Læknablaðið - 01.06.1962, Blaðsíða 67
LÆKNABLAÐIÐ
89
lungnahrun, vessamyndun, í-
gerð eða eitlastækkanir inn við
lungnarót, sem koma fram á
myndunum, og verður þá að
beita öðrum aðferðum jafn-
hliða við greininguna, ef tak-
ast á að fá ákveðna sjúkdóms-
greiningu.
Berkjumyndataka (hroncho-
grafia) er ofl til hjálpar.
Berkjuspeglun (hronchosco-
pia) er mjög þýðingarmikil
rannsóknaraðferð og alltaf
sjálfsögð, ef grunur er um
æxli. Ef æxlið liggur í aðal-
herkju, sést það vel, og má þá
taka úr þvi hita með þar til
gerðri töng og fá sjúkdóms-
greininguna. Með þessu áhaldi
er þó ekki unnt að sjá nema
rétt í opið á berkjunum í
lungnahlöðunum, en til er
sérstalcl áhald, Broyls telescop,
sem unnt er að sjá með dálítið
upp i efra lungnablað.
I flestum skýrslum er talið,
að greina megi sjúkdóminn á-
kveðið hjá 40% með berkju-
speglun (hronclioscopia), sum-
ir segja 75%, en það er ugg-
laust allt of hátt, því að það er
alls ekki svo stór hundraðs-
hluti af þessum æxlum, er
vaxa í þeim berkjum, sem unnt
er að sjá með þessari rann-
sóknaraðferð. Með speglun er
einnig úrskurðað að nokkru,
hvort æxlið sé óskurðtækt, því
að ef æxlið er í aðalberkju og
vaxið alveg upp að carina, eða
þar sem barkinn greinist í
tvennt, þá er tilgangslaust að
gera aðgerð. Það verður að
vera 2—‘l1/) cm fjarlægð frá
carina og niður að sjáanlegu
æxli, ef unnt á að vera að fá
stúf, sem líkur eru til að grói,
og oftast sýnir smásjárrann-
sókn, að æxlið er vaxið mun
lengra upp á við en sjáanlegt
er með berum augum.
Enda þótt nægjanlegur stúf-
ur sé fyrir hendi, þá er þó
margt annað, sem getur gerl
æxlið óskurðtækt, svo sem áð-
ur er nefnt.
Önnur mjög mikilvæg rann-
sóknaraðferð er cytologisk
rannsókn, þ. e. leit að illkynja
frumum í uppgangi eða skol-
vatni, sem tekið er við berkju-
speglun. Þessi rannsókn er
reist á því, að frumuflögnun
á sér stað frá yfirhorðsæxlum.
Þeir, sem leiknir eru í þessari
rannsóknaraðferð, eru mikil
hjálp við greiningu lungna-
krabbans. Neikvætt svar úti-
lokar auðvitað ekki krabba-
mein. Jákvætt svar táknar
langoftast krahbamein, sem
upprunnið er í lunga. Yillandi
jákvætt svar, „false positiv“,
er þó mögulegt (0—5%) og
skiljanlegt, því að eins og áð-
ur er nefnt, sést oft metaplasi
á þekjufrumunum í gömlum
berklaholum, ígerðarholum o.
s. frv.
Flestum ber saman um, að ef
beitt er báðum þessum aðferð-
um, herkjuspeglun og cyto-