Fréttatíminn


Fréttatíminn - 05.10.2012, Síða 46

Fréttatíminn - 05.10.2012, Síða 46
Ég veit ekkert um það núna hversu margir koma en ráðstefnuhaldið er öllum opið og allir velkomnir. Menn vilja ekkert endilega tala af viti um þetta en þarna verður það reynt. Við í grasrótinni,“ segir Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á sjúkrahúsinu Vogi. Mikil starfsemi, líf og fjör, er í Vonarhús- inu alla jafna en óvenju mikið er um að vera þar þessa dagana, eða 4., 5. og 6. þessa mán- aðar, því þá stendur þar yfir viðamikil og merkileg ráðstefna; fjallað er um og ræddur margvíslegur vandi sem steðjar að fíklum og þeim sem eiga við aðra geðsjúkdóma að ræða. Geðsjúkdómar meðal fíkla er ein málstofan, áfengisfíkn meðal þeirra sem eldri eru verður rædd á annarri; spautufíkn og meðferð við henni og kannabisneysla unglinga verður til umfjöllunar. Þórarinn hljóp yfir drög að dagskrá með tíðindamanni Edrú, áður en ráðstefnan hófst. Meðal þess sem eftirtektarvert hlýtur að teljast er að kynntar verða bráðabirgðaniðurstöður ein- stakrar rannsóknar sem SÁÁ vinnur í sam- starfi við NIDA. Flestir geðsjúkir eiga við fíknivanda að stríða Á fimmtudeginum 4. október (í gær) verður rætt hvernig gengur að með höndla einstaklinga sem eru bæði greindir með geðsjúkdóm og fíkn- isjúkdóm. „Þá ræðum við það hvort slíkir sjúklingar fá góða meðferð, hvort sem þeir koma inn í fíknideild eða geðdeild og hvernig tekst að samræma starfsemi þessara deilda. Hér er um tvenns konar nálgun að ræða og skiptir miklu máli fyrir sjúklinginn að fá meðferð við sitt hæfi; stundum hjá okkur hjá SÁÁ og stundum á geðheilbrigðsstofnunum. Hvernig tekst að samtvinna þessa starfsemi svo sjúklingurinn fái góða meðferð?“ Sú er spurningin, að sögn Þórarins, og: Hvað kemur á undan og hvað kemur á eftir; geðsjúkdóm- ur eða fíknisjúkdómur og öfugt? „Þeir sem koma til liðs við okkur þarna er dr. Sigurður Páll Pálsson, yfirlæknir á Kleppsspítalanum. Þeir þar hafa rekið deild fyrir alvarlega geðsjúka en flestir þeirra eigi við fíknivanda að stríða. Reynt hefur verið að byggja upp meðferð sem hentar þeim. Sigurður fjallar um þetta. Kjartan Kjartans- son, yfirmaður fíknigeðdeildar Landspítalans, talar um hvernig þeir takast á við þennan vanda. Ég byrja og verð með pólitískar vangaveltur um sögulegan bakgrunn og hvernig tekist hefur að samtvinna þetta.“ Að auki mun svo ráðgjafi hjá SÁÁ, Sigurjón Helgason, fjalla um það hvernig reynir á geðsjúklinginn og ráðgjafann í fíknimeð- ferðinni, þegar þessir tveir sjúkdómar fara saman.“ Eldri áfengis- og vímuefnasjúklingar Eftir hádegi á fimmtudegi verður sjónum svo beint að eldri áfengis- og vímuefna- sjúklingum. Fullorðnu dagdrykkjufólki. „Efnasjúklingum. Þegar menn eru komnir á efri ár færa menn sig gjarnan yfir í áfengi og lyfin,“ segir Þórarinn og vísar til þess að öldungarnir séu ekki mikið að eltast við ólögleg efni – þá er læknadópið komið inn í dæmið af fullum þunga. „Þó menn hafi gert svo ungir er það fátíðara meðal þeirra sem eldri eru. Þarna eru svo oft komin inn önnur vandamál; sjúkdómar og áhættuþættir sem þarf að meðhöndla svo sem blóðfita, hjarta- sjúkdómar, blóðþrýstingur... ýmis vandamál sem þarf að eiga við. Valgerður Rúnarsdóttir verður með inngangserindi um þetta.“ Þá verður og fjallað um taugaskaða sem drykkjusjúkir eiga við að stríða; dagdrykkju- fólk sem komið er yfir miðjan aldur. Um þetta efni fjallar Björn Logi Þórarinsson læknir. „Síðan er það meðferð fyrir eldri karlana, meðferð og eftirfylgni. Sigurður Gunnsteins- son ætlar að tala um það. Þá verður og fjallað um meðferð fyrir eldri konurnar, erindi um það líka, en þar koma öldrunarlæknar og öldrunarþjónusta mikið inn í; innlegg frá hjúkrunarfræðingunum okkar á Vogi og sjúkraliðunum þar verður um þetta efni,“ segir Þórarinn og lítur svo á að strax þarna sé um verulega pakkaða og bitastæða dag- skrá að ræða. Sprautufíklar og faraldsfræði Föstudagurinn 5. október verður allur stíl- aður á sprautufíkn og örvandi vímuefnafíkn. „Þá tölum við um sprautufíkla, faraldsfræði og ástandið hvernig það er. Ég mun fjalla um það. Erindi verður um rítalín sem enn er mest notað í æð og hvert stefnum við? Valgerður Rúnarsdóttir talar um það og þá verður einnig fjallað um áhættuhegðun sprautufíklanna sem koma á sjúkrahúsið Vog. Kynntar verða bráðbirgðaniðurstöður úr viðamikilli rannsókn sem við erum að gera á Vogi en mikill spurningalisti hefur verið lagður fyrir sprautfíkla og mun Þóra Björnsdóttir vera með erindi um það. Síðan fjöllum við um sýkingar og fylgikvilla meðal sprautfíkla.“ Einnig verður fjallað um skaðaminnkun, hagnýtar aðgerðir og verður fjallað um það í samstarfi við fíknigeðdeild Landspítalans. „Svo mun ráðgjafi á okkar vegum fjalla um hvernig gengur að tryggja samvinnu við sprautufíklana; varðandi endurinnlagnir, mótiveringar og allt það.“ Þórarinn nefnir einnig til sögunnar stór- merkilega lyfjarannsókn sem SÁÁ og NIDA (National Institude of Drug Abuse) eru að vinna saman að. „Ingunn Hansdóttir hefur yfirumsjá með þessu en um er að ræða rann- sókn sem við erum að vinna á Vogi. Við eigum engin lyf til að meðhöndla þetta sem við köllum viðhaldsmeðferð fyrir ópíumfíkla. Áttatíu sjúklingar eru í slíkri meðferð sem við munum fjalla sérstaklega um.“ Framhaldsmeðferðin á Staðarfelli fyrir sprautufíkla verður einnig á dagskrá sem og hugræn atferlismeðferð við sprautufíkn, bú- setuúrræði fyrir sprautfíkla sem SÁÁ rekur í samstarfi við Reykjavíkurborg og velferðar- ráðneytið. Það sem þar fer fram er hugræn atferlismeðferð til stoppa af fíkn.“ Kannabisfíkn ungs fólks Svo er laugardagurinn og þá er ekki síður merkilegt mál á dagskrá en þau sem áður hafa verið nefnd: „Þá ætlum við að fjalla um kannabisfíkn og unglinga. Ég verð með inn- gangserindi um kannabisfíkn,“ segir Þórar- inn. Síðan mun Hörður J. Oddfríðarson fjalla um íhlutun fyrir unglinga á framhaldsskóla- aldri, síðan fjölskylduíhlutun og foreldraþjón- usta. Að sögn Þórarins er ekki um að ræða inngrip eins og það sem margir þekkja úr kvikmyndum, sem er þegar fíklinum er stillt upp við vegg af fjölskyldu og aðstandendum. „Nei, gamla módelið hentar nú ekki öllum vel þó það geti hentað ákveðnum hópi alkó- hólista. Þetta er öðru vísi gert, „net therapy“, sem gengur út á að ná til mikilvægra pers- óna í lífi fíkilsins og fræða þær, fá þær til að breyta hegðun sinni. Tíminn og rannsóknir hafa leitt ýmislegt í ljós sem við fagfólkið eigum að vita. Hjalti Björnsson, áfengis- og vímuefnaráðgjafi, mun segja okkur ýmislegt um þetta.“ Þá verður og fjallað um hvernig tryggja má samvinnu við unglingana og meðferðina á Vogi. „Já, við munum fjalla um þær geðrask- anir sem unglingarnir hafa greinst með á Vogi. Fjallað verður um meðferð og eftir- fylgni. Svo er meiningin að við verum einnig með þjónusta fyrir börn áfengis- og vímu- efnasjúklinga sem eru í hættu; ekki byrjuð í vímuefnaneyslu en eru líkleg að enda þar. Við tölum um sálfræðiþjónustu og rannsókn- ir á fjölskyldulægni alkóhólisma, börn þeirra sem eru í meðferð okkar eru í mikilli hættu að koma einnig.“ Að sögn Þórarins má auka batalíkur og jafnvel koma í veg fyrir að einstaklingar sem til- heyra þessum hópi þrói með sér sjúkdóminn. Að sleppa boðhættinum Eins og áður sagði eru allir vel- komnir og ráðstefnan er öllum opin. Fyrir liggur að dagskráin er þess eðlis að ekki nokkur maður sem lætur sig þessi mál varða ætti að láta hana fram hjá sér fara. „Þetta er ráðstefna sem talar inn í þetta samfélag áfengis- og vímuefnafíkla. Þetta er samfélag sjúklinga og fag- manna sem vinnur saman. Þann hátt höfum við á.“ Þórarinn segir það sjónarhorn, það viðhorf, vænlegast til árangurs; að líta á þetta sem eitt samfélag, alkasamfélag, fremur en að þeir sem teljast til fagmanna séu í turni og tali til sjúklinga, hvað þeir eigi að gera, eins og jafnan er talað til sjúklinga – í boðhætti. Mannúð Sprautufíklar, eldri alkóhóliStar, ungir kannabiSneytendur og geðSjúkir... Mikilvæg ráðStefna þeirra SeM koMa að MeðferðarStarfi, uMönnun og hjúkrun þeirra SeM eiga við víMuefnafíkn og aðra SjúkdóMa að Stríða Stendur nú yfir. jakob bjarnar ræddi við þórarin tyrfingSSon, yfirlækni á vogi, SeM telur aðkallandi að Stilla SaMan Strengi. Nýr hópur áfengis- og vímuefnasjúklinga hefur orðið til á síðustu árum; hópur sem hefur sérstakar þarfir sem ekki hefur verið hægt að koma til móts við. Í honum eru 50-100 nýbýar, mest ungir eða miðaldra, einhleypir, pólskir karlmenn. Bjóða þarf búsetu og endurhæfingu þar sem meðferð og eftirfylgni er á pólsku og stuðla að vexti batasamfélags nýbúa hér á landi. Þetta eru þau fórnarlömb áfengis- og vímuefnavandans sem eru utangarðs í kerfinu í dag. Það þarf nýtt þjóðarátak til að veita þeim nauðsynlega heilbrigðisþjónustu og félagslegan stuðning. - pg Að tala af viti um vandann Ingunn Hansdóttir mun kynna bráðabirgðaniður- stöðu merkrar rannsóknar sem SÁÁ vinnur nú í sam- starfi við NIDA. Þórarinn Tyrfingsson blæs til mikillar ráðstefnu þar sem meðal annars eru rædd meðferðarúrræði og vandi sprautfíkla, ungra kannabisneytenda og eldri dagdrykkjumanna. Þá verða kynntar bráðabirgðaniður- stöður merkra rannsókna. Valgerður Bjarnadóttir læknir, og einn helsti sér- fræðingur okkar í fíknisjúk- dómum, fjallar um vanda eldri alkóhólista. Amfetamín og ópíumfíklar Stærstum hluta þeirra 300 manna sem geta nýtt sér meðferð SÁÁ en þurfa aukinn stuðning má skipta í tvennt: Allt að 150 illa farnir amfetamínnotendur þurfa sérstakt langtíma úrræði með meðferð, búsetu og endurhæf- ingu. Þessir sjúklingar hafa sprautað sig með amfetamíni og eru illa farnir eftir langvarandi harða neyslu. Varnir þeirra gegn fíknivökum eru veikar að lokinni hefðbundinni meðferð. Þau þurfa að eiga kost á 7-9 mánaða búsetuúrræði, samhliða meðferð, áður en þau jafna sig nægilega til þess að endurhæfing beri árangur. SÁÁ veitir um 90 ópíumfíklum viðhalds- meðferð með lyfjum á borð við meþadón. Nauðsynlegt er að tengja sérstaka endurhæfingu þessari meðferð. Einnig þurfa sjúklingarnir sérstaka lokameðferð til að venja sig af viðhaldslyfjunum. Fangar þurfa meðferð og endurhæfingu Um það bil 90 áfengis- og vímuefnasjúklingar sem svo eru illa haldnir líkamlega, andlega og félagslega eftir lang- dvöl í fangelsum að þeir fóta sig ekki eftir meðferð hjá SÁÁ. Þá vantar langtíma endur- hæfingu sem sniðin er að sérstöðu þeirra. Áfengis- og vímuefna- meðferð þarf að vera í boði sem valkostur við fangelsisrefsingu. Endurhæfa þarf fjöl- skyldur þeirra til að undirbúa aðlögun að samfélaginu. Tvígreindir þurfa sérstaka meðferð 250 einstaklingar sem eru tvígreindir, eins og það er kallað, það er að segja með áfengis- og vímuefnasýki en einnig með alvarlegar geðraskanir. Þau eiga erfitt með að ná bata með þeim úrræðum sem nú eru í boði. Nauðsynlegt er að þróa ný meðferðar-, búsetu- og endurhæfingarkerfi fyrir þennan hóp. Meðferð tvígreindra er sinnt innan Landspítal- ans þar sem sérþekking er til staðar. En sjúkra- húsið hefur ekki að- stöðu til að byggja upp og reka ný endurhæf- ingar- og búsetuúrræði. Sjúklingar eru útskrif- aðir til endurhæfingar á Hlaðgerðarkoti. Þar eru möguleikar til að veita faglega þjónustu ófull- nægjandi. Viðunandi úrbætur gætu kostað liðlega 100 milljónir króna. Nýbúar án batasamfélags 10 OKTÓBER 2012
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.