Læknablaðið - 01.11.1937, Blaðsíða 18
96
LÆKNABLAÐIÐ
nauösynleg mönnum eða eitthvert
vitaminanna í fæöu okkar Norð-
ur-Evrópubúa, veldur þaö sér-
kennilegum sjúkdómum. Fyrst ber
því að taka tillit til þess, að mat-
urinn innihaldi nægilegt af þess-
um verndarefnum fyrir okkur, síð-
an þarf að fylla upp með orku-
gefand'i eínum, þannig að menn
fái nauðsynlegan hitaeininga-
fjölda. Verndarefnin eru aðallega
landbúnaðar-afurðir eða nánar til-
tekið mjólkurafurðir og garðamat-
ur (mjólk, ostur, grænmeti, á-
vextir, kartöflur), kjöt og egg, en
auk þess einnig að nokkru leyti
sjávarafurðirnar, einkum feitur
fiskur. Orkugjafar cru aftur á
móti aðallega mjölmeti, fituteg-
undir vissar og sykur. Af öllum
fæðutegundum er mjólkin talin
fremst og fullkomnust. Hún inni-
heldur nokkuð af orkugefandi efn-
um (kolvetni, fitu og eggjahvítu),
en einkum inniheldur hún mörg
Verndarefni, ílest öll þekt nauð-
synlegustu vitaminin og' af söltum
kalk, fosfór, járn, brennistein, joð,
magnesium, kalium, natrium, klór,
kopar, auk fjölda annara efna,
sem ennþá er ekki eða lítt vitað
utn hvaða þýðingu kunna að hafa.
Fæðutegund sem jafngildi mjólk
hefir ekki tekist að framleiða.
Nefnd sú, sem prófessor Mell-
anby stjórnaði, kom sér saman um
eftirfarandi meðalkröfur, sem gera
þyrfti til fæðu mannanna („Op-
timum standard of human diet“):
A. Nauðsynlepar hitaeiningar:
t. Fullorðinn karl eöa kona, sem
lifir venjulcgu hversdagslífi i
tempruðu loftslagi og ekki hefir
erfiðisvinnu, er reiknað að þurfi
2400 hitaeiningar á dag, nettó.
2. Við þetta bætist fyrir vöðva-
áreynslu eftirfarandi: Fyrir létta
vinnu alt að því 75 hitaein. fyrir
vinnustund, fyrir meðalvinnu 75
—100 hitaein. hver vinnustund,
fyrir erfiðisvinnu 150—300 hita-
ein. fyrir hverja vinnustund.
3. Grundvallar þarfirnar á ýms-
um aldri eru þannig á dag til 2ja
ára 840 hitaein., 2ja—3ja ára 1000
3ja—5 ára 1200, 5—7 ára 1440,
7—9 ára 1680, 9—11 ára 1920, 11
—12 ára 2160, 12—15 ára 2400
hitaein. og 15 og þar yfir 2400.
Starfsemi barna, bæði drengja
og telpna á aldrinum 5—11 ára er
talin sem létt vinna og þarf þvi
að bæta þeim 75 hitaein. á klst.,
sem þau eru á ferli í viðbót við
þessar grundvallarþarfir. Starf-
semi drengja 11—15 ára er talin
jafngilda meðalvinnu og þarf því
að bæta þeim 75—150 hitaein. á
vinnustund en stúlkum 11—15 ára
er talið að eigi að bæta 75 hitaein.
á klst., sem þær eru á fótum.
Innanhúsverk kvenna eru talin
jafngilda léttri vinnu, og er þeim
því ætlað 73 hitaein. á klst., 8
tíma á dag, til viðbótar við grund-
vallartöluna, 2400 einingar.
Þarfir smábarna jmgri en eins
árs eru greindar í hitaeiningum á
kg. líkamsþunga, þannig: o—6
mánaða 100 hitaein á kg. 6—12
mán. 90 hitaein á kg.
ófrískar konur þurfa 2400 hita-
eiu. að viðbættu því, sem svarar til
þeirra verka, sem þær vinna dags-
daglega. Konur, sem hafa barn á
brjósti, þurfa 3000 hitaein. að við-
bættu því sem svarar til daglegra
■starfa þeirra.
B, Eggjahvítuþörf.
Fullorðið fólk ætti ekki að fá
minna en því sem svarar eitt gr.
af eggjahvítu á kg. líkamsþunga á
dag. Það ætti helst að vera af
ýmsum uppruna og er æskilegt,
að minsta kosti talsverður hluti
þess sé úr dýrarikinu.
Eggjahvíta úr dýraríkinu er al-
veg nauðsynleg ófrískum konum,