Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.12.1963, Page 41

Læknablaðið - 01.12.1963, Page 41
LÆKNABLAÐIÐ 165 Karl Pétursson, Akureyri, Egg- ert Einarsson, Borgarnesi. Endurskoðendur reikninga félagsins voru kosnir: Bjarni Jónsson, Reykjavík, Bjarni Kon- ráðsson, Reykjavík. Þá lá fyrir að ákvarða næsta fundarstað aðalfundar Lækna- félags íslands. Ólafur Bjarna- son lagði til, að næsti aðalfund- ur yrði haldinn á Vestfjörðum, en síðar yrði fundarstaðurinn endanlega ákveðinn í samráði við Vestfjarðalækna. Fulltrúi Læknafélags Vestfjarða, Björn Önundarson, tók vel í þetta og var uppástungan einróma sam- þykkt. Undir dagskrárliðnum Önn- ur mál kvaddi Eggert Einars- son sér ldjóðs og har fram eft- irfarandi tillögu: „Aðalfundur L.í. 1963 álykt- ar að lýsa eindreginni samstöðu með mótmælum stjórnar L.l. gegn veitingu Kópavogshéraðs síðastliðið vo.r og sem birt var í dagblöðum Reykjavíkur.“ Nokkrar umræður urðu um tillögu Eggerts, en síðan var hún borin undir atkvæði og samþykkt. Bjarni Bjarnason ræddi um Nesstofu á Seltjarnarnesi og lagði fram svoldjóðandi tillögu: „Aðalfundur L.Í., haldinn 29. júní 1963, endurtekur áskorun sína frá fyrra ári um verndun Nesstofu á Seltjarnarnesi og skorar jafnframt á rikisstjórn- ina og Alþingi að leggja fram fé til þess að gera það kleift.“ Tillaga Bjarna var samþykkt samhljóða. Að því búnu tók fundarstjóri til máls og kvað fleiri mál ekki liggja fyrir fundinum. Hann þakkaði góða fundarmennsku og fundaranda. Hann bað full- trúana utan af landi fyrir kveðj- ur til kolleganna þar. Óskaði hann þeim góðrar lieimferðar og lieimkomu. Formaður, Óskar Þórðarson, þakkaði fulltrúum fyrir kom- una, fundarstjóra fyrir góða fundarstjórn og fundarritara fyrir lians erfiði. Síðan var fundi slitið. LciArétting. í 3. hefti Læknabl. 1963 á bls. 100 í greininni íslenzk Pelger-fjöl- skylda er P gildi reiknað meira en 0.5 en minna en 0.7 (X 2 = 0.36) og lagt til grundvallar 11 Pelger og 14 normal systkini samt. 25. Réttara er að leggja til grund- vallar útreikningnum 9 Pelger og 14 normal systkini samt. 23. Þá fæst P meira en 0.05, en minna en 0.3 (X 2 = 1-08).

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.