Læknablaðið - 01.12.1964, Page 21
LÆKNABLAÐIÐ
GEFIÐ ÚT AF LÆKNAFÉLAGI ÍSLANDS OG
LÆKNAFÉLAGI REYKJAVÍKUR
Aðalritstjóri: ÓLAFUR BJARNASON. Meðritstjórar: MAGNÚS
ÓLAFSSON (L. í.) og ÓLAFUR GEIRSSON (L. R.)
48. árg. Reykjavík 1964. 4. hefti. ZIIIZZIIZI^
FUNDARGERÐ AÐALFUNDAR L. R. OG
SKÝRSLA FÉLAGSSTJÓRNAR 1964.
Aðalfundur Læknafélags
Reykjavíkur var haldinn miS>
vikudaginn 11. marz í fyrstu
kennslustofu Háskólans og hófst
kl. 20.30.
Formaður, Arinlijörn Kol-
beinsson, setti fundinn og stjórn-
aði honum. Lýsti hann fundinn
lögmætan til afgreiðslu allra
mála nema lagabreylinga, en til
þess var fundurinn of fámenn-
ur.
Ritari, Snorri P. Snorrason,
las fundargerð síðasta fundar,
og var hún samþvkkt athuga-
semdalaust.
Formaður flutti skýrslu fé-
lagsstjórnar, og fer hún hér á
eftir.
Félagatal.
í byrjun starfsárs voru félags-
menn 262, tveir læknar létust á
árinu og 14 fluttust af félags-
svæðinu og féllu því af skrá.
31 nýr félagsmaður hættist við,
og var tala þeirra í lok starfsárs
277. Gjaldskyldir voru 175 fé-
lagsmenn, og hafa þeir allir
greitt gjöld sín.
Starfsemi skrifstofunnar,
fundahöld o. fl.
Haldnir voru 10 almennir fé-
lagsfundir á árinu, þar af tveir
aukafundir. 11 erindi voru flutt,
og var eitt þeirra flutt af er-
lendum prófessor. Stjórn og
meðstjórnendur héldu 14 fundi
á árinu, og voru þar tekin fyr-
ir 82 mál; flest þeirra voru af-
greidd, en nokkur híða af-
greiðslu á næsta stai’fsári.
Eins og að undanförnu var
skrifstofan rekin í samvinnu við
Verkfræðingafélag Islands að
Brautarholti 20. Starfsemi skrif-
stofunnar jókst allmikið á ár-
inu, þar eð félagið tók lil úr-
lausnar fleiri mál en áður. Eink-