Læknablaðið - 01.12.1964, Page 65
LÆKNABLAÐIÐ
201
stofu h/f og Lækna í Domus Me-
diea.
3) Gert er ráð fyrir, að kjallari
hússins og I. hæð verði eign Do-
mus Medica, II. hæð eign Lækna
í Domus Medica og III. og IV.
hæð eign Nesstofu h/f. Þá hefur
Domus Medica fengið leyfi til
að reisa viðbyggingu á hinni
sömu lóð. Sú bygging verður eign
Domus Medica, enda reist á
kostnað sjálfseignarstofnunar-
innar, án þátttöku annarra samn-
ingsaðilja.
4) Samningsaðiljar beita sér sam-
eiginlega fyrir útvegun fjár til
byggingar hússins eftir nánara
samkomulagi þeirra á milli. Þeg-
ar uppsteypu hússins er lokið,
skal venjulegum sameiginlegum
byggingarkostnaði (kostnaði við
grunn, þak o. fl.) jafnað niður
á sameigendur eftir nánara sam-
komulagi eða samkvæmt ákvörð-
un dómkvaddra óvilhallra
manna.
Hver samningsaðili ræður gerð
og búnaði innan húss á eignar-
hluta sínum samkvæmt samn-
ingi þessum og greiðir allan
kostnað við þær framkvæmdir.
5) Allir samningsaðiljar fallast á,
að skipulagsskrá þeirri, sem gerð
hefur verið um Domus Medica
samkvæmt framansögðu, verði
fylgt i öllum greinum. Er lögð
á það rik áherzla af öllum samn-
ingsaðiljum, að hin fyrirhugaða
bygging verði eingöngu notuð af
íslenzkum læknum eða tannlækn-
um, enda er þetta forsenda fyrir
samkomulagi aðilja. Aðiljar fall-
ast þó á, að Domus Medica ráð-
stafi með leigusamningi kjallara
hússins og fyrirhugaðri viðbygg-
ingu á hvern þann hátt, er stofn-
unin kann að ákveða, svo og
jafnframt, að Domus Medica hafi
heimild til að leigja samkomu-
sali á 1. hæð öðrum en læknum.
Til efnda á ákvæðum 5. grein-
ar skulu þessar reglur gilda:
A. Nesstofa h/f.
1 stofnsamning og lög hluta-
félagsins skulu sett ákvæði þess
efnis, að hlutafélagið sjálft eigi
forkaupsrétt að fölum hlutabréf-
um. Að hlutafélaginu frágengnu
skal Domus Medica hafa þennan
rétt.
B. Lceknar í Domus Medica.
Gert er ráð fyrir, að Læknar
í Domus Medica geri með sér
sérstakan samning og kjósi sér
stjórn eða framkvæmdastjóra
vegna sameignarinnar. 1 þeim
samningi skal kveða svo á, að
samtök þeirra hafi forkaupsrétt
að læknastofum, sem kunna að
verða til sölu, en að samtökun-
um frágengnum hafi Domus Me-
dica forkaupsrétt.
Verði forkaupsréttur ekki not-
aður samkvæmt ákvæðum þess-
arar greinar, er sala heimil, til
hvaða læknis eða tannlæknis
sem er.
Leigusamningar til annarra en
lækna eða tannlækna eru ógildir,
sbr. þó 5. gr. Domus Medica.
Nesstofa h/f og samtök Lækna
í Domus Medica geta hvert um
sig eða sameiginlega rift slíkum
leigusamningum og leigt hús-
næðið læknum eða tannlæknum.
6) Um sameign samningsaðilja,
réttindi þeirra og skyldur skulu
gilda lög nr. 19/1959 um sameign
fjölbýlishúsa, eftir því sem við á.
7) Þegar lokið er að steypa hina
fyrirhuguðu byggingu, skal geng-
ið frá endanlegum samningi milli
aðilja.
Reykjavík, 9. maí 1963.
f. h. Domus Medica:
Bjarni Bjarnason, Eggert Steinþórs-