Fréttatíminn - 05.10.2012, Side 64
Helgin 5.-7. október 201248 tíska
Úfnar rokkaðar greiðslur
Þrátt fyrir ofvirkni mína og ærslagang gef ég mér tíma
til að líta í kring um mig og forvitnast um tísku. Karl-
mannatíska er í skugga kventískunnar og því er enn
mikilvægara fyrir mig og mína líka, gagnkynheigðu
meðal(l)jónin, að fylgjast vandlega með spjörum kyn-
bræðranna. En það eru ekki aðeins spjarirnar sem
skipta máli! Hárgreiðslan hefur einnig mikið að segja.
Hvað vitum við týndu gagnkynhneigðu ljónin um
hártísku karlmanna? Spjarir okkar fá almennt minna
vægi en kvenna, hvað þá hárið! Eitt sinn sá ég afar vel
klæddan en viðurstyggilega luralegan bróður, lykillinn
að ósmekklegu útliti hans var akkúrat hárið. Þá fór ég
að fylgjast með.
Eftir óvísindalegar rannsóknir hef ég komist að nið-
urstöðu, sem að ég vil nú ólmur deila með kynbræðrum
mínum til að sporna við smart klæddum illa klipptum
leppalúðum. Það sem er ríkjandi í hártískunni eru rokk-
aðar greiðslur sem draga innblástur frá „dúi“
James Dean og Elvis Presley frá árunum 1950-
1960, stutt og aftursleikt eða rakaðar hliðar
með lubba á toppnum. Það besta við þessa
tísku er að úfið, nývaknað hár rokkar líka!
Konur tala um að skórnir séu það sem þær
sjái fyrst á karlmönnum. Við vitum að þetta er
kjaftæði. Vel skóaður karlmaður með tuttugu
ára klippingu gengur ekki. Það er andlitið sem
skvísurnar horfa á og flott hár er ramminn
í kringum fésið. Þú verður að vera með töff
ramma á þinni mynd.
Gestapistla-
höfundur
vikunnar er
Stefán
Pálsson
Stígur upp úr hverSdagSleikanum í SparidreSSið með Sömu flíkinni
Rándýr leðurjakkinn
heillaði
Hversdagsdressið Sparidressið
Halldór Óskarsson, 31 árs tæknimaður hjá Securitas, hefur einstakt dálæti á svarta leðurjakkanum sínum
sem hann keypti í Kúltur menn fyrir um fjórum árum. Jakkann keypti hann á 120 þúsund og hefur hann notað
hann vel, í samræmi við það. „Þetta var eini jakkinn sem kom í verslunina og ég vissi að ég þurfti að eignast
hann, þrátt fyrir hátt verð. Ég veit hvað ég vil þegar ég sé það og þetta var bara eitt af því. Þetta er flottur
jakki, sem ég get notað við hvað sem er, nema kannski ekki í brúðkaup eða jarðarfarir, en allt þar á milli.“
Stíll Halldórs er gríðarlega fjölbreyttur og segist hann sækja tískuinnblástur allstaðar frá. „Það má segja að
tískublogg á tumblr og götutíska hafi mest áhrif á fatastílinn minn. Það er lang skemmtilegast að fylgjast með
götutísku vegna þess hversu hratt hún breytist og maður er fljótur að spotta hvað er inni. Fótboltakappinn
David Beckham hefur einnig verið í miklu uppáhaldi hjá mér, alveg síðan að ég man eftir mér.“
Þurrkar
naglalakkið á
undraskömmum tíma
Drip Dry varan frá naglalakksframleið-
andum OPI er að gera allt vitlaust hér á landi.
Hún gerir það að verkum að naglalakkið þornar á
mjög skömmum tíma. Varan fæst bæði sem sprey og
í vökvaformi og er þetta notað á lakkið um 40 sekúndum
eftir að það hefur verið sett á. Lakkið þornar á undraverðum
tíma, sem er vel hentugt fyrir okkur sem alltaf erum að flýta
okkur. Drip Dry varan fæst í öllum verslunum Hagkaups og
apótekum víðs vegar um landið og kostar um 2.990 krónur.
Marilyn Monroe förðunarlína frá MAC
Í ár voru fimmtíu ár frá dauða goð-
sagnarinnar Marilyn Monroe og
ákvað snyrtivörufyrirtækið MAC
því að heiðra minningu hennar og
framleiða splunkunýja förðunar-
línu undir hennar nafni. Línan
er mjög sérstök að sögn Maríu
Guðvarðardóttur, vörumerkj-
astjóra snyrtivörfyrirtækisins á
Íslandi, og mun hún samanstanda
af þrjátíu ólíkum snyrtivörum,
eins og varalitum, augnskuggum,
kolablýöntum og naglalökkum
í anda gamla Hollywood glam-
úrsins. Línan er komin á markað
í Bandaríkjunum og mun seinna í
mánuðinum koma í verslanir MAC í
Kringlunni og Smáralind.
Sautján
Kúltúr
Matenik
J. Linderberg
Tiger of
Sweden
Hugo Boss,
gamalt frá
afa
Riberland
Topshop
River
Island
J. Linderberg
Kormákur og
Skjöldur
Innblástur nútíma
hártísku er oft sóttur
til James Dean.
Ha
rð
pa
rke
t