Fréttatíminn


Fréttatíminn - 05.10.2012, Síða 6

Fréttatíminn - 05.10.2012, Síða 6
Verðdæmi á mann: 1. nóv - 4 nætur Dublin 87.900 kr.* *m.v. 2 fullorðna í tvíbýli á Hotel Camden Court með morgunmat. D anskur maður sem hafði feðrað 43 börn og smitað níu þeirra af erfða-sjúkdómi með stökkbreyttu geni er talinn líffræðilegur faðir eins barns á Ís- landi. Sjúkdómurinn sem um ræðir kallast Recklinghausen-heilkennið og er taugasjúk- dómur. Danski sæðisbankinn Nordisk Cyro- bank situr undir ámæli fyrir vikið. Íslenska fyrirtækið Art Medica skiptir við tvo erlenda sæðisbanka, annar þeirra er danski bankinn. Engar opinberar reglur eru um sæðisgjafir á Íslandi og engar lagalegar takmarkanir fyrir því hversu oft einn maður getur gefið sæði hér á landi. Þórður Óskarsson, sérfræðingur hjá Art Medica, segir að fyrirtækið reyni eftir fremsta megni að fylgjast með sæðisgjöfum og fjölda þeirra. Hann staðfestir í viðtali við Fréttatímann að skipta við Nordisk Cyrobank, sem hann segir einn af stærstu bönkunum. Þórður segir jafnframt að sér þyki umrætt mál mjög leiðinlegt og fjöldi barnanna frá þessum tiltekna gjafa heldur hár. Hann segir að slíkt sé ekki algengt og að vinnubrögð Nordisk Cyrobank séu með þeim bestu í heiminum. „Ef það ætti að skima fyrir öllum mögulegum sjúkdómum myndi sæðiskammturinn kosta hátt í fimm hundruð þúsund í stað fimmtíu og það er ekki hægt að bjóða upp á það,“ segir Þórður en bendir á að hjá Nordisk Cyro- bank séu gerð mjög ítarleg erfðafræðipróf, þó ekki sé skimað fyrir þessum tiltekna sjúkdómi. Á Íslandi eru getin á bilinu 20-30 börn með gjafasæði ár hvert. Þórður segir að vegna þess hve fá þau eru sé tiltölulega auðvelt að fylgjast með þeim. Hann segir að viðmiðið sé að hver gjafi feðri ekki fleiri en fimm börn á Íslandi en að þau börn séu ekki í fleiri en þrem fjölskyldum. Sem merkir að barn getur átt allt að tveimur systkinum sem það veit ekki um hér á landi. „Hægt er að sækjast eftir upplýsingum um tengsl barna eftir að þau ná átján ára aldri, sé sæðisgjafinn þekktur. Það eru ekki allir gjafar þekktir en það hefur þó breyst mikið í seinni tíð. Nú eru allt að níutíu prósent þeirra sem að gefa sæði þekktir gjafar,“ segir Þórður. María Lilja Þrastardóttir marialilja@frettatiminn.is  SæðiSgjöf Engar opinbErar rEglur um SæðiSgjafir á íSlanDi Danski sæðisgjafinn blóðfaðir íslensks barns Nýverið kom upp mál þar 43 börn voru getin með sæði sama, danska sæðisgjafans. Hann var með stökk­ breytt gen sem veldur tauga sjúk­ dómi. Íslenska fyrirtækið Art Medica er eini starfandi sæðisbankinn hér á landi. Sérfræð ingur þar segir umrætt mál mjög erfitt, en fyrir­ tækið reyni eftir fremsta megni að fylgjast með börnunum sem getin eru með sæðis­ gjöf. Það er hinsvegar aðeins hægt ef sæðis­ gjafinn er þekktur. Eitt barn var getið hér á landi með sæði frá danska sæðis­ gjafanum en með sæði hans voru 43 börn í Danmörku getin. Þórður Óskarsson, sérfræðingur hjá Art Medica, segir vinnubrögð sæðisbankans til fyrirmyndar. Ljósmynd/Hari 5 Einn sæðisgjafi gæti feðrað fimm börn á Íslandi en aldrei í fleiri en þrem fjölskyldum. Sem merkir að sum börn gætu átt allt að tvö systkini sem þau vita ekki um. Hálft fæði og allar skoðunarferðir innifaldar Aðventan er heillandi tími til að sækja Þýskaland heim. Ljósadýrðin gefur þessum árstíma birtu og ilmur frá jólaglöggi og hunangskökur koma öllum í jólastemningu. Ferðin hefst með flugi til Frankfurt, ekið til Eisenach, fæðingarborgar bæði Martins Luthers og Johanns Sebastians Bachs, og gistum þar í 2 nætur. Þessi heillandi borg með Wartburg-virkinu, sem telst til merkustu miðaldavirkja landsins, býður upp á líflegan jólamarkað. Þaðan ekið til Dresden, sem er höfuðborg Saxlands. Borgin varð á 15. öld aðsetur Wettiner-furstanna og afkomandi þeirra var Ágúst sterki, sem sem átti stóran þátt í að gera Dresden að hinni undurfögru svokallaðri „Flórens við Saxelfi“. Gistum þar í 4 nætur. Á leiðinni þangað verður komið til Weimar en borgin skipar stóran sess í þýskri sögu en þar var stjórnarskrá Weimarlýðveldisins samþykkt. Einnig verður komið til Meissen sem er sérstaklega þekkt fyrir Meissen-postulínið, eitt elsta og verðmætasta postulín í Evrópu, en þar er líka einn af fegurstu jólamörkuðum Þýskaland. Endar ferðin á að ekið verður til barokkborgarinnar Fulda þar sem gist verður síðustu nóttina. Fararstjóri: Kristín Jóhannsdóttir Verð: 174.640 kr. á mann í tvíbýli Innifalið: Flug, skattar, hótelgisting, hálft fæði, allar skoðunarferðir með rútu og íslensk fararstjórn. www.baendaferdir.is Sp ör e hf . s: 570 2790 A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R 30. nóvember - 7. desember Travel Agency Authorised by Icelandic Tourist Board Aðventudýrð í Dresden AÐVENTA 3 20-30 börn getin með gjafasæði á Ís­ landi ár hvert. 43 Börn getin frá þeim sama manni. 9 Með sjúkdóminn NF­1 eða Recklinhausen­heil­ kennið sem er arfgengur taugasjúkdómur. Orsök sjúkdómsins er stökkbreytt gen. Sjúkdómurinn getur haft áhrif á útlit þess sem hann hefur, ljósbrúnir blettir á húð og góðkynja æxli geta myndast víða, ýmist í klösum eða út frá taugaendum. Sjúkdómurinn getur valdið hryggskekkju, skertri stjórnun á útlimum eða lömun. Einnig getur komið fram bólga á sjóntaug sem veldur sjóntruflunum. Danski sæðisgjafinn með stökkkbreytt gen. Lee Bucheit, fyrrverandi for- maður íslensku samninga- nefndarinnar um Icesave, fékk ekki tvígreidda reikninga vegna starfa sinna fyrir Ísland, að því er fram kemur í svari frá fjármála- ráðuneytinu. Fréttatíminn sendi ráðuneytinu fyrirspurn í fram- haldi af fréttum af tvígreiðslum og skýrslu Ríkisendurskoðunar til Alþingis um úttekt og inn- leiðingu fjárhags- og mannauðs- kerfis ríkisins sem það keypti af Skýrr, nú Advania. „Aðeins er vitað um eitt tilvik sem komið hefur upp á vegum fjármálaráðuneytisins þar sem tvígreiðsla reiknings átti sér stað,“ segir Gunnar Tryggvason, aðstoðarmaður fjármálaráð- herra. Um var að ræða viðskipti við erlendan ráðgjafa þar sem frumrit reikninga bárust tvisvar sinnum með sömu fylgiskjölum. Tvígreiðslan var rakin til mann- legra mistaka. „Mistökin komu í ljós strax, bæði af innra eftirliti ráðuneytisins og erlenda aðil- anum. Endurgreiðsla fór strax fram,“ segir Gunnar. -sda  fjárSýSla aðEinS Eitt tilvik um tvígrEiðSlu Tvígreiðslan mannleg mistök Lee Bucheit. „Hægt er að sækjast eftir upplýsingum um tengsl barna eftir að þau ná átján ára aldri.“ Á Íslandi eru getin á bilinu 20­30 börn með gjafasæði ár hvert. Fékkstu ekki Fréttatímann heim? Fréttatímanum er dreift á öll heimili á höfuðborgarsvæðinu. Ef þú fékkst ekki blaðið heim, láttu okkur þá vita með tölvupósti á dreifing@frettatiminn.is Sjáðu blaðið líka á frettatiminn.is 6 fréttir Helgin 5.­7. október 2012
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.