Fréttatíminn - 05.10.2012, Side 82
www.sena.is/elly
HEIÐURSGESTIR
Raggi Bjarna,
Jón Páll Bjarna
son
og Guðmundur
Steingrímsson
FRÍTT
NIÐURHAL
SÆKTU
NÝJU ÚTGÁFUNA
AF VEGIR LIGGJA
TIL ALLRA ÁTTA
ÓKEYPIS Á TÓNLIST.IS
FORSALA
TÓNLEIKAGESTIR
GETA TRYGGT SÉR
ÆVISÖGU ELLYJAR
Í FORSÖLU Á
TÓNLEIKUNUM
Minningarto’nle
ikar 13. okto’ber
MIÐASALA Á MIÐI.IS Í SÍMA 540-9800
UPPSELT Í A+ OG C SVÆÐI. ÖRFÁIR LAUSIR MIÐAR Í A OG B SVÆÐI.
KOMDU MEÐ Í ÓGLEYMANLEGT FERÐALAG TIL GULLALDARÁRANNA
OG UPPLIFÐU ELLY Í MÁLI OG MYNDUM, LJÓSLIFANDI MINNINGUM SAMFERÐARFÓLKSINS
OG AUÐVITAÐ TÓNLISTINNI SEM HÚN GAF OKKUR ÖLLUM.
AÐEINS 8 DAGAR Í TÓNLEIKA
ANDREA GYLFADÓTTIR · DIDDÚ · EIVÖR · ELLEN KRISTJÁNSDÓTTIR · GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
KRISTJANA STEFÁNSDÓTTIR · LAY LOW · RAGGA GÍSLA · SIGGA BEINTEINS
BJÖRGVIN HALLDÓRSSON · EGILL ÓLAFSSON · GISSUR PÁLL GISSURARSON · STEFÁN HILMARSSON
Jakob Frímann Magnússon er
hamhleypa til verka. Atvikin
hafa hagað því þannig að um-
fangsmikil verkefni hrúgast yfir
hann um helgina en hann fer
léttleikandi í gegnum hasarinn.
Á laugardaginn þyrfti hann
helst að geta verið í tveimur
sölum Hörpu í einu. Á meðan
hann treður upp ásamt félögum
sínum í Stuðmönnum í Eldborg
verða Norrænu kvikmynda-
tónskáldaverðlaunin afhent í
næsta sal. „Ég mun ná að ávarpa
hópinn í hléi hjá okkur Stuð-
mönnum,“ segir Jakob. „Sig-
tryggur Baldursson sér um að
stjórna veislunni og Björk mun
annast afhendingu verðlaunanna
sjálfra.“
Stuðmenn fagna því um
þessar mundir að þrjátíu ár eru
liðin frá frumsýningu kvikmynd-
arinnar Með allt á hreinu og því
þótti ekki annað við hæfi en að
slá upp tónleikum. Eftirspurnin
varð slík að hljómsveitin treður
upp tvisvar á föstudag og síðan í
tvígang á laugardaginn.
„Þetta er kannski meira og
þéttara en góðu hófi gegnir en
er ekkert mál. Þetta er eins og
að spila á píanó. Ef píanóið er
partur af grunninum sem maður
hefur í lífinu þá getur maður
„múltítaskað“ út í eitt. Þá getur
þú verið með tíu fingur og tíu
tær í aðskildum verkefnum og
allt lýtur stjórn þeirrar stjór-
nstöðvar sem Guð plantaði á
milli eyrnanna á okkur, segir
Jakob sem vill að píanóleikur
verði skyldunám til þess að búa
börn undir lífið og þjálfa þau í að
gera margt í einu.
„Ég er bara vanur þessu og
þetta er minnsta mál, þökk sé
þessum grunni. Ergo: Píanónám
verði að lögboðinni grunnmennt-
un allra Íslendinga.“ -þþ
Jakob Frímann annasöm helgi
Píanóleikarinn getur
gert ótal hluti í einu
Svaraðu í símann, Frímann. Jakob fyrir 30 árum í Með allt á hreinu. Tónlistin úr
myndinni kom nýlega út í viðhafnarútgáfu í tilefni afmælisins. Fyrsta upplag út-
gáfunnar inniheldur myndina á DVD.
Frumraun biggi hilmars geFur út sólóplötuna all We Can be
Einlægt uppgjör Bigga
Þ etta er mjög persónuleg plata. Ég syng
um lífið, um vini mína, um
fólk og staði sem hefur veitt
mér innblástur,“ segir Biggi
Hilmars tónlistarmaður sem í
vikunni sendi frá sér fyrstu sólóplötu
sína. Platan kallast All We Can Be og
hefur Biggi unnið að henni síðustu þrjú
ár.
Biggi hefur verið búsettur erlendis
síðustu átta árin með fjölskyldu sinni,
konunni Maríu Kjartans og ellefu ára
dóttur þeirra. Fyrst bjuggu þau í Glasgow
en f luttu sig síðan yfir til London. Þar tók
ferill Bigga sem tónlistarmanns stökk,
hann var varla lentur í London þegar hon-
um fóru að bjóðast verkefni. Hann samdi
tónlist við kvikmyndir, auglýsingar og
fyrir leikhús og komst á samning við
Universal. „Það skiptir greinilega máli
hvar maður leggur niður áruna sína,“
segir Biggi brosandi og sér ekki eftir að
hafa f lutt til London. Nú er Biggi og hans
fólk hins vegar komið aftur heim og hann
ætlar að fylgja plötunni eftir þó hann
sinni enn verkefnum erlendis.
„Ég tek forskot á sæluna á Íslandi og
svo kemur í ljós hvenær platan kemur út
erlendis. Ég er með umboðsskrifstofu
úti sem er að skoða útgáfumál fyrir mig.
Nú er ég bara spenntur að fá að reyna
mig hér heima með þessa plötu, að sinna
þessu barni.“
Augljóst er að árin úti og vinnan þar
hafa gert Bigga gott því platan er afar vel
heppnuð. Hann hefur svosem alltaf kunn-
að að semja f lottar melódíur og röddin
var ekki slæm á Ampop-árunum. Nú er
hins vegar eins og hann hafi stígið skrefi
lengra en áður og greinilegt er að hann
hefur legið lengi yfir útsetningunum. Til
að mynda má greina áhrif frá Jeff Lynne
og félögum ELO í minnst einu lagi og er
þar ekki leiðum að líkjast.
Eins og áður segir eru yrkisefni Bigga
persónuleg á plötunni. Hann segist til að
mynda fjalla um það hvernig er að búa er-
lendis í laginu Home. „Það lag var samið
þegar við vorum nýflutt frá London til
Parísar og vissum ekkert hvort það væri
rétt skref. Það er nefnilega alltaf ákveðin
togstreita að búa í útlöndum. Það er ein-
hver spenna í manni en um leið gefur það
manni orku,“ segir Biggi sem gerir upp
við baráttu systur sinnar við krabbamein
í laginu War Hero. „Hún er sannkölluð
stríðshetja. Hún náði að jafna sig. Hún
var með þriðja stigs krabbamein og það
var eiginlega búið að afskrifa hana en
hún náði að komast í gegn.“
Útgáfutónleikar Bigga voru haldnir í
gær, fimmtudagskvöld, í Fríkirkjunni.
Biggi setti saman hljómsveit fyrir þá og
væntanlega tónleika á Iceland Airwaves-
hátíðinni í næsta mánuði. Í hljómsveitinni
eru trommarinn Hallgrímur Jón Hall-
grímsson, Haraldur Þorsteinsson bassa-
leikari og Sigtryggur Ari Jóhannsson
hljómborðsleikari auk strengjasveitar.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
Biggi Hilmars gerði það gott með hljóm-
sveitinni Ampop fyrir nokkrum árum.
Eftir áralanga búsetu erlendis, þar sem hann
var meðal annars á samningi hjá Universal, er
hann kominn heim aftur og með fyrstu sólóplötu
sína í farteskinu.
Biggi Hilmars er fluttur heim eftir átta ára búsetu erlendis. Hann kom með sína fyrstu sólóplötu í
farteskinu. Ljósmynd/María Kjartans
66 tónlist Helgin 5.-7. október 2012