Læknablaðið - 01.06.1962, Blaðsíða 64
8B
LÆKNABLAÐIÐ
lystarleysi, blóðleysi og megr-
un þýðir oftast, að æxlið cr
orðið óskurðtækl. Sama gildir,
ef komin er liæsi, lifrarstækk-
un, vökvamyndun í kviðarholi,
kyngingartregða og einkenni
frá miðtaugakerfi.
Pancoast’s syndrome eða
superior sulcus syndrome cr
áður nefnt. Þessu var fyrst lýst
af Pancoast 1932 og er oftast
um að ræða krabbamein i
broddi lungans. Þó getnr einn-
ig verið um að ræða illkynja
æxli af taugauppruna á ])essu
svæði. Á röntgenmyndum sésl
bjá þessum sjúklingum bein-
eyðing í efstu rifjum eða
brjóstbryggjarliðum, og fylg-
ir því mjög mikill verkur efst
í brjóstboli eða baki, einnig
verkur fram í handlegg vegna
truflunar á ])lexus brachialis
og skyntruflanir og lamanir
á handlegg. Hæsi er oftast, ef
æxlið er vinstra megin, og
einnig getur Horner’s syn-
drome verið lil staðar, en það
er inneygð, vöðvabólga, augn-
lokasig og svitaleysi þeim
niegin á andliti og hálsi.
Greining.
Eins og áður er gelið, eru
einkennin oft óljós lengi fram-
an af og sjúkdómsgreiningin
því eðlilega erfið, jafnvel þó
að menn láti sér detta í hug,
að um krabbamein geli verið
að ræða. Hjá einstaka sjúkl-
ingum uppgötvast æxlið af til-
viljun, áður en einkenni koma
i ljós. Ifjá sumuni sjúklingum
koma ekki teljandi einkenni
fram, fyrr en meinið er orðið
óskurðtækt. Það er sorgleg
staðreynd, að hjá 55—60%
þessara sjúklinga er sjúkdóm-
urinn kominn ó svo hátt stig,
þegar þeir eru lagðir inn á
handlæknisdeildir, að aðgerð
er orðin tilgangslaus, ])ar sem
eitthvað af eftirtöfdum ein-
kennum eru fyrir hendi:
1. Meinvörp í eitlum (lfgl.
supraclavicularis, axillae
eða scaleni).
2. Blóðugur vökvi í brjóst-
holi.
3. Lömun á taugum (N. re-
currens, n. phrenicus og
Iiorner’s syndrome).
Mynd 1. 9, 56 ára. Skuggi neðan v.
viðbeins,, niður undir fjórða rifi.
Þéttastur upp af lungnarót. Inndrátt-
ur. R. diagn.: Atelectasis lob. sup.
pulm. sin. Thoracotomia sin. et
biopsia. P. A. D.: Biti úr krabba-
meini (oat cell carcinoma).