hjá Nordisk Cyro-
bank séu gerð mjög ítarleg erfðafræðipróf,
þó ekki sé skimað fyrir þessum tiltekna
sjúkdómi.
Á Íslandi eru getin á bilinu 20-30 börn með
gjafasæði ár hvert. Þórður segir að vegna
þess hve fá þau eru sé tiltölulega auðvelt að
fylgjast með þeim. Hann segir að viðmiðið
sé að hver gjafi feðri ekki fleiri en fimm börn
á Íslandi en að þau börn séu ekki í fleiri en
þrem fjölskyldum. Sem merkir að barn getur
átt allt að tveimur systkinum sem það veit
ekki um hér á landi.
„Hægt er að sækjast eftir upplýsingum um
tengsl barna eftir að þau ná átján ára aldri,
sé sæðisgjafinn þekktur. Það eru ekki allir
gjafar þekktir en það hefur þó breyst mikið í
seinni tíð. Nú eru allt að níutíu prósent þeirra
sem að gefa sæði þekktir gjafar,“ segir
Þórður.
María Lilja Þrastardóttir
marialilja@frettatiminn.is
SæðiSgjöf Engar opinbErar rEglur um SæðiSgjafir á íSlanDi
Danski sæðisgjafinn
blóðfaðir íslensks barns
Nýverið kom
upp mál
þar 43 börn
voru getin
með sæði
sama, danska
sæðisgjafans.
Hann var
með stökk
breytt gen
sem veldur
tauga sjúk
dómi. Íslenska
fyrirtækið
Art Medica er
eini starfandi
sæðisbankinn
hér á landi.
Sérfræð ingur
þar segir
umrætt mál
mjög erfitt,
en fyrir
tækið reyni
eftir fremsta
megni að
fylgjast með
börnunum
sem getin eru
með sæðis
gjöf. Það er
hinsvegar
aðeins hægt
ef sæðis
gjafinn er
þekktur.
Eitt barn var getið hér á landi
með sæði frá danska sæðis
gjafanum en með sæði hans
voru 43 börn í Danmörku
getin. Þórður Óskarsson,
sérfræðingur hjá Art Medica,
segir vinnubrögð sæðisbankans
til fyrirmyndar. Ljósmynd/Hari
5
Einn sæðisgjafi
gæti feðrað fimm
börn á Íslandi en
aldrei í fleiri en
þrem fjölskyldum.
Sem merkir að
sum börn gætu
átt allt að tvö
systkini sem þau
vita ekki um.
Hálft fæði og allar skoðunarferðir innifaldar
Aðventan er heillandi tími til að sækja Þýskaland heim. Ljósadýrðin gefur þessum árstíma
birtu og ilmur frá jólaglöggi og hunangskökur koma öllum í jólastemningu. Ferðin hefst
með flugi til Frankfurt, ekið til Eisenach, fæðingarborgar bæði Martins Luthers og Johanns
Sebastians Bachs, og gistum þar í 2 nætur. Þessi heillandi borg með Wartburg-virkinu,
sem telst til merkustu miðaldavirkja landsins, býður upp á líflegan jólamarkað. Þaðan ekið
til Dresden, sem er höfuðborg Saxlands. Borgin varð á 15. öld aðsetur Wettiner-furstanna
og afkomandi þeirra var Ágúst sterki, sem sem átti stóran þátt í að gera Dresden að
hinni undurfögru svokallaðri „Flórens við Saxelfi“. Gistum þar í 4 nætur. Á leiðinni þangað
verður komið til Weimar en borgin skipar stóran sess í þýskri sögu en þar var stjórnarskrá
Weimarlýðveldisins samþykkt. Einnig verður komið til Meissen sem er sérstaklega þekkt
fyrir Meissen-postulínið, eitt elsta og verðmætasta postulín í Evrópu, en þar er líka einn
af fegurstu jólamörkuðum Þýskaland. Endar ferðin á að ekið verður til barokkborgarinnar
Fulda þar sem gist verður síðustu nóttina.
Fararstjóri: Kristín Jóhannsdóttir
Verð: 174.640 kr. á mann í tvíbýli
Innifalið: Flug, skattar, hótelgisting, hálft fæði, allar skoðunarferðir með rútu og
íslensk fararstjórn.
www.baendaferdir.is
Sp
ör
e
hf
.
s: 570 2790
A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R
30. nóvember - 7. desember
Travel Agency
Authorised by
Icelandic Tourist Board
Aðventudýrð í Dresden
AÐVENTA 3
20-30
börn getin með
gjafasæði á Ís
landi ár hvert.
43
Börn getin frá
þeim sama
manni.
9
Með sjúkdóminn NF1 eða Recklinhausenheil
kennið sem er arfgengur taugasjúkdómur.
Orsök sjúkdómsins er stökkbreytt gen.
Sjúkdómurinn getur haft áhrif á útlit þess
sem hann hefur, ljósbrúnir blettir á húð og
góðkynja æxli geta myndast víða, ýmist í
klösum eða út frá taugaendum. Sjúkdómurinn
getur valdið hryggskekkju, skertri stjórnun á
útlimum eða lömun. Einnig getur komið fram
bólga á sjóntaug sem veldur sjóntruflunum.
Danski sæðisgjafinn
með stökkkbreytt gen.
Lee Bucheit, fyrrverandi for-
maður íslensku samninga-
nefndarinnar um Icesave, fékk
ekki tvígreidda reikninga vegna
starfa sinna fyrir Ísland, að því er
fram kemur í svari frá fjármála-
ráðuneytinu. Fréttatíminn sendi
ráðuneytinu fyrirspurn í fram-
haldi af fréttum af tvígreiðslum
og skýrslu Ríkisendurskoðunar
til Alþingis um úttekt og inn-
leiðingu fjárhags- og mannauðs-
kerfis ríkisins sem það keypti af
Skýrr, nú Advania.
„Aðeins er vitað um eitt tilvik
sem komið hefur upp á vegum
fjármálaráðuneytisins þar sem
tvígreiðsla reiknings átti sér
stað,“ segir Gunnar Tryggvason,
aðstoðarmaður fjármálaráð-
herra. Um var að ræða viðskipti
við erlendan ráðgjafa þar sem
frumrit reikninga bárust tvisvar
sinnum með sömu fylgiskjölum.
Tvígreiðslan var rakin til mann-
legra mistaka. „Mistökin komu
í ljós strax, bæði af innra eftirliti
ráðuneytisins og erlenda aðil-
anum. Endurgreiðsla fór strax
fram,“ segir Gunnar. -sda
fjárSýSla aðEinS Eitt tilvik um tvígrEiðSlu
Tvígreiðslan mannleg mistök
Lee Bucheit.
„Hægt er að
sækjast eftir
upplýsingum
um tengsl
barna eftir að
þau ná átján
ára aldri.“
Á Íslandi eru getin á bilinu 2030 börn með gjafasæði ár hvert.
Fékkstu ekki
Fréttatímann
heim?
Fréttatímanum er dreift á öll heimili á höfuðborgarsvæðinu.
Ef þú fékkst ekki blaðið heim, láttu okkur þá vita með
tölvupósti á dreifing@frettatiminn.is
Sjáðu blaðið líka á frettatiminn.is
6 fréttir Helgin 5.7. október 2012