Fréttatíminn - 05.10.2012, Blaðsíða 16
Dæmdur fyrir meiðyrði
Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt ummæli
sem höfð voru eftir Þór Saari alþingismanni
dauð og ómerk. Þór var ekki gerð refsing en
hann þarf að greiða Ragnari Árnasyni 300
þúsund krónur í miskabætur, 800 þúsund í
málskostnað og 76.898 krónur til að kosta
birtingu dómsins í DV og
Morgunblaðinu. Ummælin:
„Ragnar Árnason hefur
verið á launum hjá
LÍU í áratugi“,
birtust í DV fyrir
rúmu ári.
Áunninn heilaskaði
Ein af þessum heppnu
É g er ein af þessum heppnu. Ég á son sem lenti í lífshættulegu slysi þegar hann var 5 mánaða.
Hann fékk alvarlega höfuðáverka og
það blæddi inn á heila hans. Hann var á
gjörgæslu í á þriðja sólarhring þangað
til læknar sögðu hann hólpinn. Hægri
hlið líkama hans lamaðist og hann
fékk flogaköst vegna áverkanna. Hann
var tvær vikur á barnaspítal-
anum áður en okkur var leyft
að fara með hann heim en við
tók sjúkraþjálfun og reglulegt
eftirlit hjá heila- og taugalækni
barna.
Ári eftir slysið fór hann í
mikla rannsókn sem leiddi það
í ljós að hann er með áunninn
heilaskaða. Blæðingin hafði
skemmt örlítinn hluta af heila
hans og um það bil eins rúm-
sentimetra svæði á yfirborði
heilans hafði eyðst. Ónýt svæði
í heilanum eyðast.
Þetta voru neikvæðu
fréttirnar.
Jákvæðu fréttirnar voru
hins vegar þær að þetta var
ekki eitt af „dýru svæðum
heilans“, eins og læknirinn
orðaði það. Þetta var svæði
sem sá um úrvinnslu skynj-
unar frá húðinni (ég er orðin
sérfræðingur í hinum ýmsu
svæðum heilans síðan þá).
Og vegna þess hve hann
væri ungur væru yfirgnæf-
andi líkur á því að heilinn
myndi mynda nýjar tenging-
ar og brautir til að vinna það
verk sem þetta ónýta svæði sér venju-
lega um.
Hann er fjögurra og hálfs árs í dag og
hefur náð sér að fullu. Ég er ein af þeim
heppnu. Hann er einn af þeim heppnu.
Árlega verða um 500 manns fyrir
áunnum heilaskaða á Íslandi. Áunninn
heilaskaði verður af völdum ytri áverka,
svo sem slysa, falla og ofbeldis. Um 50
manns þurfa að fara í endurhæfingu á
Grensás og er stór hluti þeirra ungt fólk.
Samtökin Hugarfar er félag fólks
með áunninn heilaskaða, aðstandenda
og áhugafólks um málefnið. Eitt af því
sem samtökin vilja áorka er að auka vit-
und um þá hættu sem höfuðáverkar geta
haft í för með sér.
Frá því slysið varð hef ég verið mjög
meðvituð um þá hættu sem duldir áverk-
ar á höfði geta haft í för með sér. Fall
þarf ekki að vera mjög hátt til þess að
það geti haft varanlegar afleiðingar.
Eitt þekktasta dæmi þess er leikkonan
Natasha Richardson, eiginkona Liam
Neeson, sem lést eftir minniháttar fall
í byrjendabrekku á skíðum. Fyrst eftir
slysið gantaðist hún um klaufaskapinn
í sér og engan grunaði að fallið hefði or-
sakað bólgur á heila. Nokkrum klukku-
stundum síðar var hún flutt í skyndingu
á spítala þar sem hún lést.
Þetta er sem betur fer ekki algengt.
Ég lenti sjálf í slysi þegar ég var ung-
lingur sem orsakaði bólgur á heila. Ég
stakk mér í sundlaug sem
ég gerði mér ekki grein
fyrir hve væri grunn, lenti
á höfðinu og vankaðist.
Rannsóknir sýndu bólg-
ur á heila og þjáðist ég af
miklum höfuðverkjum í
nokkurn tíma á eftir. Svo
leið það hjá. Ég er ein af
þeim heppnu.
Það er aldrei of varlega
farið þegar um áverka á
höfði er að ræða. Farið
alltaf til læknis. Mín regla
er sú að það er betra að
fara einu sinni of oft en
einu sinni of sjaldan.
Sigríður
Dögg
Auðunsdóttir
sigridur@
frettatiminn.is
sjónarhóll
Eins dauði er annars brauð
Eins dauði er annars brauð. Það sannaðist enn og
aftur þegar verslunarkeðjan Europris ákvað að
hætta rekstri. Jóhannes Jónsson,
kaupmaður í Iceland, – áður
kenndur við Bónus – tilkynnti
í kjölfarið að hann hefði tekið
á leigu húsnæði við Fiskislóð
sem áður hýsti
Europris. Þar
hyggst hann opna
Iceland-verslun
1. desember.
Fyrir rekur hann
Iceland-verslun
við Engihjalla.
Góð vikA
fyrir
Jóhannes Jónsson, kaupmann í Iceland
Slæm vikA
fyrir
Þór Saari alþingismanni
Ég á son sem lenti í lífshættu-
legu slysi þegar hann var 5
mánaða.
Skuggar af 100 gráum skóm
Sölvi Tryggvason upplýsti í vikunni að
hann ætti 50 skópör og tengdi í fram-
haldinu vandaðan skó- og fatasmekk
sinn við samkynheigð við lítinn fögnuð.
Ef einhver misskilningur er í gangi þarna úti
í þjóðfélaginu, þá vilja Samtökin ´78 koma
eftirfarandi á framfæri:
A) Ef þú ert karlmaður sem elskar karlmenn =
Þú ert tví eða samkynhneigður karlmaður
B) Ef þú hefur unun af fallegum skóm = Þú ert
skóaðdáandi
C) Ef þú heldur á lofti úreldum staðalímynd-
um = Þú kemst í blöðin
A og B eru óhrekjanlegar staðreyndir, en
hjálpumst nú öll að kæru vinir við að eyða
lið C ;)
Samtökin 78
Hver ætli séu áhugamál samkynhneigðustu
gagnkynhneigðu konu á Íslandi? er ekki hægt
að skella því líka í blöðin!!!!
Sigríður Droplaug Jónsdóttir
Ertu í alvöru, Sölvi? Hvernig gera skórnir þínir
þig samkynhneigðan?
Hildur Lilliendahl
HeituStu kolin á
Dýrt kveðið
Þór Saari var dæmdur fyrir meiðyrði
sem hann lét falla um Ragnar Árna-
son prófessor. Ærumeiðingin fólst í
því að segja prófessorinn hafa verið á
launum hjá LÍÚ.
Það teljast semsagt ekki rangar upplýsingar
heldur MEIÐYRÐI að segja einhvern vera á
launum hjá LÍÚ. Það segir allt sem segja þarf
um álit dómsins á LÍÚ:
Eva Hauksdottir
Ragnar fær 300.000 kr. í miskabætur. Um
daginn voru konu dæmdar 350.000 kr. í
miskabætur frá sambýlismanni sem gekk
illa í skrokk á henni og braut m.a. bein í
andliti. Margir sambærilegir dómar. Hvernig
dómarar meta miska manna er algjörlega
óskiljanlegt...
Grímur Atlason
Þá er ljóst að það eru meiðyrði að segja að
einhver hafi verið á launum hjá LÍÚ í áratugi.
Skiljanlega.
Illugi Jökulsson
CHRONOGRAPH
3700-31
Michelsen_3700-31_H200XB151.indd 1 6/5/12 9:32 AM
16 fréttir Helgin 5.-7. október 2012 vikunnar