Læknablaðið - 01.06.1962, Blaðsíða 70
92
LÆKNABLAÐIÐ
goður við brottnám lungna-
blaðs, ef um „coin laesion“ er
að ræða úl undir yfirborði
lungans og ekkert finnst í eitl-
um við lungnarót. Hann leggur
á það mikla áherzlu, að reynt
sé í sem flestum tilfellum að
ákveða án aðgerðar, að skurð-
aðgerð komi ekki til greina.
Hann lýsir 628 sjúklingum,
sem hann hefur haft til með-
ferðar fram til 1958. Aðgerð
var gerð lijá 54%; hrjósthol
opnað i tilraunaskyni hjá 23%
og hrottnám lijá 31%. Að-
gerðadauði var lijá honum
9.7%: 10.3% hjá þeim, sem
meinsemdin var numin hrott
úr, og 9% við opnun hrjósthols
í tilraunaskyni. 23 sjúklingar
af 628 lifðu 5 ár eða meir, þ.
e. 28.4% af þeim 81 sjúklingi,
sem lifði af hrottnám mein-
semdar. Þetta kemur heim og
saman við 27.3% lijá Thomp-
son og 28% hjá Thomas, sem
Boyd vitnar í. Boyd hendir
einnig á, að við stórt frumstætt
krahbamein fari horfurnar
eflir frumutegundinni, en ekki
el'tir því, hve víðtækt brott-
námið er.
Þessi árangur, sem hefur
verið nefndur, er vissulega
ekki góður, en sýnir vel þá
staðreynd, að flestir þessara
sjúklinga komast alll of seint
í hendur skurðlækna, en það
stafar sumpart af kæruleysi
sjúklinganna sjálfra, en getur
einnig stafað af andvaraleysi
lækna og vanþekkingu.
Hér á landi er ekki enn þá
um marga sjúklinga að ræða
með krahhamein í lungum, en
tíðni sjúkdómsins hefur þó
greinilega aukizt síðuslu árin.
Á árunum 1957—1961 hafa
vistazt alls 35 sjúklingar á
handlæknisdeild Landspítal-
ans. Þar er um að ræða 27
karlmenn á aldrinum 29—65
ára, meðalaldur 53 ár, og 8
konur á aldrinum 35—65 ára,
meðalaldur 56% ár. Meðalald-
ur allra 53 ár. Sjúklingar skipt-
ast þannig á árin:
Ár Alls
1957 3
1958 1
1959 12
1960 11
1961 8
Karlar Konur
2 1
1 0
8 4
9 2
7 1
Samtals 35 27 8
Talsvert margir sjúklingar
hafa legið á öðrum sjúkrahús-
um með sjúkdóminn á svo háu
stigi, að tilgangslaust var að
vista þá á handlæknisdeild,
þar sem aðgerðir voru von-
lausar.
Berkjuspeglun var gerð Iijá
24 sjúklingum og var jákvæð
Iijá 5, neikvæð hjá 14 og vafa-
söm hjá 5.
Leit að illkynja frumum var
gerð lijá 15 og var jákvæð hjá
5, en neikvæð hjá 10. Þessi
rannsóknaraðferð er nú ávallt
notuð og nýtur rétlilega vax-
andi álits.
Aðgerð var gerð á 27 sjúkl-