Læknablaðið - 01.10.1965, Blaðsíða 63
LÆKNABLAÐIÐ
31
nieti, ávextir og egg einna vin-
sælust. Það, sem hefur haldið
þessum olnbogabörnum læknis-
fræðinnar við vinnu sina, hef-
ur verið eindæma áhugi á starf-
inu, áhugi, sem bælt hefur nið-
ur alla ldígjukennd af því að
vinna við jarðneskar leifar
meðbræðra sinna.
Eftir því sem skilningur
lækna og yfirvalda á mikilvægi
meinarannsókna hefur auk-
izt, hefur runnið meira fé til
þessarar starfsemi, og hún þan-
izt út svo mikið, að skortur á
sérfróðum læknum í þessum
greinum mun vera meiri en í
nokkrum öðrum sérgreinum.
Jafnframt hafa kjör þeirra ver-
ið liælt svo um munar, bæði
til þess að laða unga menn inn
í stéttina og halda þeim kyrr-
um, sem fvrir eru. Er svo kom-
ið í mörgum menningarlönd-
um, að læknar þessir liafa jafna
afkomumöguleika og samlækn-
ar þeirra, sem starfa við sömu
stofnanir og fásl við sjúklinga.
Samt sem áður hefur það ekki
nægt til að fylla skörðin með
nýliðum, og mun það senni-
lega að einhverju leyti stafa
af því, hversu lílill Ijómi stend-
ur af þessum störfum í almenn-
ingsaugum og einnig að nokkru
leytj af því, að sumar þessar
sérgreinar fara fram í um-
hverfi, sem ekki er setl í sam-
band við læknisstörf og er því
ekki aðlaðandi fyrir læknastú-
denta. 1 margra augum mun
vera langt hil milli skurðlækn-
isins, þjótandi í hvítum slopii
og með andlitsgrímu milli
skurðstofanna,bjargandi hverju
mannslífinu af öðru, og meina-
fræðingsins með pípuna sína
og smásjána i dinnnu skoli niðri
í kjallara sjúkrahússins.
Nú má spyrja: „Hvernig eru
laun sérfróðra lækna við rann-
sóknastörf á lslandi?“. Svarið
verður: „Litið bætt frá dögum
liinna sveltandi meinafræðinga
meginlands Evrópu.“
Frá því að rannsóknastörf
hófust í sambandi við lækning-
ar og heilbrigðisfræði hér á
landi fvrir um 40 árum, hafa
örfáir Islendingar lagt fyrir sig
greinar þessar. Samt sem áður
hefur þessi fámenni hópur unn-
ið griðarmikið starf og annað
öllu, sem til hans hefur borizt.
En kjör þessara manna hafa
verið svo bágborin, að cnginn
þeirra hefur getað framfleytt
sér af launum þeim einum, sem
fyrir störf þessi hafa verið
greidd.
Með núverandi fjölgun og
stækkun sjúkrahúsa landsins
myndast margar nýjar stöður
í rannsóknagreinum, og þarf
að fylla þær, til þess að sjúkra-
húsin geti haldið uppi eðlilegri
starfsemi sinni. Talsvert marg-
ir íslenzkir læknar munu nú
vera við framhaldsnám i sum-
um þessara greina eða þegar
liafa lokið því og enn slarf-
andi erlendis. I fljótu bragði