Læknablaðið - 01.12.1964, Blaðsíða 45
LÆKNABLAÐIÐ
185
ir við reikningana eða skýrsluna,
og skal það gert fyrir 1. maí ár
hvert.
Sjóðurinn greiðir allan kostnað
af starfsemi sinni.
V. gr.
Styrki úr sjóðnum skal veita tvisv-
ar á ári, 1. april og 1. ágúst ár
hvert. 1 fyrsta sinn 1. apríl 1964.
Heimilt er þó stjórn sjóðsins að
víkja frá þessum tímamörkum, ef
sérstaklega stendur á.
Umsóknir um styrki skal senda
stjórn sjóðsins fyrir 1. marz og 1.
júlí ár hvert. Hverri umsókn skal
fylgja áætlun um námsferðina, upp-
lýsingar um, hvað nema skuli og
hvar, og annað, er máli skiptir að
ákvörðun stjórnar sjóðsins.
Sérstaklega skal styrkja ferðir
lækna á læknafundi, læknanám-
skeið, til námsstarfa á sjúkrahús-
um og rannsóknarstofnunum og til
að vinna að ákveðnum vísindaleg-
um verkefnum.
8. gr.
Almennir námsferðastyrkir úr
sjóðnum hvert ár mega aldrei nema
meiru en 90% af tekjum ársins á
undan samkv. 1. tölulið 3. greinar.
Vísindastyrkir mega ekki nema
meiru en 10% af tekjum sjóðsins
frá síðustu veitingu sliks styrks.
Heimilt er þó stjórn sjóðsins að
víkja frá þessu, ef hrein-eign sjóðs-
ins nemur meira en tvöföldum árs-
tekjum hans.
Styrkir úr sjóðnum skulu eigi vera
hærri en kr. 40.000.00 til hvers
manns í hvert sinn. Við ákvörðun
styrkf járhæðar til hvers manns skal
til þess líta, hve mikið styrkþegi
hefur starfað í þágu stofnana, sem
í sjóðinn greiða, enda skulu ekki
veittir lægri styrkir en kr. 5.000.00.
Fjárhæðir þessar eru miðaðar við
núverandi gengi íslenzkrar krónu
og mega breytast, ef breytingar
skyldu verða á genginu.
Enginn getur fengið oftar styrk
úr sjóði þessum en þriðja hvert ár.
Sá, sem fengið hefur styrk úr
sjóðnum, skal við heimkomuna af-
henda stjórninni stuttorða skýrslu
um för sina og nám. Eigi getur
læknir vænzt styrks aftur fyrr en
skýrslu þessari hefur verið skilað.
9- gr.
Heimilt er að veita læknum lán
úr sjóðnum til skamms tíma og gegn
góðri tryggingu til að setja á stofn
lækningastofur og til kaupa á lækn-
ingatækjum. Slík lán má eigi veita
nema fyrir liggi meðmæli stjórnar
Læknafélags Reykjavíkur.
10. gr.
Samþykktir þessar taka gildi, þeg-
ar þær hafa verið samþykktar af
stjórn Sjúkrasamlags Reykjavikur
og Læknafélags Reykjavíkur.
Reykjavík, 11. marz 1964.
F. h. Læknafélags Reykjavíkur
Arinbjörn Kolbeinsson (sign.)
(form.)
Snorri P. Snorrason (sign.)
(ritari).
F. h. Sjúkrasamlags Reykjavíkur
Baldvin Jónsson (sign.)
(form.)
Gunnar J. Möller (sign.)
(ritari).
Ath.: Gjald til Námssjóðs hefur
frá 1. apríl 1964 hækkað í 4% v.
heimilislækna og heimilissérfræð-
inga og sérfræðinga utan sjúkra-
húsa, samkv. samningi við S.R. —
Hins vegar hefur samningur við
sjúkrahúslækna fallið niður frá 1.
maí 1964.
(5/5 ’64)
Bílamál lækna.
Svo sem kunnugt er, var fyr-
ir nokkrum árum gerð breyting