Fréttatíminn - 05.10.2012, Page 74
58 bíó Helgin 5.-7. október 2012
En ef þú
sleppir
henni ekki
þá mun
ég leita
að þér,
ég mun
finna þig
og ég mun
drepa þig.
Frumsýndar Taken 2 Liam neeson breTTir upp ermarnar
É g veit ekki hver þú ert. Ég veit ekki hvað þú vilt. Ef þú ert á eftir lausnar-gjaldi get ég sagt þér að ég á engan
pening. Ég bý hins vegar yfir mjög sérstök-
um hæfileikum. Hæfileikum sem ég hef til-
einkað mér á mjög löngum ferli. Hæfileikum
sem gera mig að martröð fólks eins og þú ert.
Ef þú sleppir dóttur minni núna þá er þessu
lokið. Ég mun ekki leita að þér. Ég mun ekki
elta þig. En ef þú sleppir henni ekki þá mun
ég leita að þér, ég mun finna þig og ég mun
drepa þig.“
Þessa mögnuðu einræðu hélt Liam Neeson
í hlutverki fyrrverandi CIA-mannsins Bryan
Mills þegar hann náði símsambandi við einn
þeirra albönsku glæpamanna sem rændi Kim,
dóttur hans og vinkonu hennar, þegar þær
voru á ferðalagi í París. Skúrkurinn gerði þau
regin mistök að taka orð hins óttaslegna föður
ekki alvarlega og hvarf á braut með stúlkurnar
tvær með það fyrir augum að selja þær í vændi.
Mills var hins vegar maður til þess að standa
við stóru orðin. Rauk beint til Parísar og var
fljótur að komast á spor mannsalsdurganna.
Illmennin týndu síðan tölunni jafnt og þétt á
mis hrottalegan hátt á meðan Mills þræddi
sig upp fæðukeðjuna í átt að höfuðpaurunum
og týndri dóttur sinni.
Sú stórfína leikkona Famke Janssen lék fyrr-
verandi eiginkonu Neesons og móður Kim
sem Maggie Grace lék. Neeson hefur greint
frá því að hann hafi í fyrstu ekki verið neitt sér-
staklega spenntur fyrir því að gera framhalds-
mynd og vildi alls ekki taka annan snúning án
þess að Janssen og Grace yrðu líka með. Þau
snúa nú öll aftur í Taken 2 og endurtaka rullur
sínar og fara í gegnum kunnuglegar aðstæður
þótt aðkoma dótturinnar sé töluvert öðruvísi
að þessu sinni.
Þríeykið skellir sér nú í frí til Istanbúl og
þar sæta ættingjar þeirra albönsku óþverra
sem Mills sálgaði í fyrri myndinni færis og
leita hefnda. Þeir ræna Mills og konu hans en
Mills er ekki auðveld bráð frekar en fyrri dag-
inn og tekst að virkja dótturina í harkalegum
björgunaraðgerðum. Stúlkan er auðvitað orð-
in ýmsu vön eftir að hún var hert í eldi fyrri
myndarinnar og fjölskyldan er því sýnd veiði
en ekki gefin.
Taken sló óvænt í gegn á sínum tíma og
komu vinsældir myndarinnar Luc Besson og
Neeson nokkuð á óvart. Taken 2 hefur ekki
fengið jafn góða dóma ytra og fyrri myndin og
Neeson telur víst að með henni sé ævintýrum
Bryan Mills og fjölskyldu lokið. Neeson ræddi
möguleikana á frekara framhaldi Taken í ný-
legu viðtali við kvikmyndatímaritið Empire og
sló slíkt nánast alfarið út af borðinu. „Ég sé það
ekki fyrir mér og held að það verði ekkert af
því. Í alvöru talað. Ég sé ekki fyrir mér sann-
færandi aðstæður þar sem áhorfendur gætu
mögulega gert annað en segja: „Nei hættu nú
alveg...! Er búið að taka hana aftur?“ “
Aðrir miðlar: Imdb: 8.4, Rotten Tomatoes: 7%, Me-
tacritic: -
Hinn mjög svo fjölhæfi, írski leikari Liam Neeson festi sig rækilega í sessi sem harðjaxl í kvik-
myndum í Taken fyrir fjórum árum. Luc Besson skrifaði handrit þessarar ofbeldisveislu þar sem
Neeson gekk milli bols og höfuðs á glæpahyski sem rændi dóttur hans til þess að selja hana í
kynlífsþrælkun. Óhjákvæmilegt framhald er nú komið í bíó og þar þarf Neeson og takast á við
afleiðingar drápsæðisins sem rann á hann árið 2008.
Þórarinn
Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Einn er fyrsta
kvikmynd
Elvars Gunnars-
sonar í fullri lengd.
Myndin fjallar
um kvikmynda-
gerðarmanninn
Helga sem svo
skemmtilega vill til
að er að gera sína
fyrstu mynd í fullri
lengd. Helgi byggir
handrit myndar-
innar á sínu eigin
lífi og nákomnum
persónum. Þegar
framleiðendur
koma við sögu vilja þeir sjá breytingar á handritinu. Hægt og rólega fara breyting-
arnar að hafa bein áhrif á líf Helga. Hann missir þá tök á veruleikanum og kemur sér
og sínum í óborganlegar aðstæður.
María Ellingsen, Þorsteinn Gunnar Bjarnason, Guðfinnur Ýmir, Arnþór Þór-
steinsson, Vivian D. Ólafsdóttir og Darren Foreman eru í helstu hlutverkum en
flestir sem koma að gerð myndarinnar stunda nám við Kvikmyndaskóla Íslands, eru
útskrifaðir þaðan eða kenna þar.
Einn
Helför albanskra mansalstudda
Teiknimynd sem gerist
við Viktoríufossa í Afríku
þar sem fuglar hafa
stofnað sína eigin borg,
Zambezíu. Kai er ungur
og óreyndur fálki sem
leitar að Zambezíu sem
fyrirheitna landinu sínu.
Hann fellur vel inn í
hópinn þegar á staðinn
er komið og lærir ýmis-
legt um lífið og tilveruna
af hinum nýju vinum
sínum í borginni. Eins og
sönnum fálkum sæmir
er Kai að sjálfsögðu hug-
rakkur og áræðinn. Þeir
eiginleikar hans koma
sér ákaflega vel þegar
öflugir óvinir herja á
borgina og ásælast egg
íbúanna.
Höfðingjarnir Jeff Gold-
blum, Richard E. Grant
og Samuel L. Jackson
eru á meðal þeirra
leikara sem ljá persónum
myndarinnar raddir
sínar.
Liam Neeson rústaði glæpagengi í París í Taken fyrir örfáum árum og mætir nú hefndaróðum félögum þeirra sem hann drap
síðast í Istanbúl í Taken 2.
Zambezia
Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík lýkur á sunnu-
dag. Hátíðin er orðin ómissandi og fastur liður í menn-
ingar- og bíólífinu á haustin og heppnaðist sérlega vel í ár.
Úrval mynda á RIFF hefur alltaf verið fjölbreytt, áhuga-
vert og gott en ég minnist þess þó ekki að hafa áður haft
úr slíkri gnótt áhugaverðra mynda að velja að á tímabili
var valkvíðinn að buga mig.
Í raun ætti kvikmyndaáhugafólk að fá launað frí frá
vinnu dagana sem RIFF stendur yfir til þess að eiga raun-
hæfan möguleika á því að komast yfir allt það sem heillar.
En maður hefur látið sig hafa það að þeytast, fúlskeggj-
aður, sveittur og óbaðaður í rúma viku á milli kvikmynda-
húsa. Myndirnar hafa að vonum verið misgóðar, stundum
örlar á vonbrigðum, en samt er aldrei hægt að tala um að
maður hafi farið fýluferð á RIFF.
Þessir bíódekurdagar eru að renna út þannig að nú er
að duga eða drepast gott fólk og ekkert annað í boði en að
taka endasprettinn með trompi. Enn er til dæmis tæki-
færi til þess að sjá hina vægast sagt athyglisverðu heim-
ildarmynd Meet the Fokkens, frábæra heimildarmynd
um meistara Woody Allen, heimildarmyndina We Are
Legion um aktívistahakkarana í Anonymous, Persepolis
og þrívíða Dracula-mynd ítalska hryllingsgúrúsins Dario
Argento. Freddie Mercury hefur heldur ekki sungið sitt
síðasta á RIFF og enn er hægt að slást í hópinn með nör-
dunum á Comic-Con. Þeir sem hafa sterk bein ættu síðan
að hætta sér inn í ömurlegan hugarheim barnaníðinga í
heimildarmyndinni Outing og hinni leiknu Still Life eftir
sama leikstjóra.
Lifum til að horfa og horfum til að lifa! -ÞÞ
riFF snarpur endaspreTTur
Dekurdögum að ljúka
MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR OG KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS MIÐASALA: 412 7711
KOMDU Í KLÚBBINN!
bioparadis.is/klubburinn
Farðu núna á www.bioparadis.is/klubburinn!
SKÓLANEMAR: 25% afsláttur
gegn framvísun skírteinis!
RIFF Í BÍÓ PARADÍS TIL OG MEÐ 7. OKT.!
KOMDU Í KLÚBBINN!