Bændablaðið - 24.04.2013, Blaðsíða 23
23Bændablaðið | Miðvikudagur 24. apríl 2013
hvaðanæva að úr heiminum. Hún
hefur verið opin í ríflega 20 ár og er
vel nýtt árið um kring.
Kjarnastaður í ferðaþjónustu
„Skriðuklaustur hefur löngum
haft aðdráttarafl fyrir ferðamenn
og er í dag orðinn kjarnastaður í
ferðaþjónustu, ekki síst eftir að
Snæfellsstofa Vatnajökulsþjóðgarðs
var einnig opnuð hér á staðnum.
Við erum í miðjunni á fjölbreyttu
ferðaþjónustusvæði á ofanverðu
Fljótsdalshéraði þar sem saman
koma Hallormsstaðaskógur, Lagar-
fljót með sinn Orm, Hengifoss,
annar hæsti foss landsins, Valþjófs-
staður, Fljótsdalsstöð, Strútsfoss og
síðan hálendið með góðu aðgengi
að heitum laugum í Laugarfelli,
Kárahnjúkum og Snæfelli. Hér er
fjölbreytt gisting í boði og nokkrir
veitingastaðir ásamt margvíslegri
afþreyingu. Þeir sem kjósa að
heimsækja Upphérað geta því
auðveldlega dvalið hér í nokkra daga
og notið lífsins án þess að leggjast í
langkeyrslur.“
Tvær nýjar sýningar
Tvær nýjar sýningar voru opnaðar í
Gunnarshúsi nýverið. Í stássstofu var
opnuð sýning á útskornum krossum
úr viði og steini eftir Akureyringinn
Jón Geir Ágústsson. Sú sýning ber
heitið „Krossferli að fylgja þínum“.
Hún var fyrst sett upp á Hólum í
Hjaltadal enda mikið af efnivið
listamannsins sótt í Hólabyrðu og
timburafganga úr Auðunarstofu. Jón
Geir hefur allt frá 1982 unnið með
krossformið og efniviðurinn er ólíkar
viðartegundir, trjábörkur, hvaltönn,
messing og sandsteinn.
Í Gallerí Klaustri sýnir Sigurður
Ingólfsson ljóðskáld eigin teikningar
sem m.a. skreyta nýjustu ljóðabók
hans. Útgáfu bókarinnar var fagnað
við sýningaropnun en bók og sýning
bera sama titil: „Ég þakka“.
Sýningarnar hafa verið opnar á
sunnudögum nú í apríl, en dagleg
opnun í Gunnarshúsi hefst í næstu
viku, 1. maí næstkomandi.
Sýning Sigurðar Ingólfssonar
um krossana er opin á sunnudögum
í apríl kl. 12-17. Dagleg opnun hefst
síðan 1. maí.
Snæfellsstofa fyrsta vistvænt
vottaða bygging landsins
Snæfellsstofa er gestastofa og
upplýsingamiðstöð fyrir austursvæði
Vatnajökulsþjóðgarðs. Hún er
staðsett á Skriðuklaustri rétt sunnan
við afleggjarann upp á Snæfellsöræfi.
Gestastofan var opnuð sumarið
2010 og er hún fyrsta vistvænt
vottaða bygging landsins. Snæfells-
stofa keppir nú til úrslita í Architizer
A + verðlaununum í yfirflokknum
menning og undirflokki listasafna.
Það var arkitektastofan Arkís sem
hannaði og teiknaði bygginguna.
Hún er byggð samkvæmt
umhverfis staðlinum BREEAM
sem gerir kröfur um notkun á
vist vænum byggingarefnum og
byggingaraðferðum, minni orku-
notkun, meiri endingu og minna
viðhaldi.
Í Snæfellsstofu er sýningin
Veraldarhjólið sem fjallar um
hringrás og mótun náttúrunnar.
Sýningin leggur áherslu á
samspil gróðurfars og dýralífs á
austursvæði þjóðgarðsins sem nær
frá Kverkfjöllum að Lónsöræfum.
Við hönnun sýningarinnar var
lögð áhersla á að börn gætu snert,
lyktað og prófað sig á ýmsum
sýningarmunum.
Minjagripaverslun er í gesta-
stofunni með áherslu á vörur úr
heimabyggð og nágrannasveitum
þjóðgarðsins.
/MÞÞ
Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300
Dreift í 28 þúsund eintökum á 350 dreifingarstaði og 4.000 býli á Íslandi