Fréttatíminn - 05.10.2012, Qupperneq 34
Ég var algjör
strákastelpa
og átti ekki
einn kjól þar
til ég var
sextán eða
sautján ára.
www.forlagid.is
www.forlagid.is – alvöru bókaverslun á netinu
KlassíK
sem á heima á
hverju heimili
Loksin
s
fáanLe
gar
á ný!
upp úr tvítugu fór hún að
þjálfa stráka hjá Stjörnunni
og það var líka mjög gaman.
„Það er ekkert erfiðara að
þjálfa stráka,“ útskýrir Ragna
en bendir á að mikill munur
sé engu að síður á kynjunum
þegar það kemur að þjálfun.
„Þú ert grimmari við strák-
ana en spilar meira með sál-
fræðiþáttinn hjá stelpunum.
Þá nærðu mestum
árangri. Ef þú kemst
inn í hausinn á þeim.“
Hún er því komin
heim, þjálfarinn, og
ætlar sér stóra hluti
hjá Fylki: „Ég hef
alltaf verið svoldið
óforskammaður
þjálfari. Ég ætla mér
bara að vinna. Ég er
ekki í þessu til að vera
í öðru eða þriðja sæti.
Auðvitað getur allt
gerst í boltanum en ef
ég trúi því ekki að við
getum farið alla leið
þá gerir það enginn,“
segir Ragna Lóa sem
fundaði með stelp-
unum sínum í Fylki í
síðustu viku. Þar lagði
hún línurnar varðandi
sigur en þær féllu nú í
sumar og fyrsta verk-
efnið er að koma þeim aftur
upp í efstu deild og byggja
upp lið sem festir sig þar í
sessi.
Var ekki hugað líf
Hvenær mun það gerast að
kona eins og þú munir þjálfa
A-landslið karla?
„Ég veit það ekki,“ svara
Ragna Lóa sposk. „Þú mein-
ar: Að ég muni þjálfa karlana
á undan Hemma? Kannski
sækjum við bæði um, hjónin,
þegar staðan losnar,“ bætir
hún við og hlær.
Ein af fyrirmyndum Rögnu
Lóu er Hope Powell, lands-
liðsþjálfari kvenna á Eng-
landi. Powell hefur lengi
verið orðuð við hin ýmsu lið í
ensku deildinni og hún nýtur
mikillar virðingar í knatt-
spyrnuheiminum. Ragna
Lóa á líka fjöldann allan af
öðrum þjálfara fyrirmyndum
eins og Harry Redknapp sem
var lengi þjálfari
Hemma Hreiðars.
Þannig hefur það
verið ótrúlegur
lærdómur fyrir
knattspyrnukon-
una Rögnu Lóu
að hafa verið í
14 ár svokölluð
„footballers wife“.
Hún hefur staðið
á hliðarlínunni en
sogið í sig þekk-
ingu og reynslu
sem hún vonar að
nýtist henni nú
þegar hún er aftur
farin að þjálfa á Ís-
landi.
„Maður verður
samt að hafa á bak
við eyrað hvað
sveiflurnar í bolt-
anum eru ótrúleg-
ar. Þú getur byrjað
vikuna algerlega á toppinum
en endað hana á botninum.
Það er nú líka það sem gerir
þetta svona skemmtilegt.“
Ragna Lóa upplifði sinn
botn ekki vegna lélegrar
frammistöðu heldur meidd-
ist hún alvarlega í landsleik á
móti Úkraínu fyrir fimm-
tán árum. Meiðslin voru svo
alvarleg að henni var vart
hugað líf:
„Þetta var minn síðasti
landsleikur. Ég var að fara að
slá metið í fjölda landsleikja
þegar ég er tækluð þannig að
Ragna Lóa fótbrotnaði í landsleik á móti Úkraínu og það gerði út af við knattspyrnuferilinn, enda var henni vart hugað líf.
sköflungurinn fer í tvennt,“ út-
skýrir Ragna Lóa en öll þjóðin
stóð á öndinni þegar leikurinn
var stöðvaður í lengri tíma og
Ragna Lóa flutt með sjúkrabíl
á Landspítalann. Það þurfti að
kalla út fleiri sérfræðinga svo
ekki var hægt að gera að fæt-
inum fyrr en daginn eftir. Þá
fékk hún sýkingu í lungun og
var tvísýnt um hvort hún myndi
lifa af eða ekki.
„Séra Pálmi Matthíasson
kom á spítalann og Hermann
og fjölskyldan búin undir það
versta. En ég var rétt rúmlega
þrítug og í mínu besta formi
þannig að lungun mín náðu að
losa sig við sýkinguna,“ segir
Ragna Lóa sem var talsverðan
tíma að koma sér í form aftur
en það var aldrei eins. „Í raun
kláraði ég ferilinn í þessum
landsleik þótt ég hefði spilað
nokkra leiki með KR um sum-
arið eftir,“ heldur hún áfram en
þegar þarna var komið við sögu
hafði Hermann Hreiðarsson
verið keyptur frá ÍBV til Crystal
Palace og Ragna Lóa ákvað að
flytja til hans út.
Við Hemmi landsliðsþjálf-
arar
Samkvæmt Rögnu Lóu voru
þessi 14 ár í Englandi sann-
kallað ævintýr („ekkert annað
en æðisleg“). Þau áttu stórkost-
legan tíma ytra, fjölskyldan, og
tvær yngstu dæturnar fædd-
ust í Englandi. Þær þurfa því
að taka á honum stóra sínum
að aðlagast hér heima og eiga
stundum í pínu erfiðleikum
með tungumálið en eru þeim
mun ánægðari með fótboltann.
„Auðvitað er gaman að koma
heim eftir svona langan og far-
sælan tíma í Englandi. Við átt-
um gott líf þarna úti og Hemmi
kláraði frábæran feril. Ég er
ótrúlega stolt af honum. Hann
34 viðtal Helgin 5.-7. október 2012