Fréttatíminn - 05.10.2012, Blaðsíða 79
www.forlagid.is – alvöru bókaverslun á netinu
„Frábær skáldsaga. Það er auðvelt að falla kylliflatur
fyrir henni og engin ástæða til að neita sér um það.“
L ibér at ion
„Flugeldasýning sem samanstendur af húmor,
kaldhæðni og depurð.“
L e nou v eL observat eu r
„Söguþráðurinn er fáránlegur, stríðnislegur og
skemmtilegur í nokkurn veginn jöfnum hlutföllum.“
a n dr ew Hus se y / L i t er a ry r e v iew
bókin sameinar á snilldarlegan
hátt glæpasögu, örlagasögu
einstaklings, lýsingu á sambandi
föður og sonar og hárbeitta
greiningu á þróun listheims
og samfélags á 21. öld.
micHeL HoueLLebecq
Heillandi
verðlaunabók
Hlaut
Goncourt-
verðlaunin
árið 2010, helstu
bókmenntaverðlaun
Frakklands
J ú, ég hugsa að ég hafi verið fyrsta konan á Ís-landi til að starfa sem
forritari,“ segir Rannveig
Guðmundsdóttir, fyrrver-
andi alþingiskona, en löngu
áður en tölvur ruddust inn
á öll heimili lærði hún for-
ritun í Noregi en þar bjó hún
snemma á áttunda áratugn-
um.
„Maðurinn minn var í
námi á þessum árum og
síðar fluttum við aftur út
vegna vinnu hans. Mér fór
þá að þykja leiðinlegt að hafa
ekki menntað mig en ég var
með tvö ung börn á þessum
árum,“ útskýrir Rannveig og í
samræðum milli þeirra hjóna
kom upp þetta nýja fyrir-
bæri sem kallað var tölvur.
„Honum þótti það gráupplagt
fyrir mig af því að ég var svo
góð í stærðfræði.“
Svo fór að Rannveig fann
námskeið sem hún skráði
sig á í Noregi. Þar var verið
að kenna mjög sérhæft for-
ritunarmál og þegar hún
mætti á námskeiðið var
hún spurð hvar hún ynni:
„Dagmamma,“ svaraði hún
og samnemendur hennar á
námskeiðinu ráku öll upp stór
augu og þögn sló á mann-
skapinn. Þarna var eingöngu
fólk á námskeiði sem var sent
á það af stórfyrirtækjum, allt
fyrirtæki sem hún þekkti úr
fjölmiðlum.
„Þetta fór meira að segja
þannig að ég fékk aldrei
rukkun fyrir námskeiðið,“
segir Rannveig sem hefur
alla tíð fundist líklegasta
skýringin að aðstandendum
námskeiðsins hafi fundist svo
flott að hún, ung móðirin og
dagmamman, hefði slegið til
og farið á námskeið í forritum
og því hafi þau gefið henni
það.
„Svo kom ég heim og réði
mig í vinnu hjá Loftleiðum,“
heldur Rannveig áfram en
meðfram vinnu sótti hún
fleiri námskeið hjá IBM og
starfaði hjá forritunardeild
fyrirtækisins þar til pólitíkin
gleypti hana seint á áttunda
áratugnum og hún fór á þing.
Og ertu þá svona tölvunörd
fjölskyldunnar? Er alltaf
kallað á þig þegar eitthvað
klikkar?
„Nei, alls ekki. Þegar ég
var að vinna við þetta þá
fylltu tölvurnar heilan sal.
Diskarnir voru á stærð við
tertudiska og hvert tæki
minnti á fataskáp. Einn prent-
ari var á við meðal flygil.
Þetta var ótrúlega skemmti-
leg vinna og allt annað en
þegar maður fékk PC-tölvu
í hendurnar. Mér þótti þær
strax frekar leiðinlegar. Það
er ekki sama tilfinning sem
fylgir þeim,“ segir Rannveig.
Mikael Torfason
mikaeltorfason@frettatiminn.is
Viðtal RannVeig guðmundsdóttiR, fyRRVeRandi alþingiskona, byRJaði að foRRita fyRiR 35 áRum
Fyrsta ís-
lenska konan
til að vinna
við forritun
Rannveig Guðmundsdóttir var dag-
mamma þegar hún skráði sig á forritunar-
námskeið í Noregi á áttunda áratugnum.
Hún fékk svo vinnu hjá Loftleiðum þar
sem hún starfaði við forritun í fjögur ár.
Rannveig
Guðmunds-
dóttir vann
við forritun
á áttunda
áratugnum
en svo gleypti
pólitíkin hana
og hún fór á
þing. Ljósmynd/
Hari
Rannveigu
þykja nýjustu
tölvurnar
ekki jafn
skemmtilegar
og þær sem
hún kynntist
á áttunda
áratugnum.
menning 63 Helgin 5.-7. október 2012