Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 28.12.1958, Síða 11

Læknablaðið - 28.12.1958, Síða 11
L Æ K N A B L A Ð I Ð 131 liann líka í söngfélaginu á Akra- nesi. Auk þess var hann heið- ursfélagi i Stúdentafélagi Akra- ness og Stúdentafélagi Suð-Yest- urlands. En vænst mun honum líklega hafa þótt um að vera útnefndur heiðursborgari kaup- staðarins. Og öllum þótti sjálf- sagt, að svona ætti þetta að vera og hann ætti þetta skilið. Ég kynntist ekki Ólafi Finsen fyrr en á seinni árum, en sér- staklega kynntist ég honum sumarið 1955, þegar ég var bráðabirgðalæknir við sjúkra- húsið á Akranesi. Það var hans óskabarn og þangað kom hann nær þvi daglegá, en þó sérstak- lega ef eitthvað sérlegt var um að vera. Þá var honum gert að- vart og hann lét ekki á sér standa og fylgdist með aðgerð- unum af miklum áhuga. Á eft- ir drakk hann með okkur kaffi og gekk svo stofugang og heils- aði upp á sjúklingana. Flestir voru þeir kunningjar hans eða af kunnugum komnir. Ólafur Finsen var tæplega meðalmaður á hæð og svaraði sér vel, gekk teinréttur og liafði áður verið snar i snúningum og' léttur á fæti. Hann mun lengst af hafa verið heilsugóður og það var ekki fyrr en seinustu árin, að ellin var farin að segja veru- lega til sín. Hann varð fyrir því mótlæti að fá glaucoma í annað augað og var hann blindur á því í nokkur ár. Seinna fékk liann cataracta i hitt augað svo ekki varð að gert, og alblindur var liann orðinn áður en liann varð níræður. Enn var hann þó liress og glaður ef gest bar að garði, enda var gestrisni lion- um i hlóð borin og heimili hans löngum rómað fyrir góðar og alúðlegar móttökur. Hann hafði lengst af ferlivist, en að lokum sigraði þó ellin hann. Með hon- um er ljúfmenni til moldar gengið. (Ólafur Finsen var kvæntur Ingibjörgu Isleifsdóttur prests í Arnarbæli, sem var honum mjög samhent. Hún andaðist árið 1936. Þau eignuðust 4 syni og 4 dætur, og lifa 2 synir og 3 dætur föður sinn. Guðm. Thoroddsen. ------•------ IVORRÆNT LÆKKAMÓT Hið sjöunda norræna læknamót í klíniskri lífeðlis- og efnafræði verð- ur haldið dagana 21.—25. júní 1959 í Helsingör, Danmörku. Meðal annars verða þar fluttir fyrirlestrar með umræðum um: Vökva- og elektrólýtadreifingu, geislavirk efni til sjúkdóma- greiningar, lípóíð og lípóprótein, nýlegar aðferðir til blóðleysis- greiningar o. m. fl. Þeir læknar, sem áhuga hafa fyrir þessu þingi, geta fengið nánari upp- lýsingar hjá Bjarna Konráðssyni.

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.