Fréttatíminn


Fréttatíminn - 05.10.2012, Side 79

Fréttatíminn - 05.10.2012, Side 79
www.forlagid.is – alvöru bókaverslun á netinu „Frábær skáldsaga. Það er auðvelt að falla kylliflatur fyrir henni og engin ástæða til að neita sér um það.“ L ibér at ion „Flugeldasýning sem samanstendur af húmor, kaldhæðni og depurð.“ L e nou v eL observat eu r „Söguþráðurinn er fáránlegur, stríðnislegur og skemmtilegur í nokkurn veginn jöfnum hlutföllum.“ a n dr ew Hus se y / L i t er a ry r e v iew bókin sameinar á snilldarlegan hátt glæpasögu, örlagasögu einstaklings, lýsingu á sambandi föður og sonar og hárbeitta greiningu á þróun listheims og samfélags á 21. öld. micHeL HoueLLebecq Heillandi verðlaunabók Hlaut Goncourt- verðlaunin árið 2010, helstu bókmenntaverðlaun Frakklands J ú, ég hugsa að ég hafi verið fyrsta konan á Ís-landi til að starfa sem forritari,“ segir Rannveig Guðmundsdóttir, fyrrver- andi alþingiskona, en löngu áður en tölvur ruddust inn á öll heimili lærði hún for- ritun í Noregi en þar bjó hún snemma á áttunda áratugn- um. „Maðurinn minn var í námi á þessum árum og síðar fluttum við aftur út vegna vinnu hans. Mér fór þá að þykja leiðinlegt að hafa ekki menntað mig en ég var með tvö ung börn á þessum árum,“ útskýrir Rannveig og í samræðum milli þeirra hjóna kom upp þetta nýja fyrir- bæri sem kallað var tölvur. „Honum þótti það gráupplagt fyrir mig af því að ég var svo góð í stærðfræði.“ Svo fór að Rannveig fann námskeið sem hún skráði sig á í Noregi. Þar var verið að kenna mjög sérhæft for- ritunarmál og þegar hún mætti á námskeiðið var hún spurð hvar hún ynni: „Dagmamma,“ svaraði hún og samnemendur hennar á námskeiðinu ráku öll upp stór augu og þögn sló á mann- skapinn. Þarna var eingöngu fólk á námskeiði sem var sent á það af stórfyrirtækjum, allt fyrirtæki sem hún þekkti úr fjölmiðlum. „Þetta fór meira að segja þannig að ég fékk aldrei rukkun fyrir námskeiðið,“ segir Rannveig sem hefur alla tíð fundist líklegasta skýringin að aðstandendum námskeiðsins hafi fundist svo flott að hún, ung móðirin og dagmamman, hefði slegið til og farið á námskeið í forritum og því hafi þau gefið henni það. „Svo kom ég heim og réði mig í vinnu hjá Loftleiðum,“ heldur Rannveig áfram en meðfram vinnu sótti hún fleiri námskeið hjá IBM og starfaði hjá forritunardeild fyrirtækisins þar til pólitíkin gleypti hana seint á áttunda áratugnum og hún fór á þing. Og ertu þá svona tölvunörd fjölskyldunnar? Er alltaf kallað á þig þegar eitthvað klikkar? „Nei, alls ekki. Þegar ég var að vinna við þetta þá fylltu tölvurnar heilan sal. Diskarnir voru á stærð við tertudiska og hvert tæki minnti á fataskáp. Einn prent- ari var á við meðal flygil. Þetta var ótrúlega skemmti- leg vinna og allt annað en þegar maður fékk PC-tölvu í hendurnar. Mér þótti þær strax frekar leiðinlegar. Það er ekki sama tilfinning sem fylgir þeim,“ segir Rannveig. Mikael Torfason mikaeltorfason@frettatiminn.is  Viðtal RannVeig guðmundsdóttiR, fyRRVeRandi alþingiskona, byRJaði að foRRita fyRiR 35 áRum Fyrsta ís- lenska konan til að vinna við forritun Rannveig Guðmundsdóttir var dag- mamma þegar hún skráði sig á forritunar- námskeið í Noregi á áttunda áratugnum. Hún fékk svo vinnu hjá Loftleiðum þar sem hún starfaði við forritun í fjögur ár. Rannveig Guðmunds- dóttir vann við forritun á áttunda áratugnum en svo gleypti pólitíkin hana og hún fór á þing. Ljósmynd/ Hari Rannveigu þykja nýjustu tölvurnar ekki jafn skemmtilegar og þær sem hún kynntist á áttunda áratugnum. menning 63 Helgin 5.-7. október 2012

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.