Læknablaðið - 01.03.1929, Blaðsíða 6
36
LÆKNABLAÐTÐ
Þess vegna verður aÖ fara meÖ hana eins og hverja aÖra farsótt: —
i) varna því eftir mætti að sjúklingarnir smiti frá sér, — 2) lækna þá,
sem eru batavænlegir, — 3) hjúkra þeim sem eru orÖnir rúmlægir aum-
ingjar og eiga sér enga batavon.
Þetta er ekki kleift með öðru móti en því, að reisa sjúkrahús, sérstök
sjúkrahús fyrir þá, sem endilega þurfa að komast úr heimahúsum til lækn-
ingar eða hjúkrunar.
Hvað hafa aðrar þjóðir gert, þær sem best hafa að verið?
Þær hafa reist sérstök heilsuhæli og sérstaka spítala fyrir brjóstveila
fólk og alveg hætt að hafa þá sjúklinga innan um aðra sjúklinga í almenn-
uin sjúkrahúsum.
Þær hafa s'.ðan líka reist sérstök sjúkrahús, venjulega við sjó fram
(strandahæli, strandaspítalar), fyrir ]iá sem hafa „útvórtisberkla“ — bæði
börn og fulloröna. Þar sem heilbrigðismál eru í bestu lagi, sjást ekki berkla-
sjúklingar lengur í almennum sjúkrahúsum.
Þá ketnur höfuðspurningin: Hvað þarf ein þjóð mörg sjúkrarúm handa
bcrklasjúklingnm, cf vcl á að vcra?
Það hefir lengi verið talið hæsta markmiðið, að eiga til jafnmörg sjúkra-
rúm í scrstökum sjúkrahúsum handa berklavciku fólki, eins og margir
dcyja á ári tir berklavciki.
í öðrum löndum er sagt, að Danir einir hafi náð þessu marki, enda
kostað meiru til berklavarna en nokkur önnur þjóð.
Hvorugt er satt.
Við íslcndingar stöndum nú frcmstir allra þjóða í þcssu cfni, eigum
fleiri sjúkrarúm handa berklaveikum og kostum hlutfallslega meiru til
berklavarna, en nokkur önnur þjóð. En eg verð um leið að játa, að við
erum kcmnir út í öfgar og ófærur i þessu máli.
Lítum fyrst til Danmerkur, sem stendur fremst af öðrum löndum í
þessu efni.
í Danmörku eru til
34 berklaspitalar ........................ með 1016 rúmum
16 heilsuhæli ............................ — 13&2 —
3 strandaspltalar ....................... — 375 —
9 strandahæli ............................ — 4^3 —
4 öryrkjahæli ........................... — 132 —
5 hressingarhæli ........................ — 73 —
Samtals 3458 rúm.
Koma þá uin iro rúm á hvcr 100 bcrkladauðsföll. Af þessum 3458 rúm-
um eru 2603 ætluð brjóstveiku fólki, en 855 fólki með aðra berkla (börn-
um og fullorðnum).
I lok ársins 1925 voru til í Noregi
12 heilsuhæli .............................. með 987 rúmum
103 berklahæli (Tuberkulosehjem) ......... — 2037 —
4 strandaspítalar ........................... — 352 —
nokkur smáhæli ........................... — 13° —
Samtals 3506 rúm.