Læknablaðið - 01.12.1964, Blaðsíða 77
LÆKNABLAÐIÐ
211
líklegt, að rikisstjórn eða þing
geti tekið afstöðu til einstakra
beiðna um spítalabyggingar,
nema þær verði reistar á raun-
hæfum rökum.
Staðsetning og stærð sjúkra-
húsa er háð fólksfjölda og sam-
göngum, og taka her tillit til
fólksflutninga eftir atvinnu-
möguleikum o. fl. Nágrannar
okkar, Englendingar og Svíar,
vinna að þess konar áætlunum.
Við þurfum fyrst að kynna
okkur eiginleika okkar eigin
þjóðfélags, er varða spítalabygg-
ingar og síðan að athuga, hvað
við getum lært af öðrum, og
siðan að skipuleggja.
Auk áætlana um húsrými þarf
að gera áætlun um útbúnað all-
an, er varðar gæði þjónustunn-
ar. Athugun gamalla sjúkrahúsa
og ákvörðun um það, hvenær
eigi að lagfæra eða hyggja nýtt,
er eins á dagskrá.
Tilgangur áætlunar er að
sjá þörfina fyrirfram og að
hefjast handa í tíma. Þetta er
mikið verk og meira en svo, að
núverandi starfslið lieilhrigðis-
þjónustu okkar geti bætt þessu
við sig og unnið það eins vel
og þörf er á. Kostnaður við góð-
an undirbúning horgar sigalltaf.
Að lokum lagði Sigmundur
til, að nefndin yrði þannig skip-
uð, að sifellt veittist nýtt blóð
í liana, svo að hún fvlgdist alltaf
með tímanum og staðnaði ekki.
Jón Sigurðsson horgarlæknir
kvaðst stvðja tillöguna. Hann
upplýsti, að heilln-igðismálaráð-
herra hefði skipað nefnd lil að
skipuleggja geðsjúkraliúsmálin.
Óskar Þórðarson kvaðst
hlynntur tillögunni og óskaði
eftir meira samstarfi spítalanna
og meiri fyrirhyggju um spítaia-
hyggingar. Hann kvað bygging-
arnefnd Borgarsjúkrahússins
liafa gert áætlanir langt fram
í tímann.
Tillaga sjúkrahúsnefndar var
samþykkt samhljóða.
14. Formaður har fram tillögu
samninganefndar heimilis-
lækna, sem hljóðar svo:
„Aðalfundur Læknafélags
Reykjavíkur haldinn 11. marz
1964 í fyrstu kennslustofu Há-
skólans, heimilar stjórn félags-
ins að framlengja sanminga
milli Læknafélagsins og Sjúkra-
samlags Reykjavíkur um einn
mánuð, ef þörf er á.“
Samþykkt samhljóða.
15. Arinbjörn Kolheinsson har
fram eftirfarandi tillögu:
„Aðalfundur Læknafélags
Reykjavíkur, haldinn 11. marz
1964, heimilar stjórn félagsins
að verja 10 þús. kr. á starfsár-
inu til samkeppni um teikningu
af félagsmerki fyrir Læknafélag
Reykjavikur.“
Samþvkkt samhljóða.
Fundi slitið kl. 0.10.
36 félagsmenn voru á aðal-
fundinum.