Læknablaðið - 01.12.1964, Page 68
204
LÆKNABLAÐIÐ
„Eins og fram kemur í eftirfar-
andi bréfi, hefur nú verið gengið
endanlega frá stofnun Félags lækna
við heilbrigðisstofnanir. Á tímabili
var ætlunin að láta þessi samtök
ná til allra lækna í opinberri þjón-
ustu og félaginu ætlað að vera í
fyrirsvari og gæta hagsmuna þeirra
í launa- og kjaramálum, ekki sízt
eftir að Bandalag háskólamanna
hefur fengið samningsrétt um kjör
meðlima sinna til jafns við BSRB,
eins og vonir standa til um. Var þó
að því ráði horfið fyrst um sinn
að binda nánari böndum alla starf-
andi lækna við heilbrigðisstofnanir,
þeirra er launþegar í venjulegum
skilningi mættu teljast. Stjórn fé-
lagsins hefur gert bráðbirgðastarfs-
áætlun. Auk fyrirsvars fyrir félaga
í launa- og kjaramálum, eins og 1.
gr. gerir ráð fyrir, er félagið einnig
vettvangur yngstu læknanna og
kandídatanna í launa- og ráðninga-
málum og enn fremur tengiliður
við Læknanemafélagið, er á þarf
að halda. Stjórnin telur þó, að nauð-
syn beri til, að félagið hafi nokkur
afskipti önnur af sjúkrahúsmálum,
og á þar aðallega við vinnuaðstöðu
hvers konar, aðbúnað lækna og
möguleika þeirra til þess að geta
framkvæmt störf sin, eins og þeir
ættu að hafa hæfni til. Telur stjórn-
in, að þessu sé víða ábótavant, og
hefur þegar skipað trúnaðarmenn
innan hverrar stofnunar og deild-
ar, sem hafa fengið það verkefni að
athuga vinnuskilyrði og starfstil-
högun hver á sinni stofnun/deild, og
e.t.v. gera tillögur til úrbóta. Stjórn-
in mun síðan halda fund með þess-
um trúnaðarmönnum eftir þörfum
til umræðna um þessi mál og önnur
þeim skyld. Að lokum skal þess get-
ið, að hinn 26. febr. var haldinn vel
sóttur upplýsingafundur um skatta-
mál og framtöl á vegum félagsins.
Framsögu þar hafði framkvæmda-
stjóri Læknafélagsins, Sigfús Gunn-
laugsson."
Samkvæmi.
Hinn 4. janúar var haldin
jólatrésskemmtun L.R. ogTann-
læknafélags íslands að Hótel
Borg. Þetta var í fyrsta sinn,
sem T.í. var aðili að jólatrés-
skemmtun L.R., enda var fjöl-
menni rneira en nokkru sinni.
Jólatrésnefnd annaðist undir-
búning skemmtunarinnar og
stjórnaði henni. Formaður
hennar er Gunnar Biering.
Árshátíð L.R. var haldin 22.
febrúar í Sigtúni (Sjálfstæðis-
húsinu) .Skemmtinefnd annaðist
allan undirbúning liátíðarinnar,
en liana skipa Kristján Hannes-
son, Tryggvi Þorsteinsson og
Guðjón Guðnason. Setningar-
ræðu hátíðarinnar flutti for-
maður félagsins og stjórnaði
hófinu. Sú nýbreytni var við-
höfð, að fluttur var leikþáttur,
„revía“, samin af læknum um
störf lækna og fluttur af lækn-
um og konum þeirra. Aðalhöf-
undur var Ólafur Jensson, sem
jafnframt lék aðalhlutverkið.
Aðrir leikendur voru Guðjón
Guðnason og frú, Gunnar Guð-
mundsson og frú, Þorbjörg
Magnúsdóttir, Tryggvi Þor-
steinsson, Ólafur Stephensen,
María Hallgrímsdóttir, Gunnar
Biering, Jakob Jónasson og frú,
Ásmundur Brekkan. Leikstjóri
var Hólmfríður Pálsdóttir leik-
ari. Ivynnir var Ásmundur