Fréttatíminn - 05.10.2012, Blaðsíða 58
42 heilsa Helgin 5.-7. október 2012
Kólesteról í blóði íslendinga fer minnKandi
Hjarta og æðasjúkdómar
algengasta dánarorsökin
– Lifið heil
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
Y
F
6
12
46
0
9/
12
www.lyfja.is
Lægra
verð
í LyfjuStrepsils jarðarberja
Áður: 1.299 kr. Nú: 1.099 kr.
15%
afsláttur
Gildir í október 2012.
H jarta- og æðasjúkdómar eru ein algengasta dánarorsök á Íslandi og um gjörvalla Evrópu. Dauðsföllunum fer þó fækkandi hér á landi og
spilar þar margt saman. Dregið hefur verulega úr reyk-
ingum, en reykingar eru einn stærsti áhættuþáttur
kransæðasjúkdóma. Jákvæðar breytingar hafa einnig
orðið á öðrum þekktum áhættuþáttum þessara sjúk-
dóma, t.d. blóðþrýstingi og kólesteróli í blóði.
Efri mörk blóðþrýstings hafa farið lækkandi undan-
farna áratugi meðal Íslendinga, og einnig hefur
kólesteról í blóði landsmanna lækkað. Rannsóknir
Hjartaverndar sýna þó aðeins lækkun heildarkólester-
óls, en gefa ekki upp hlutfallið milli „vonda“ og „góða“
kólesterólsins sem er það sem mestu máli skiptir fyrir
þróun kransæðasjúkdóms.
Anna Ragna Magnúsardóttir, doktor í heilbrigðis-
vísindum, segir ástæðuna ekki bara vera betri lyf
og læknismeðferð, því lækkunin í þessum tveimur
áhættuþáttum og fækkun sjúkdómstilfella hófst áður
en ný og betri blóðþrýstingslækkandi og blóðfitu-
lækkandi lyf komu á markaðinn. Ástæðan er líklega
breytingar á mataræði sem urðu á sama tíma, en
hún segir viðfangsefnið erfitt til rannsóknar þar sem
fylgni geti aldrei sannað að um orsakasamhengi sé að
ræða. Þó séu mjög sterkar vísbendingar um skaðsemi
transfitu, og mettuð fita hækki vissulega „vonda“
kólesterólið í blóðinu, en þó ekki eins mikið og trans-
fitan.
,,Uppúr 1980 komu til sögunnar ný lyf og í fyrstu
var lækkuð tíðni hjarta- og æðasjúkdóma og færri
dauðsföll rakin beint til þeirra. Það er þó ekki alls-
kostar rétt þar sem breytingin hófst fyrr. Strax á
sjötta áratugnum voru rannsóknir farnar að gefa
til kynna að mettuð fita væri slæm fyrir hjartað en
ómettuð fita ekki. Lýðheilsuskilaboðin voru framan
af einfölduð, og mælt með minni neyslu á fitu af öllum
gerðum. Það skilaði sér meðal annars í minni neyslu
mettaðrar fitu hér á landi. Því miður jókst neysla
transfitu til að byrja með, því farið var að steikja upp
úr smjörlíki fremur en smjöri. Fólk hélt einfaldlega
að það væri hollara, en á þessu tímabili jókst tíðni
kransæðasjúkdóma mikið. Seinna skiptu flestir yfir
í jurtaolíur, sem eru ómettaðar og mun hollari. Mat-
vælaiðnaðurinn fór líka að bjóða upp á fituskertan og
fitusnauðan mat en áunnin sykursýki og offita jókst í
kjölfarið, þó tíðni hjarta- og æðasjúkdóma hafi lækkað
eins og áður segir. Ástæðan er sú að ef fólki er sagt
að hætta að borða einhverja fæðutegund, þá verður
það að borða eitthvað annað í staðinn. Í stað mettuðu
fitunnar var til dæmis sykur og hveiti notað í ríkara
mæli, sem stuðlaði að offitu og sykursýki. Hreyfi-
mynstur fólks fór líka að breytast, því það varð minni
þörf fyrir hreyfingu í vinnunni og daglega lífinu, eftir
því sem bílaeign, fjarstýringar og lyftur urðu algeng-
ari, og fólk á öllum aldri fór að sitja við tölvu- eða sjón-
varpsskjá tímunum saman.“
Anna Ragna segir að með heilsuvakningu síðustu
ára sé fólk orðið mun meðvitaðara um hvað það lætur
ofan í sig. Einnig hefur skipulögð hreyfing í frítíma
aukist, sem betur fer. Stjórnvöld hafa líka brugðist við
með því að innleiða reglugerð um hámark transfitu í
matvælum.
„Aukin meðvitund fólks um skaðsemi transfitu og
fínunninna kolvetna, og mikilvægi þess að hreyfa
sig er mjög jákvæð þróun og einnig inngrip yfirvalda
með reglugerðum. Stuðla verður áfram að jafnvægi
neysluvenja, en þó reglugerðin um transfitu sé til
staðar eru sumir skyndibitastaðir ennþá að bjóða upp
á mjög transfituríkan mat. Ástæðan er sú að transfita
á það til að myndast í jurtaolíu sé hún hituð mikið og
lengi. Svo vil ég bara í lokin mæla eindregið með lýsi
eða annarri uppsprettu ómega-3, það er gott mótvægi
við ómega-6 úr jurtaolíum og mettuðu fituna sem við
fáum úr mjólkurvörum og kjöti. Lýsi er það besta fyrir
hjarta- og æðakerfið.“
María Lilja Þrastardóttir
marialilja@frettatiminn.is
Anna Ragna Magnúsardóttir,
doktor í heilbrigðisvísindum.
Dregið hefur
töluvert úr hætt-
unni síðustu ár,
ástæðan ekki
endilega betri lyf.
Up
pli
tas
t e
kk
i í
só
lar
ljó
si
Hollar hafrakökur
150 gr haframjöl
2 msk kókosflögur
1 msk sólblómafræ
1 msk graskersfræ aðeins hökkuð
1 msk möluð hörfræ
25 gr saxaðar döðlur (má sleppa)
3 msk hrísgrjónasíróp
5 msk kaldpressuð valhnetuolía (eða önnur góð olía)
Stillið ofninn á 180°.
Blandið þurrefnunum saman.
Bætið sírópinu og olíunni saman við.
Setjið í smurt mót sem er ca. 14 x 14 cm og bakið í 25-30 mínútur.
Skerið í bita og látið kólna í mótinu.
Af heilsubankinn.is
Sub-Samlokur
Salöt m/kjöti
Pizzur
+2 l gos
Matur fyrir
Þú getur valið um:
Nýbýlavegi 32
Í dag fylgir
Fréttatímanum
blað Bleiku slaufunnar