Fréttatíminn - 05.10.2012, Blaðsíða 8
Íbúar við höfnina í Hafnarfirði hafa sent inn
kvörtun til sveitarfélagsins vegna óviðunandi
hávaða frá starfsemi á hafnarsvæði sem orsakast
af niðurrifi skipa. Hafnarstjórn telur ekki ástæðu
til að aðhafast og bendir á skýrslu heilbrigðis-
eftirlitsins um málið þar sem ekki var unnt að
staðfesta að hávaðinn við niðurrifið væri yfir
mörkum.
Hrannar Hallgrímsson flugumferðarstjóri
er einn þeirra sem hefur kvartað en hann býr í
fjölbýlishúsi við höfnina. „Ég hef alveg skilning
á að starfsemi fari fram við höfnina. Nýlega er
hins vegar farið að rífa niður skip og af því hlýst
gífurlegur hávaði sem veldur verulegum trufl-
unum. Verið er að vinna á öllum tímum dagsins
jafnt á virkum dögum sem og um helgar,“ segir
Hrannar.
Í samantekt heilbrigðiseftirlitsins segir að of
mikil nálægð milli íbúðabyggðar og atvinnustarf-
semi geti kallað á árekstra. Ekki hafi verið unnt
að staðfesta að hávaði hafi verið yfir mörkum
reglugerðar þótt ekki sé hægt að útiloka það.
Sigríður
Dögg
Auðunsdóttir
sigridur@
frettatiminn.is
Huga þarf að hávaðavörnum
„Höfnin verður að taka mið af þeirri staðreynd við ákvörðun
á notkun lands, hvaða starfsemi hún heimilar og þá ekki
síður hvernig hávaðavörnum verði fyrirkomið við áformaða
starfsemi,“ segir í skýrslu heilbrigðiseftirlitsins.
Umhverfismál hávaðamengUn frá starfsemi á hafnarsvæði
Hafnfirðingar kvarta undan hávaða
Samræðuvefur um
stjórnarskrána
Samtök um nýja stjórnarskrá, SANS,
hafa opnað samræðuvef fyrir almenn-
ing um stjórnarskrármál fyrir þjóðar-
atkvæðagreiðsluna 20. október á slóðinni
stjornarskra.yrpri.org. Vefurinn er unninn
í samstarfi við sjálfseignarstofnunina Íbúa.
Um er að ræða svipað viðmót og á vefnum
Betri Reykjavík, en eingöngu er lögð
áhersla á stjórnarskrármál, sérstaklega
þau er varða kosningarnar 20. október
og muninn á frumvarpi stjórnlagaráðs og
núgildandi stjórnarskrá. Tilgangur vefsins
er að auka umræðu um málefni sem
tengjast kosningunum 20. október. Þar
gefst almenningi tækifæri til að tjá sig um
rök með og á móti hinum ýmsu málefnum
tengdum stjórnarskránni. - jh
Tveir íslenskir bjórar
unnu til verðlauna
Tveir íslenskir bjórar unnu til verðlauna
í alþjóðlegu bjórkeppninni World Beer
Awards 2012 sem kláraðist síðastliðinn
föstudag. Úlfur var valinn besti evrópski
bjórinn af tegundinni IPA eða India Pale
Ale og Bríó hlaut verðlaun sem besti
pilsnerbjór í Evrópu, bætti svo um betur
og hlaut heimsmeistaratitil í sama flokki.
Báðir bjórarnir voru þróaðir í Borg Brugg-
húsi, handverksbrugghúsi Ölgerðarinnar,
að því er fram kemur í tilkynningu. Bríó er
fyrsti bjórinn sem Borg Brugghús sendi
frá sér en hann kom á markað 2010.
Bjórinn var þróaður í samstarfi við Ölstofu
Kormáks og Skjaldar og er nefndur eftir
fjöllistamanninum Steingrími Eyfjörð. Úlfur
kom fyrst á markað snemma árs 2011 og
er fyrsti bjórinn af gerðinni Indian Pale Ale
sem framleiddur er á Íslandi. - jh
Goðsögnin Friðrik á fjölmennasta
skákmóti ársins
Skákveisla verður í Rimaskóla um helgina þegar fyrri
hluti Íslandsmóts skákfélaga fer fram. Þetta er fjöl-
mennasta skákmót ársins. Keppt er í fjórum deildum.
Skákfélag Bolungavíkur hefur sigrað á Íslandsmótinu
síðustu árin. Ung og metnaðarfull félög hafa hinsvegar
augastað á Íslandsbikarnum, m.a. Víkingaklúbburinn
og Goðinn. Búast má við því að gömlu stórveldin, Tafl-
félag Reykjavíkur og Hellir, eigi undir högg að sækja.
Goðsögnin Friðrik Ólafsson mun tefla með liði TR.
Friðrik varð stórmeistari árið 1958 og var um árabil
meðal sterkustu skákmanna heims. Hann er nú 77 ára
en lætur engan bilbug á sér finna. Fleiri íslenskir stórmeistarar verða í eldlínunni,
m.a. hin svonefnda fjórmenningaklíka sem skipaði sterkasta landslið sem Ísland
hefur átt: Jóhann Hjartarson, Helgi Ólafsson, Jón L. Árnason og Margeir Pétursson.
Áhorfendur eru velkomnir í Rimaskóla. Skákveislan byrjar klukkan 20 á föstudag
og síðan er teflt nánast linnulaust fram á sunnudag. - jh
s telpur tala frekar við aðra um vandamál sín en strákar og leita sér frekar hjálpar. Strákar bíta á jaxlinn og þjást eða kveljast í hljóði,“ segir Vanda
Sigurgeirsdóttir, lektor á menntavísindasviði og sér-
fræðingur í eineltismálum. Fjöldi stúlkna hefur stigið
fram að undanförnu og sagt frá einelti sem þær hafa
orðið fyrir. Enginn drengur hefur gert slíkt hið sama.
„Það er mjög mikilvægt að vekja athygli á þessu,“
segir Vanda þegar hún er innt um skýringar á því hvers
vegna strákarnir eru ekki að stíga fram á sama hátt og
stúlkurnar. „Við þurfum að vinna gegn þeim samfélags-
legu skilaboðum sem strákar fá, að þeir eiga að vera
stórir og sterkir og gráta ekki. Karlmennskuímyndin er
sú að þeir mega ekki sýna veikleika,“ segir hún.
„Það er einfaldlega stórhættulegt fyrir fórnarlömb
eineltis að byrgja tilfinningar sínar inni. Það er alvarlegt
að lenda í einelti og getur haft alvarlegar afleiðingar og
getur í raun verið hættulegt að leita sér ekki aðstoðar,“
segir Vanda.
Engar rannsóknir hafa verið gerðar á því hvernig
þolendur eineltis bregðast við einelti eftir kynjum, að
sögn Vöndu. Hins vegar sýni nýjar rannsóknir fram á að
það sé afar mikilvægt að þjálfa börn í því að leita sér að-
stoðar. „Það þarf að gera þetta að vana, að einhverju sem
börn eru góð í. Það þarf að kenna börnum að það sé rétt
að leita sér hjálpar og oft nauðsynlegt. Við lendum öll í
einhverju mótlæti í lífinu og þurfum flest að leita okkur
hjálpar á einhverju sviði á ævinni,“ segir Vanda. „Niður-
stöður þessara rannsókna segja jafnframt að það þurfi
sérstaklega að passa upp á strákana og að við þurfum að
byrja að þjálfa börn strax á unga aldri,“ segir hún.
Vanda hefur lagt áherslu á þjálfun barna á að takast
á við einelti. „Kannski er það bara fótboltaþjálfarinn í
mér, ég myndi aldrei láta neinn lesa það í bók hvernig
á að gera hjólhestaspyrnu, heldur láta hann gera það.
Það þarf að þjálfa börn í því að bregðast við neikvæðum
athugasemdum. Þau þurfa að æfa sig í því að svara, til
dæmis með því að segja: „Mér er alveg sama“,“ segir
Vanda.
Hún segir að hægt sé að notast við hlutverkaleiki og
að búa til sögur, til að mynda með tveimur endum, til
að þjálfa börnin í að leita sér hjálpar. „Annars vegar láta
söguna enda þar sem ekki er leitað hjálpar og hins vegar
þegar leitað er hjálpar og ræða svo hina mismunandi
endi,“ segir hún.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
eineltismál Þjálfa Þarf börn í að leita sér hjálpar
Strákar bíta á jaxlinn
Vanda Sigur-
geirsdóttir,
sérfræðingur í
eineltismálum,
segir að stúlkur
leiti sér frekar
hjálpar en
drengir. Þjálfa
þurfi börn í því
frá unga aldri
að leita sér
hjálpar og svara
neikvæðum at-
hugasemdum.
Nauðsynlegt er að þjálfa börn
í því að svara fyrir sig fái þau
neikvæðar athugasemdir. Einnig
þarf að þjálfa þau í því að leita
sér aðstoðar svo það verði
eðlilegur og sjálfsagður hlutur
lendi þau í aðstæðum síðar á
ævinni þar sem þess er þörf.
Hafnafjarðarhöfn. Of mikil nálægð milli íbúðabyggðar og atvinnustarfsemi
getur kallað á árekstra.
8 fréttir Helgin 5.-7. október 2012