Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 28.12.1958, Blaðsíða 10

Læknablaðið - 28.12.1958, Blaðsíða 10
130 LÆKNABLAÐIÐ ar annað betra bauðst. Ölafur Finsen var nú settur þar auka- læknir í ársbyrjun 1894 og skömniu síðar skipaður í em- bættið. Og þarna átti hann eftir að sitja alla sína embættistíð og siðan til æviloka. Héraðið var gert að læknishéraði árið 1900 og þvi gegndi hann þangað til hann var orðinn sjötugur, haust- ið 1937. Ölafur Finsen vann sér brátt vinsældir og traust héraðsbúa, enda ekki að ástæðulausu. Hann varð farsæll læknir, en það, sem sérstaklega auðkenndi öll störf bans var framúrskarandi skyldurækni og velvild til allra, sem hann átti skipti við. Hann lét bvorki veður né færð tálma ferðum sínum og var alltaf boð- inn og búinn til hjálpar, hvenær sem kallið kom. Og því var við brugðið, hve fljótur hann var að búa sig til ferðar. Akraneskauptún óx mikið i tíð Ólafs Finsens og uppsveit- irnar munu að mestu leyti liafa haldið sínu, og gefur að skilja, að starf læknisins hefur aukizt sí og æ. Það var ekki fvrr en 1934, að praktíserandi læknir settist að á Akranesi. Þá var Ólafur Finsen kominn bátt á sjötugs aldur og mun liafa orð- ið feginn hjálpinni, enda tók hann lækninum vel. Um sama leyti létti líka af honum störf- um við það, að Akranessapótek var stofnað.íÓlafur Finsen hafði til þessa haft lyfjasölu og lyfja- gerð sjálfur, eins og flestir aðrir héraðslæknar. Það hefur ekki verið lítill ábætir á störfin í sí- vaxandi kauptúni, en þarna hjálpaði reglusemi og snyrti- mennska læknisins mikið. Það fór ekki miðið fyrir apótekinu, en þar var öllu svo haganlega fyrirkomið og sú regla á, að ég held að læknirinn hafi getað gengið blindandi að hverju því meðali, sem liann þurfti á að halda í hvert skipti. Eftir að Ólafur Finsen lét af embætti, stundaði hann heim- ilislæknisstörf í viðlögum, en hætti því svo líka smátt og smátt. En alltaf Iiafði hann þó vakandi áhuga á læknisfræði, hélt áfram læknatímarit og las þau. En hann hafði líka áhuga á ýmsu öðru og ekki sízt fólk- inu í liéraðinu. Hann þekkti þarna, fram á seinustu ár, svo að segja hvern mann og kunni deili á ætt þeirra og uppruna. Fólkið hafði vaxið upp i kring um liann og liann hafði látið sig hag þess miklu skipta. Ólafur var leikfimismaður á yngri árum, liafði lært leikfimi i Latínuskólanum og snemma kom hann á fót leikfimisflokki á Akranesi. Akurnesingar þökk- uðu honum þetta með því að gera hann að heiðursfélaga í Knattspyrnufélaginu, enda fvlgdist hann líka vel með í þess sigurför. Söngmaður var hann góður og söng lengi i Akra- nesskirkju og heiðursfélagi var

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.