Fréttatíminn


Fréttatíminn - 05.10.2012, Síða 32

Fréttatíminn - 05.10.2012, Síða 32
Þ að var í raun tilviljun sem réði því að við skyldum flytja heim,“ útskýrir Ragna Lóa Stefánsdóttir en þau Hermann Hreiðarsson fluttu heim frá Englandi nú seint í sumar. „Við ákváðum í skyndi að skreppa heim á Þjóðhátíð og pökk- uðum regngöllum og slíku og höfum ekki farið út aftur,“ heldur Ragna Lóa áfram en þau hjónin hafa ekki einu sinni haft tíma til að sækja restina af fötum og dóti í húsinu þeirra á Eng- landi því bæði hafa þau ráðið sig sem knattspyrnuþjálfarar á Íslandi. Hann hjá ÍBV en hún hjá kvennadeild Fylkis í Árbæ, hverfinu sem þau búa í á Íslandi. Ragna Lóa á fjögur börn, þau Stefán Kára (26 ára meistaranemi í Banda- ríkjunum), Elsu Hrund (19 ára nemi í MS) og svo Thelmu Lóu og Ídu Marín sem eru 13 og 11 ára. Það voru einmitt yngri stelpurnar tvær sem ollu því að Ragna Lóa og Hemmi snéru ekki aftur út til Englands. „Stelpurnar fóru að æfa með Fylki eftir Þjóðhátíð og upplifðu svo sterkt þetta frjálsræði sem fylgir því að búa á Íslandi. Fyrir þær að geta labbað sjálfar á æfingu er alveg stórkostlegt. Á fundum fjölskyldunnar fórum við þá að ræða hvort við ættum að snúa aftur eða ekki. Þær tóku það ekki í mál og sögðust eiga þann draum heitastan að vera frjálsar fótboltastelpur á Íslandi,“ útskýrir Ragna Lóa og segir að þau hjónin hafi tekið vel í það. Hermann var engu að síður með allavega tvö þjálfara- tilboð ytra en sagðist vera búinn að upplifa sinn draum og nú væri komið að því að hann hliðraði til fyrir stelpurnar. Auðvitað spilaði það líka inn í ákvörð- unartökuna um að flytja heim að eldri börnin hafa búið hér síðustu ár og þau söknuðu þeirra. Strákastelpa og þjálfari Ragna Lóa var sjálf þessi frjálsa fót- boltastúlka. Hún ólst upp á Akranesi og var úti frá morgni til kvölds að spila fótbolta. Mest við stráka („ég var algjör Fóru á Þjóðhátíð og snéru ekki aftur Ragna Lóa Stefánsdóttir knattspyrnuþjálfari er flutt heim til Íslands eftir að hafa verið svokölluð „footballers wife“ í Englandi í fjórtán ár. Hún er kona Hermanns Hreiðarssonar og gæti alveg séð þau hjónin fyrir sér sem landsliðsþjálfara. Þessi strákastelpa er ánægð með að vera komin aftur í þjálfara- stól en rétt rúmlega tvítug var hún farin að þjálfa meistaraflokk uppi á Skaga. strákastelpa og átti ekki einn kjól þar til ég var sextán eða sautján ára“) því þá voru miklu færri stelp- ur í fótbolta. Hana rekur ekki einu sinni minni til að hafa æft knatt- spyrnu fyrr en hún fór að spila með meistaraflokki kvenna. Þetta voru aðrir tímar og þótt æfingar hafi ekki verið jafn markvissar og nú var gaman að vera ofvirk íþróttastelpa á Akranesi. Þannig var Ragna í frjálsum íþróttum, sundi, handbolta og bara öllu sem tengdist hreyfingu. Rúmlega tvítug var Ragna orðin þjálfari meistaraflokks kvenna á Akranesi. Hún hefur ekki hug- mynd um hvort hún hafi verið fyrst kvenna til þess og er alveg sama, þannig séð. Fyrir henni var þetta bara verkefni sem henni var boðið og hún efaðist aldrei. „Mín megin atvinna hefur alla tíð verið þjálfun og þetta er það sem ég elska að gera,“ segir Ragna Lóa og bendir á að þótt stjórnir ÍA hafi verið karlavígi á þessum árum mætti hún aldrei neinum veggjum. Og þegar hún flutti til Reykjavíkur Ég var að fara að slá metið í fjölda lands- leikja þegar ég er tækluð þannig að sköflungur- inn fer í tvennt. Framhald á næatu síðu Ragna Lóa Stefánsdóttir er flutt í Árbæinn með sínum manni, Hermanni Hreiðarssyni. Hún þjálfar kvennalið Fylkis og ætlar sér sigur og bara sigur. Ljósmyndir/Hari 32 viðtal Helgin 5.-7. október 2012
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.