Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.12.1963, Síða 28

Læknablaðið - 01.12.1963, Síða 28
152 LÆKNABLAÐIÐ í héraði sínu, þar sem ekki eru starf- andi heilsuverndarstöðvar og fjöldi nemenda er ekki meiri en svo, að talizt geti við hæfi. Samkvæmt 4. grein sömu laga eru skólalækningar aukastarf læknis, nema sérstaklega sé um annað samið, og heimfærast því væntanlega undir „störf, önnur en embættisstörf, i þágu rikis, sveit- arfélaga eða opinberra stofnana". 1 þeirri gjaldskrá fyrir héraðs- lækna, er sett var samkvæmt lög- um nr. 44/1932 og numin var úr gildi með staðfestingu framan- greindra samninga, var kveðið svo á, að fyrir almennar skólaskoðanir bæri héraðslækni fullt gjald eins og fyrir viðtal með einfaldri rann- sókn aðeins fyrir einn nemanda hverju sinni, en hálft gjald fyrir hvern hinna (sbr. gjaldskrá frá 1933, skýringarlið I. i og k). Þessi helmingun gjalds mun hafa verið til samræmis við það sjónarmið, að fjöldaskoðun væri sambærileg við skoðun fleiri en eins sjúklings vegna sama sjúkdóms eða endurtekin við- töl í sama sjúkdómi. Eftir þeirri reglu, samræmdri nýja taxtanum, ætti nú að greiða kr. 40.00 fyrir fyrstu tvo nemendur, sem skoðaðir eru hverju sinni, og síðan kr. 20.00 fyrir hvern nemanda. Samkvæmt reglugerð um heilsuvernd i skólum er skólaskoðun fólgin í gaumgæfi- legri klíniskri rannsókn hvers barns, viðlíka og við afgreiðslu örorkuvott- orðs, a.m.k. þegar um frumskoðun er að ræða. Auk þess skal þá skrá allrækilega forsögu (anamnesis) barnsins. Enda þótt frumskoðun sé að sjálfsögðu mest verð, er vissu- lega viðurhlutamikið að slaka á ná- kvæmni og aðgæzlu við síðari skoð- anir. 1 hvert sinn, þegar barn er skoðað, verður læknir að gera sér glögga grein fyrir heilsufari barns- ins, líkamlegu og andlegu, ef vel á að vera. Undir því er að veru- legu leyti komið, ekki aðeins hvern- ig barninu nýtist að skólavistinni, heldur einnig almennt atgervi þeirr- ar kynslóðar, sem á að erfa landið. Stjórn Læknafélags íslands lítur svo á, að skólaskoðanir séu það ábyrgðarstarf, að skylt sé að rækja það af fyllstu kostgæfni, enda sé það þá sómasamlega borgað. Ef fylgt væri þeirri helmingunarreglu, er að framan greinir, fær læknir liðlega fimm krónum meira fyrir að skoða barn en dýralæknir fær fyrir að stimpla nautsfall, þótt hin nýja gjaldskrá væri lögð til grund- vallar. Fyrir því vill hún beina þeim tilmælum til hins háa ráðuneytis, að þær reglur, sem fylgt hefur ver- ið við ákvörðun gjalds fyrir skóla- skoðanir, verði endurskoðaðar, áður en gjald þetta verður nú samræmt hinni nýju gjaldskrá, sem að fram- an getur. , F. h. stjórnar Læknafél. Islands, Virðingarfyllst, (Undirskrift.) Til menntamálaráðuneytisins. Stjórnin átti nokkrar viðræð- ur um efni þessa bréfs við þá Benedikt Tómasson skólayfir- lækni og Birgi Thorlacius ráðu- neytisstjóra menntamálaráðu- neytisins. Með bréfi dagsettu binn 1, júní 1963 fellst ráðu- neytið á, að greiðsla fvrir skóla- læknisstörf skuli vera hin sama um allt land. Verði gjaldið eins og það er í Reykjavík hverju sinni lagt til grundvallar. En það er nú kr. 27.05 fyrir livert barn í barnaskólanum, en kr. 20.00 í unglingaskólum. Önnur mál, sem stjórnin hef- ur tekið afstöðu til, eru þessi:
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.